blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 blaöiö Excel best ann- >C r • X r •• X að arið i roð Excel Aiways, leiguflugfélag sem er í eigu Avion Gro- up, hefur verið valið besta leiguflugfélagið í Bretlandi af lesendum Daily Telegraph. 25 þúsund lesendur tóku þátt í könnuninni og er þetta i annað skiptið í röð sem flugfélag- inu hlotnast þessi heiður. Konur og lýðræði Sigríður Anna Þórðardóttir, um- hverfisráðherra og samstarfsráð- herra Norðurlanda flutti ræðu við setningu ráðstefnunnar Konur og lýðræði í Pétursborg í hðinni viku. í ræðu sinni fjall- aði Sigríður Anna Þórðardóttir meðal annars um launamun kynjanna og samþættingu fjöl- skyldu- og atvinnulífs. Umfjöll- un um fæðingarorlofið vakti mikla athygli sem og frásögn af fyrirætlunum kvenna á Islandi í tilefni af 30 ára afmæli kvennafrídagsins. Þá greindi umhverfisráðherra frá þvf að félagsmálaráðherra hefði áform um að boða til alþjóðlegrar ráð- stefnu á íslandi á næsta ári þar sem karlar ræða jafnréttismál. Islenskir þátttakendur voru 22 frá ólíkum sviðum samfélags- ins, bæði stjórnmálamenn, emb- ættisriienri ö'g fulltrúar frjálsra félagasamtaka. Ráðstefnan var sú fjórða í röðinni og jafnframt sú sfðasta undir yfirskriftinni Konur og lýðræði en sú fyrsta var haldin á íslandi árið 1999. Þátttakendur á ráðstefnunni voru um 600 frá 11 þjóðlöndum og fjölþjóðlegum stofnunum. —r-—.fwQv-— y Ferðamönn- ar um Erlendum ferðamönnum á Is- landi fjölgaði um fimm þúsund í ágúst og september miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Ferðamálaráðs. Samkvæmt þessum tölum hefur töluverð aukning orðið á komu erlendra ferðamanna í september eða 34.619 f stáð 30.900 árið áður. I fréttabláði Samtaka ferða- þjónustunnar kemur þó fram að þrátt fyrir þessa aifluiingu dragast gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum saman um sem nemur 24% fyrstu sex mánuði ársins. Veiðileyfi rjúka út Mikil veiði síðastliðin tvö sumur hefur aukið áhugann á laxveiðum Góð veiði í laxveiðiám síðastliðin tvö ár hefur valdið mikilli þenslu í sölu veiðileyfa. Þetta kemur þvert á spá sem gerð var fyrir nokkrum árum þar sem gert var ráð fyrir mikilli hnignun innan greinarinnar. Nú þegar er orðið uppselt í margar ár og líkur á því að vinsælustu dagarnir verði seld- ir fyrir áramót. Mesta veiði síðan 1975 Samkvæmt Páli Ármanni, fram- kvæmdastjóra Stangveiðifélags Reykjavíkur (SFVR), hefur aukin veiði skapað meiri áhuga á laxveið- um og aukinni eftirspurn. Hann seg- ir að SFVR sé þegar byrjað að selja veiðileyfi í fimm ár í svokallaðri forút- hlutun. „Við erum að selja inná besta tfmabilið, hið svokallaða útlendinga- tímabil sem er svona frá miðjum júlí til ágúst en það er mismunandi eftir ám. Salan hefur gengið mjög vel og er meiri núna en hún var á sama tíma í fyrra. Við erum að koma út úr gríðargóðu sumri þar sem t.d. aflinn í Norðurá tvöfaldaðist.