blaðið - 11.10.2005, Page 10

blaðið - 11.10.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 blaðið Bandaríkjamenn setjafram kröfur sínar fyrir fund WTO: Japan og ESB dragi úr niðurgreiðslum í landbúnaði sú Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna vill að Evrópusambandið og Japan dragi úr niður- greiðslum til landbúnaðar. Rob Portman, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, hvatti Evrópusam- bandið og Japan til að draga úr land- búnaðarstyrkjum sínum um 8o% og sagði að Bandaríkin væru reiðubúin draga úr niðurgreiðslum um 6o% á næstu fimm árum. „Ég held að það sé ekki óréttlátt að fara fram á það við lönd sem nið- urgreiða meira en við að þau reyni að minnsta kosti að koma til móts við okkur,“ sagði Portman við frétta- menn áður en fundur Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar (WTO) hófst í Zurich í Sviss í gær. Á fundi með fréttamönnum kynnti Portman áætlun til 15 ára um að losa um höft í landbúnaðarviðskiptum á heims- vísu. Hefur óeðlileg áhrif á viðskipti með landbúnaðarafurðir Evrópusambandið og Japan eyða mun meira fé í aðstoð við bændur en Bandaríkjamenn og hafa gagn- rýnendur sagt að þetta hafi óeðlileg áhrif á viðskipti með landbúnaðar- afurðir i heiminum. Portman sagði að niðurgreiðslur frá Brussel væru þrisvar sinnum hærri en þær sem bandarísk stjórnvöld greiddu og jafnvel þó að dregið yrði úr þeim um 80% myndu þær vera tvisvar sinnum hærri en í Bandaríkjunum. Portman sagði ennfremur nauðsyn- legt að Evrópusambandið og Japan kæmu til móts við kröfur Bandaríkj- anna ef bandarískir bændur ættu að fást til að sætta sig við að dregið verði úr niðurgreiðslum. Fjallað verður um niðufellingu tolla, styrkja, niðurgreiðslna og annarra viðskiptahafta í fundarlotu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem áætlað er að ljúki fyrir áramót. Tilgangur fundarins í Zurich er að undirbúa aðalfund stofnunarinnar í Hong Kong í desember. Þar er von- ast til að hægt verði að skrifa undir samkomulag um aukið frelsi í við- skiptum með landbúnaðarafurðir.B a stigaganginn Falleg aðkoma aö heimilinu skiptir máli. Teppi er slitsterkt gólfefni sem auðvelt er að þrífa, hljóðeinangrandi og hlýlegt. Við seljum vönduð og endingargóð teppi sem eru ofnæmisprófuö og á góðu verði. | ’í- Lögregluþjónar í New Orleans: Kærðir fyrir líkamsárás Þrír lögregluþjónar í New Orleans eiga yfir höfði sér kæru fyrir lík- amsárás eftir að myndband náðist af þeim þar sem tveir þeirra gengu í skrokk á 64 ára gömlum manni sem grunaður var um að vera und- ir áhrifum á almannafæri. Þriðji lögregluþjónninn reyndi að hindra myndatökumann AP-fréttastof- unnar í að kvikmynda atburðinn. Eftir að hafa verið handteknir og yfirheyrðir var lögregluþjónunum þremur vikið tímabundið úr starfi á sunnudag og verður málið rannsak- að sem glæpamál í kjölfarið. Lögregl- an í New Orleans sem hefur lengi legið undir ámæli vegna ofbeldis og spillingar þarf nú að takast á við eft- irköst fellibylsins Katrínar. Á upptökunni má sjá lögregluþjón berja hinn grunaða, Robert Davis, að minnsta kosti fjórum sinnum í höfuðið fyrir utan bar í franska hverfinu á laugardag. Annar lag- anna vörður sparkaði í Davis og sló hann tvisvar. Einn lögregluþjónn- inn skipaði myndatökumanni AP- fréttastofunnar að hætta að mynda. Þegar myndatökumaðurinn sýndi blaðamannaskilríki sín réðst lög- regluþjónninn á hann. ■ Róstursamt í Darfur-héraði í Súdan: Friðargæslulióum Afríkusambands- ms Uppreisnarmenn í Darfur-neraðT"í Súdan hafa sleppt 38 friðargæslulið- um Afríkusambandsins sem þeir rændu á sunnudag. Afríkusamband- ið hafði áður kennt aðskilnaðarhópi úr Réttlætis- og jafnréttishreyfing- unni um að hafa rænt friðargæslulið- unum sem vinna að því að koma á vopnahléi í héraðinu. Flokksbrotið neitar ásökununum. Kamerúnmað- ur sem var í forsvari fyrir hermenn Afríkusambandsins staðfesti að hann og túlkur hans hefðu verið frelsaðir eftir að skotbardagi braust út á milli tveggja hópa uppreisnar- manna. Afríkusambandið er með um 6000 friðargæsluliða í Darfur og hafa þeir það hlutverk að sjá til þess að vopnahlé sé virt. Afríkusambandið hefur gagnrýnt uppreisnarmenn og stjórnvöld landsins harkalega á und- anförnum vikum í kjölfar þess að of- beldi í héraðinu hefur stigmagnast. Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hótaði að neyðaraðstoð Kofi Annan, aðalritari Samein- uðu þjóðanna, hótaði að hætt yrði tímabundið við alla neyð- araðstoð í Darfur-héraði eftir gíslatökuna á sunnudag. í Darfur-héraði kynni að vera hætt tímabundið í kjölfar gíslatökunnar á sunnudag sem væri algerlega óá- sættanleg. ■ Innflutningur fugla fra Tyrklandi bannaður Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins bannaði í gær allan inn- flutning á lifandi fuglum og fugla- kjöti frá Tyrklandi eftir að yfirvöld þar í landi staðfestu að fuglaflensa hefði greinst í fuglum þar. Tyrknesk- ir sérfræðingar reyndu að draga úr ótta fólks við sjúkdóminn sem hef- ur valdið dauða milljóna fugla og 65 manns í Asíu síðan 2003. Fram- kvæmdastjórnin sagðist ekki hafa gripið til neinna ráðstafanna vegna gruns um að fuglaflensa hefði bor- ist út í Rúmeníu. Niðurstöður rannsókna á fugla- flensutilfellum í Rúmeníu og Tyrk- landi ættu að liggja fyrir á morgun, miðvikudag, og mun Framkvæmda- stjórnin bregðast við i samræmi við þær. Yfirvöld í Úkraínu bönnuðu inn- flutning á fuglakjöti frá Rúmeníu og Tyrklandi í gær eftir að staðfest var að fuglaflensa hefði greinst í löndun- um. Áður höfðu úkraínsk yfirvöld bannað innflutning á fuglakjöti frá Rússlandi, Kasakstan, Suður-Kóreu og Japan i kjölfar fuglaflensutilfella i löndunum. ■ Alla virka daga HÁDEGISVER0ARTILBOÐ Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborðí Frá 11.00-13.30 Tilhoöin giida ekki með heimsendingu Sóltún 3 S 562 9060 Bæjarlind 14-16 S 564 6111 m m tho I Iensh matstofa

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.