blaðið - 11.10.2005, Page 4

blaðið - 11.10.2005, Page 4
ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 blaöiö 4 I INNLENDAR FRÉTTIR Villandi skoðanakönnun Samtök verslunar ogþjónustu gagnrýna bindindismenn ogsakaþá um að reyna að blekkja þjóðina með leiðanai spurningum Verslunar og bindindismenn deila um það hver sé hæfari að sjá landanum fyrir áfengi. Stýrivextir fari í 12% á næsta ári Greiningadeild íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn fari með stýrivexti sína í 12% á næsta ári. Segir í morgunkorni bankans í gær að Seðlabank- inn boði frekari vaxtahækkun í nýjustu útgáfu Peningamála og segir að verðbólguhorfur hafi versnað. „Peningalegt aðhald var ekki nægilegt um aldamótin að mati bankans sem segir ofþensluna nú meiri en þá. Stýrivextir fóru þá hæst í n,4% og raunstýrivext- ir í ríflega 7% en í dag standa stýrivextir hins vegar í 10,25% og raunstýrivextir í um 5,5% miðað við nýjustu verðbólgu- tölur. Af þessu má ljóst vera að Seðlabankinn hyggst hækka vexti sína meira á næstunni og teljum við að hæst muni bank- inn fara með þá í 12% á þessu þensluskeiði. Ekki er útilokað að bankinn hækki vexti enn frekar" segir í Morgunkorni fs- landsbanka í gær. Gengið styrkist áfram Greiningadeildin gerir enn- fremur ráð fyrir að gengi ís- lensku krónunnar haldi áfram að hækka. Gerir bankinn ráð fyrir að gengisvísitalan fari undir 100 stig á næstunni, en þó er tekið fram að þar verði um tímabundið ástand að ræða. Safnanir hafnar Rauði kross íslands hefur hafið söfnun til stuðnings fórnarlömbum jarðskjálftans í Pakistan. f tilkynningu á heimasíðu samtakanna segir að Hjálparsveitir Rauða kross- ins og Rauða hálfmánans séu við störf á skjálftasvæðinu, bæði í Pakistan og á Indlandi. Aðgerðir Rauða krossins til lengri tíma miða að því að að- stoða 50.000 fjölskyldur, eða um 250.000 manns, til næstu fjögurra mánaða. Hægt er að gefa eitt þúsund krónur til hjálparstarfsins með þvf að hringja í 907 2020. Einn- ig er hægt að leggja fram fé af greiðslukorti á vef Rauða kross- ins, www.redcross.is. Þá hefur UNICEF fsland þegar sent 2,5 milljónir til neyðaraðstoðar og hafa samtökin jafnframt opnað söfnunarreikning. Þeir sem vilja styrkja starf UNICEF á hamfarasvæðunum geta lagt framlög sín inn á reikning: 101- 26-102040 (kt:48l203-295o) Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) gagnrýna harðlega í frétta- bréfi sínu skoðanakönnun sem Samstarf um forvarnir lét gera um afstöðu almennings á sölu léttvíns og bjórs í verslunum. Þar saka þau Samstarfið um að beita brögðum til að blekkja almenning m.a. með leiðandi spurningum. f könnuninni sem PSN-samskipti gerði var lögð fram eftirfarandi spurning: „Ertu fylgjandi eða andvig(ur) sölu áfeng- is í matvöruverslunum ef allar gerð- ir áfengis verða þar til sölu, einnig sterkt áfengi?“ Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri SVÞ, segir að þessi spurning sé ósvífin og til þess eins nýtileg að gefa ranga mynd af afstöðu fólks til þessa máls. Hann segir að kannanir sem þeir hafi gert sýni að meirihluti landsmanna sé fylgjandi frjálsri sölu. „Við höfum verið að láta gera kannanir fyrir okkur í nokkur ár og þær hafa alltaf sýnt að meirihlutinn sé fýlgjandi frjálsri sölu. Við höfum bara spurt út í léttvín og bjór enda höfum við ekki áhuga á öðru. Við höfum ekki álitið það vera okkar vandamál hvort að sterkt vín seljist eða ekki.“ Hann segir að forvarnar- samtökin taki það sem sjálfgefið að sala á sterkum vínum verði einnig gefin frjáls verði opnað fyrir létt- vín og bjór þar sem ekki sé hægt að standa undir rekstri ÁTVR með sterkum vínum eingöngu. Þetta sé ekki að öllu leyti rétt því að hingað til hafi ágóði af sölu tóbaks verið notaður til að greiða niður stóran Samningaviðræður um hafrétt- ar- og fiskveiðiályktanir allsherjar- þings S.