“ Undir þetta tekur Gunnar Jakob Óskarsson hjá Stangveiðifélagi Keflavíkur og seg- ir söluna ívið betri en í fyrra. Hann segir að þeir byrji að selja veiðileyfi í nóvember fyrir næsta ár en þeir hafi fundið fyrir aukningu á þessu Akveðin bjartsýni ríkir hjá söluaðilum veiðileyfa enda aðsóknin og veiðin búin að vera mikil síðastliðin tvö ár ári. „Við erum með eina laxveiðiá og það var gríðarlega góð veiði í henni núna í ár. Mesta veiði síðan 1975 að mig minnir," segir Gunnar. Brjáluð aðsókn Stefán Sigurðsson, sölustjóri innan- lands hjá Laxá, segir að meginástæða fyrir aukningu á sölu veiðileyfa megi rekja til mikillar veiði á síðastliðnum tveim sumrum. „ Það var ofsaveiði í fyrra í fyrsta skipti í mörg ár og það var alveg brjáluð aðsókn og það er brjáluð aðsókn núna. Aðalbyltingin var í fyrra og svo varð þetta sumar ennþá betra sem er bara frábært." Hann segir helsta vandamálið í greininni um þessar mundir vera of hátt gengi íslensku krónunnar sem geri alla sölu til útlendinga erfiða.“ Staðan er björt en hún væri miklu betri ef gjaldeyrinn væri betri. Það sem hjálpar er uppgangur í íslensku samfélagi og menn eru að kaupa veiðileyfi í mun meira mæli. Ef það væri ekki fyrir þennan uppgang og sölu til Islendinga þá væri þetta frek- ar óbjart ástand,“ segir Stefán. ■ Milljarðatjón og ekkert eftirlit Vatnstjón á íslandi talið nema allt að 1,6 milljörðum á ári hverju. Lagnir í nýja Samskipahúsinu fá verðlaun Lagnafélags íslands. Árið 2004 urðu 5.715 bótaskyld vatns- tjón að andvirði eins milljarðs króna á Islandi. Þetta segir Kristján Ottó- son framkvæmdastjóri Lagnafélags íslands. „Þetta eru tölur frá trygginga- félögunum en svo má bæta við 5-600 milljónum 1 tjónum sem ekki eru til- kynnt,“ segir Kristján. „Til samanburð- ar má nefna að tjón af völdum bruna á hverju ári nemur ekki nema um 600 milljónum á ári hverju að meðaltali. Þó fer mun meira fyrir fréttum af brunum en fréttum af vatnstjóni. Það má Varla 'r kvikna í ruslatunnu án þess að það fari í fréttirnar, en hins vegar heyrist ekk- ert af því þegar vatnsrör fer á efstu hæð í blokk til dæmis og skemmir parket á öllum hæðum fyrir neðan. Eldurinn er svo hættulegur, en það er hitaveitan líka.“ Tjón af völdum vatns hefur stað- ið í stað undanfarin ár að sögn Krist- jáns. „Hins vegar er merkilegt, að til er fyrirbæri sem heitir Brunamálastofn- un og er merkileg stofnun sem á full- an rétt á sér, en það er engin stofnun sem fæst við þetta gífurlega tjón sem vatnið veldur á hverju ári. Lagnakerfa- miðstöð Islands er sjálfseignarstofnun sem studd hefur verið af 60 fyrirtækj- um og er samstarfsvettvangur þeirra sem vinna við rannsóknir og fræðslu í lagnaiðnaði, en fengið lítinn stuðning frá hinu opinbera. Opinberi geirinn virðist bara ekki sjá þetta vandamál, og því verður að breyta." Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa veitir viðtöku viðurkenningu Lagnafélags fslands fyrir„lofsvert iagnaverk 2004" úr hendi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns Lagnakerfamiðstöðvar íslands Eftirliti stórlega ábótavant Kristján segir að lagnaefni séu alltaf að batna en fólk verði að passa sig á því að nota rétt efni við réttar aðstæð- ur. „Það eru dæmi um að menn séu að nota efni sem aðeins á að nota í görð- um inní veggjum húsa sinna. Efnið er kanski gott útaf fyrir sig en hentar ekki hvar sem er. Og þá komum við að eftir- litinu," segir Kristján. „ekki er það hjá byggingafulltrúaembættunum því það er allveg steindautt fyrirbæri og bara