blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 blaóiö
Fundi Abbas og
Sharons frestað
Fundi Ariels Sharons, forsætisráðherra
Israels, og Mahmud Abbas, leiðtoga Pal-
estínumanna, var frestað til loka mán-
aðarins í gær þar sem ólíklegt þótti að
fundurinn myndi leiða til árangurs.
Leiðtogarnir ætluðu að halda þriðja
fund sinn á árinu í gær en talsmaður
Palestínumanna sagði að ekki hefði
náðst nægur árangur á undirbúnings-
fundum.
I tilkynningu frá skrifstofu Sharons
segir að vonast sé til að hægt verði að
halda fundinn eftir að Abbas kemur
til baka úr heimsókn til George Bush,
Bandaríkjaforseta, þann 20. október.
Þangað til munu undirbúningsnefnd-
ir á beggja vegum reyna að komast að
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínu-
manna. Fundi hans og Ariels Sharon, for-
sætisráðherra fsraels, hefur verið frestað
til loka mánaðarins.
samkomulagi um helstu mál fúndar-
ins svo sem lausn palestínskra fanga,
fyrirkomulagi öryggiseftirUts á Vest-
urbakkanum og mál palestínskra víga-
manna sem eftirlýstir eru í Israel. Þetta
verður fyrsti fundur leiðtoganna síðan
IsraelsmennyfirgáfuGasasvæðið. ■
TISKUVERSLUNIN SMART
ERUM AÐTAKAUPP
HELLING AF NÝJUM VÖRUM
Grímsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 106
600 Akureyri • Sími 588 8050. 588 8488.462 4010
email: smartgina@simnet.is
Áskriftarsími 5
■nyggðu
þér
eintak
á næsta
blaðsölu-
stað
Leiðbeiningar
um lagningu
gólfefna,
og val á
lýsingu.
Hönnun
sumarhúsa
og innlit
í falleg
sumarhús.
Grænmeti,
stafafura
og lúpína.
Neyðaraðstoð berst
seint og illa
Yfirvöld óttast að allt að 40.000 manns hafifarist í hamförunum
um helgina. Enn hafa björgunarsveitir ekki náð til afskekktraþorpa.
Óttast að allt að fjórar milljónir verði heimilislausar. Gripdeildir
brjótast út víða.
Yfirvöld í Pakistan óttast að allt að
40.000 manns hafi farist f jarðskjálft-
anum álaugardag. Háttsettur embætt-
ismaður sagði að á milli 30 og 40.000
manns hefði farist í fjallahéruðun-
um í norðausturhluta landsins og um
60.000 manns til viðbótar slasast. Bú-
ist er við að tala látinna muni hækka
talsvert enda hafa björgunarsveitir
ekki enn náð til margra afskekktra
þorpa. Þá hafa nærri 700 dauðsföll
verið tilkynnt á Indlandi auk þess
sem margir fórust í Afganistan.
Allt að fjórar milljónir heimilislausar
Alþjóðlegar hjálparstofnanir telja að
yfir 120.000 manns séu í brýnni þörf
fyrir húsaskjól og allt að fjórar millj-
ónir verði heimilislausar. Skortur er
á matvælum, lyfjum og læknisaðstoð.
Landsmenn eru margir hverjir reiðir
og sárir vegna þess hve hægt og illa
gengur að koma nauðstöddum til
hjálpar og sumsstaðar hafa átt sér
stað rán og gripdeildir í kjölfar ham-
faranna. Mikilvægir vegir eru margir
ófærir vegna skriðufalla, orkustöðv-
ar og vatnsveitur eru víða óstarfhæf-
ar og sjúkrahús og skólar ónýtir. „Á
Það stendur varla steinn yfir steini lengur
í bænum Balakot eftir jarðskjálftann
sem reið yfir norðausturhluta Pakistan á
laugardag.
þeim svæðum sem eru verst leikin
hefur heil kynslóð glatast,“ sagði
Shaukat Sultan, talsmaður pakist-
anska hersins í viðtali við frönsku
fréttastofuna AFP. Hann sagði að
þau svæði sem hefðu farið verst út
úr skjálftanum væru í nágrenni borg-
arinnar Muzaffarabad í pakistanska
hluta Kasmírhéraðs.