þ. fara nú fram í New York og er gert ráð fyrir að þær standi yfir til 11. nóvember nk. Botnvörpu- veiðar munu væntanlega koma til umfjöllunar í viðræðum um fisk- veiðiályktunina í þessari viku. Tóm- as H. Heiðar þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins tekur þátt í viðræðunum fyrir Islands hönd. „Niðurstaða allsherjarþingsins fyrir ári síðan var sú að beina því til ríkja og svæðisbundinna fiskveiðistjórn- unarstofnana að bæta stjórnun á botnfiskveiðum, einkum með tilliti til verndunar viðkvæmra vistkerfa hluta af rekstrarkostnaði. Sigurður gagnrýnir einnig fjölmiðlaumfjöll- un um málið og segir að í sumum til- vikum hafi könnunin verið túlkuð sem hrein andstaða fólks við frjálsri sölu en svo sé ekki. „Óskir okkar eru einfaldlega þær að fá léttvín og bjór. Við höfum engan áhuga á því að fara selja sterk vín,“ segir Sigurður. Guðni Björnsson, verkefnisstjóri Fræ sem hefur unnið verkefnavinnu 99........................... Við höfum ekki álitið það vera okkar vandamál hvort að sterkt vín seljist eða ekki fyrir Samstarfið, segir það alls ekki rétt að reynt hafi verið að blekkja fólk með þessari könnun. Hann seg- ir markmið hennar hafa verið að víkka út umræðuna um þetta mál- efni. „Við vitum að sú umræða hef- ur verið í gangi að sterkt áfengi verði að fylgja þessum pakka ef af þessum breytingum verður. Það hefur kom- ið mjög skýrt fram að rekstrarlegur grundvöllur áfengisverslana á veg- um ríkisins, sem mundi eingöngu vera með sterka drykki, gengur ekki upp,“ segir Guðni. Hann segir að vissulega hafi ákveðin forsenda verið gefin í þessari könnun en það hafi verið nauðsynlegt til að gera hafsins. Tillögum um hvers konar hnattrænt bann gegn botnvörpu- veiðum á úthafinu var hins vegar hafnað, ekki síst vegna málflutn- ings Islands,“ segir Tómas og bæt- ir við að fsland hafi beitt sér mjög gegn hvers konar hnattrænum af- skiptum af fiskveiðistjórnun, enda sé hún ýmist málefni einstakra ríkja, eða svæðisbundið málefni að því er úthafsveiðar varðar. „Af ís- lands hálfu hefur hins vegar verið lögð áhersla á að allsherjarþingið láti sig varða hnattræn vandamál á borð við mengun hafsins sem virð- ir engin landamæri og verða aðeins leyst með hnattrænum aðgerðum. sér grein fyrir afstöðu fólks. „Sam- kvæmt þessari skoðanakönnun þá er þjóðfélagið ekki tilbúið að sætta sig við það að sala á sterkum drykkj- um verði gefin frjáls. Þá er spurn- ingin um hvernig á að leysa vilja íslendingar hafa gert sitt Jsland hefur fyrir sitt leyti gert ráð- stafanir til að bæta stjórnun botn- fiskveiða og verndun viðkvæmra vistkerfa hafsins, bæði innan efna- hagslögsögunnar og í gegnum Norð- austur-Atlantshafsfiskveiðinefndina, að því er úthafið varðar. Að því er varðar svæði á úthafinu þar sem ekki eru fyrir hendi svæðisbundnar fiskveiðistjórnunarstofnanir hefur allsherjarþingið lagt áherslu á að þau ríki sem stunda þar fiskveiðar komi slíkum stofnunum á fót og hafi jafn- framt stjórn á veiðum viðkomandi fiskiskipa er sigla undir fána þeirra," segir Tómas og bætir við að ísland þjóðarinnar. Rúmlega helmingur þjóðarinnar vill fá vínin í matvöru- verslanir en ef það er niðurstaðan að sterku vínin fylgi með þá er staðan öðruvísi. Könnunin okkar var að benda á þessa hlið mála“ ■ styðji þessa nálgun eindregið. Smáríkið Palau hefur gefið til kynna að það hyggist leggja fram til- lögu um einhvers konar hnattrænt bann við botnvörpuveiðum í samn- ingaviðræðunum að sögn Tómasar. ,Það vekur athygli að Palau hefur aldrei, hvorki fyrr né síðar, tekið nokkurn þátt i viðræðum um áður- nefndar ályktanir og hið sama á við um Kosta Ríka sem flutti svipaðar til- lögur fyrir ári. Sú staðreynd hlýtur að rýra trúverðugleika málflutnings þessara ríkja og ljóst virðist að þau séu i raun að ganga erinda friðunar- samtaka sem hafa ekki heimild til að taka sjálf þátt í viðræðunum." ■ Vilja banna botnvörpuveiðar á úthafinu Náttúruverndarsamtök hafa enn ogaftur biðlað til Sameinuðu þjóðanna um að setja bann við botnvörpuveiðum á úthafinu og hafafengið smáríkið Palau í lið með sér. íslendingar eru andvígir tillögunni. NEC Símkerfi sérsniðnar heildarlausnir fyrir fyrirtæki og heimili ^ MEC Infrontia ~ símtæki XN120 símstöð ** 3 hliðrænar bæjarllnur 2 x ISDN grunnt. 4 bæjarllnur Tengi fyrir 8 slmtæki, stafræn eða hliðræn Jl 4 stk. XN Vision símtæki ^m\ með 22 hnöppum Símstöð stækkanleg í 2 símtæki og 24 IP síma Fjárfesting sem vex með þér... IMfEC 8lnfrontia símtæki XN120 símstöð 3 hliðrænar bæjarllnur 12 x ISDN grunnt. 4 bæjarlínur Tengi fyrir 16 símtæki, stafræn eða hliðræn 8 stk. XN Vision símtæki með 22 hnöppum IMEC gJP’ Infrontia MjT símtæki XN120 símstöð 3 hliðrænar bæjarllnur 4 x ISDN grunnt. 8 bæjarlínur Tengifyrir 16símtæki, stafræn eða hliðræn 12 stk. XN Vision símtæki með 22 hnöppum »1 DOOlGÍfl 0 0 ÉP' 0 0 Boðleið ehf. Hlíðasmára 8 201 Kópavogi Sími 535 5200 Fax 535 5209 bodleid@bodleid.is Kíktu á úrvalið á heimasíðunni www.bodleid.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.