falskur pappír. Ég myndi því segja að í raun sé ekkert eftirlit á lögnum húsa á neinu stigi. Þeir hjá byggingafulltrúa hafa hvorki mannskap né peninga til þess að geta haft eftitlit með þessum hlutum. Þessir menn gera sitt besta, en þeir komast bara ekki lengra." Að- spurður segist Kristján vilja sjá eftirlit- ið í höndum einkaaðila. Þannig sé það í rafmagnsiðnaðinum. Samskip hlutu viðurkenninguna „lofsvert lagnaverk 2004“ fyrir lagnir í nýja Samskipahúsinu við Kjalarvog. Húsið er engin smásmíði og sem dæmi má nefna að í húsinu eru samtals 65 kílómetrar af pípulögnum. Lagnafé- lag Islands hefur frá árinu 1990 veitt viðurkenningar fyrir lagnaverk í nýbyggingum sem þykja framúrskar- andiíhönnun og uppsetningu. p Olíufélögin selja Gas- félagið Gasfélagið ehf.helsti innflytj- andi á fljótandi gasi og gashylkj- um til landsins hefur verið selt. Olíufélögin Olís, ESSO og Skeljungur áttu fyrirtækið í sameiningu en það hefur verið rekið í núverandi mynd síðan 1995. Kaupendur eru ísmyndir ehf, sem er i eigu Jóns Þ. Jónssonar stjórnarformanns Saxhóls ehf og Arnars Arnars- sonar fýrrverandi framkvæmda- stjóra Gasfélagsins. Kaupend- ur segja að um sé að ræða einkar spennandi tækifæri með miída möguleika enda hefur gasnotkun hér á landi aukist mikið síðustu árin og rekstur fýrirtækisins gengið vel. Jarðskjálfti á Eyjafjarðar- svæði vekur bændur af værum blundi Nokkuð snarpur jarðskjálfti varð á Eyjafjarðarsvæðinu í gær- morgun um þrettán mínútur yfir átta og mældist hann 3,7 á Richter. Skjálftinn fannst víða m.a. á Ólafsfirði þar sem hillur hristust og í Hörgárdal vaknaði maður upp við hann. Upptök skjálftans voru um 11 km norð- austur af Siglufirði samkvæmt mælum veðurstofiinnar. Að sögn Kristlnár Vogtjörð, hjá Eðlisfræðisviði veðurstofunnar, er þetta eklci óeðlileg virkni þó þessi skjálfti sé nokkuð sterkari en venjulega mælist á þessum slóðum. Nokkrir eftirskjálftar ufðu stuttu eftir aðalskjálftann fram eftir morgni sá stærsti rétt undir tveimur á Richter-kvarða. Nokkrir skjálftar hafa mælst á þessu svæði undanfarnar vikur en að sögn Kristínar er það afskaplega eðlilegt því þar liggur velþeldt sprungusvæði sem láti reglulega í sér heyra. Loðnuleit hefst Loðnuleit hófst í gær þegar veiðiskipin, Björg Jónsdóttir frá Húsavík, Guðmundur Ólafur frá Ólafsfirði og skipin Huginn og Álsey frá Vestmannaeyjum lögðu úr höfn. Áætlað leitar- svæði skipanna er fyrir norðan land, vestur í átt að Grænlandi og til austurs djúpt norðaust- ur af Langanesi. Finni skipin loðnu verður Hafrannsóknar- skipið ÁrniEriðriksson sent á svæðið til frekari mælinga. stærri verslun meira úrval frábær tilboð Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði S.565-5970 www.sjonarholl.is SYNCRO Heyrnartœki með gervigreind Afgreiðslutími innan þriggja vikna Bjóðum margar tegundir af sjólfvirkum, stafrœnum heyrnartœkjum Verð fró 47.000 - 170.000 kr fyrir eitt tœki Persónuleg og góð þjónusta ó Akureyrí - IsafirOi - EgilsstöOum Heyrnartœkni Betri heyrn -bœtt lífsgœði www.heyrnartaekni.is Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík • TVyggvabraut 22 600 Akureyri • símí: 568 6880

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.