Grafið í rústum með berum höndum
Víða gróf fólk með berum höndum
í rústunum í von um að finna vini
eða ættingja. Angist greip um sig og
sumsstaðar upphófust rán og grip-
deildir þegar neyðaraðstoð lét standa
ásér.
„Við lifðum af jarðskjálftann en nú
áttum við okkur á því að við mun-
um deyja úr hungri og kulda,“ sagði
Mohammad Zaheer, íbúi í bænum
Balakot sem var mjög illa leikinn í
hamförunum. I Muzaffarabad voru
matvæli, tjöld, teppi og lyf rifin út
úr hertrukkum stuttu eftir að þeir
komu til borgarinnar. Annarsstaðar
í borginni braust fólk inn á bensín-
stöðvar til að útvega eldsneyti til að
geta eldað og haldið á sér hita.
I gær tókst að opna fjallvegi til
Muzaffarabad og Balakot sem lokast
höfðu vegna skriðufalla ogliðkaðiþað
mjög fyrir neyðaraðstoð. Alþjóðlegar
björgunarsveitir með leitarhunda og
sérhæfðan leitarútbúnað eru komnar
til landsins og bráðabirgðasjúkrahús-
um hefur verið komið upp á hamfara-
svæðunum. Fjárhagsaðstoð berst
víða að meðal annars hafa Bandarík-
in veitt 50 milljónum Bandaríkjadala
til aðstoðar, Heimsbankinn 20 millj-
ónum dala og Þróunarbanki Asíu hef-
ur heitið að útvega 10 milljónir dala.
Amazon-regnskógarnir:
Verstu þurrkar í áratugi
Brasilískur veiðimaður rær meðfram bökkum Parana de Manaquiri árinnar. Fjöldi
dauðra fiska er á bökkum árinnar vegna mikilla þurrka á svæðinu.
Mestu þurrkar í meira en fjóra
áratugi hafa valdið miklu tjóni á
stærstu regnskógum heims, Amaz-
on-skóginum í Suður Ameríku.
Skógareldar hafa kviknað, drykkj-
arvatn mengast og fiskar drepist í
milljónatali vegna þess að ár hafa
þurrkast upp. Neyðarástandi hefur
verið lýst yfir í 16 sveitarfélögum og
svæðinu verið lokað eftir tveggja
mánaða þurrk. Sumir vísindamenn
kenna hækkandi hitastigi sjávar
sem er afleiðing hlýnunar jarðar
um ástandið. Hlýnun jarðar er einn-
ig talin eiga þátt í því að óvenjumarg-
ir mannskæðir fellibyljir hafa geng-
ið yfir suðurströnd Bandaríkjanna
og Mið Ameríku að undanförnu.
Einnig er talið að eyðing skóga
eigi þátt í þurrkunum vegna þess
að með því að fella tré minnkar
raki í loftinu og sólarljós á greiðari
aðgang að jörðinni. Aðrir vísinda-
menn segja að miklir þurrkar séu
eðlilegir og hafi komið í bylgjum áð-
ur en hlýnun jarðar hófst. g
Marokkósk yfirvöld stemma stigu við flœði flóttamanna:
Flóttamenn sendir til baka
Yfirvöld í Marokkó hafa gripið til þess
ráðs að senda til baka hundruð Afríku-
búa sem leggja leið sína til landsins í
því skyni að reyna að komast þaðan til
Evrópu. Sumir þeirra sem sendir voru
til baka sögðust ætla að reyna aftur að
komast til Evrópu. Rútur og flugvélar
eru notaðar til að snúa flóttamönnun-
um til baka. Ibúar fátækra Afríkuríkja
sem hggja sunnan Sahara og á vestur-
strönd Afríku hafa streymt til Marokkó
að undanförnu og reynt að komast það-
an inn á spænskt yfirráðasvæði í gegn-
um borgirnar Ceuta og Melilla. Fjórtán
flóttamenn hafa látið lífið í tilraunum
til að komast yfir landamæragirðingar
og stórum hópum flóttamanna hefur
verið vísað til baka af spænskum og
marokkóskum hermönnum. Yfirvöld í
Madrid hafa verið gagnrýnd harkalega
heima fyrir vegna frásagna af harka-
lepri mpðferð landamæralöpreplu á Afrískir flóttamenn sem vildu freista þess að komast til Evrópu gegnum spænsk yfirráða-
fóUci sem komst yfir landamærim ■ svæði ‘Marokkó bíöa Þess að verða fluttir tMsíns heima'