blaðið - 11.10.2005, Qupperneq 27
blaðið ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005
KVIKMYNDIR I 35'
400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA i SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
STftRSTA KVIKMTNDAHÚS LANDSINS >
■S. 530 1919-
www.haskoiabio.is
HÁGATORGt
Riisscll Crowe Renee Zelrweyer
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomn allra tíma!
THE 40 YEAR-OLD
Cínderella Man
Oskarsverðlaunahafarmr Russell Crowe og
Renée Zellweger tara a kostum
í sterkustu mynd ársins.
i m
rrHon<;tf(h»;oflan ir hiVl
j)á til nA staldrn viA!
riTnShstn l>i ellan crhA f
|ȇ til aO staldra vid!
ALFABAKKI
KEFLAVIK
KRINGLAN
CINDERELLA MAN
THE 40 YEAR OLD VIRGIN
THE 40 YEAR OLD VIRCIN VIP
GOAL
MUST LOVE DOGS
VALIANT fsl. tal
SKYHIGH
CHARLIE & THE CHOCOIATE FACTORY
STRÁKARNIR OKKAR
RACING STRIPES fsl. tol
KL 5-8-10.50
KL 5.30-8-10.30
KL 5.30-8-10.30
KL 6-8.30-10.50
KL 6-8.15-10.30
KL3.40
KL3.50
KL 6
KL 3.45-6-8.15
KL 10.30
KL3.50
B.l. 14 THE 40 YEAR OLD VIRGIN
B.1.14 GOAl
AKUREYRI
CINDERELLA MAN
GOAL
l l-14 THE 40 YEAR OLD VIRGIN
KL8 THE 40 YEAR 0LD VIRGIN
KL8 G0AL
THECAVE
VAUANT fsl. tal
VALIANT enskt tol
CHARLIE t THE CHOCOLATE FACTORY
KL 5.30-8-10.30 8J.14
KL 8-10.30
KL 10.30 B.1.16
KL6
KL8
KL5.45
RINGLAN ( 588 0800 C.
AKUREYRlC 461 4666
KL.8
KL.8
KL. 10.15
KEFLAVIK C 42) 1170
CINDERELLA MAN
MUSTLOVEDOGS
CHARUE & THE CHOCOLATE FACTORY
STRÁKARNIR OKKAR
KL 5.30-8.30-10
KL 6-8-10.10
KL 5.45-8-10.15
KL 6-8-10
REYKJAVIK INTERNATIONAL FILM FESTIVAL
KINGSGAME KL 5.40-10.10
B.l. 14 ára
B.l. 14 ára
Alþjóðlegu
kvikmynda-
hátíðinni lýkur
Dauði herra Lazarescus
eftir Cristi Puiu valin uppgötvun ársins.
Ilok kvikmyndahálíðar var
kosin sigurmynd og að sögn
dómnefndar var valið gífur-
lega erfitt enda var mikill fjöldi af
kvikmyndum í hæsta gæðaflokki á
hátíðinni. Dauði herra Lazarescus
eftir Cristi Puiu var valin uppgötv-
un ársins á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík árið 2005. Sigur-
myndin samtvinnar samfélagslega
ádeilu og vangaveltur um alþjóðlegt
þema. Hún samtvinnar blákalda
hreinskilni og tilfinningu fyrir
hinu fáránlega með stórkostlegum
árangri. Með mögnuðu raunsæi
og nákvæmni verður myndin að
ógleymanlegri myndlíkingu.
Myndin Heilaga stúlkan fær hrós
Dómnefndin hrósaði einnig sérstak-
lega kvikmyndinni Heilaga stúlkan
(La Nina Santa) eftir Lucreciu Mart-
el, fyrir einstaka persónulega sýn og
sterka tilfinningu fyrir formgerð.
Formaður dómnefndar var breski
leikstjórinn Pawel Pawlikowski en
hann vann fyrr 1 ár bresku BAFTA
verðlaunin fyrir mynd sína My
Summer of Love sem var sýnd á
hátíðinni. Aðrir í dómnefnd voru
kvikmyndagagnrýnandinn Dag
Södtholt sem kom á hátíðina á veg-
um alþjóðlegu gagnrýnendasamtak-
anna FIPRESCI og Kristín Jóhann-
esdóttir leikstjóri og skólameistari
Kvikmyndaskóla íslands.
Aðstandendur hátíðarinnar
mjög ánægðir með viðtökur
Aðstandendur hátíðarinnar eru
mjög ánægðir með viðtökur áhorf-
enda sem þeir segja hreint út sagt
frábærar. Uppselt var á margar sýn-
ingar og sætanýting um 76% sem er
mjög gott. Þátttaka áhorfenda hefur
hvatt aðstandendur hátíðarinna til
dáða svo stefnt er að því að hafa enn
betri hátíð á næsta ári. ■
Ryan Adams and
the Cardinals,
Jacksonsville city lights: ★★★★
Kántrífyrir þá sem hata kántrí
Þegar Ryan Adams yfirgaf hljóm-
sveitina Whiskeytown fyrir sex
.árum og gaf út-plötuna Heartbrea-
ker reiknuðu flestir með því að ný
súperstjarna væri fædd. Hann
skaust upp á stjörnuhimininn
- átti meira að segja Hollywood-
leikkonuna Winonu Ryder fyrir
kærustu - og var fremstur í flokki
bandarískra tónlistarmanna á borð
við Jeff Tweedy sem kenndu sig við
svokallað „alternatívt kántrí".
En svo liðu nokkur ár og augljóst
að ný súperstjarna var ekki fædd.
Á meðan Adams hóf glundroða-
kennda leit að sjálfum sér þar sem
hann reyndi ýmist að umbreytast í
Van Morrison (Gold, 2001), Strokes
(Rock and roll, 2003) eða Jeff Buckl-
ey (Love is hell, 2004) gaf Jeff Twee-
dy út hvert meistarastykkið á fætur
öðru með hljómsveitinni Wilco.
Listamaðurinn Ryan Adams vissi
augljóslega ekki hvað hann vildi
verða þegar hann yrði stór.
En í ár hefur hann aftur vakið
verðskuldaða athygli sem senni-
lega hefði ekki tekist án hjálpar
hinnar frábæru hljómsveitar The
Gardinals. Fyrst-lék hún með hon—
um á hinni stórfínu Cold roses
sem út kom í maí og núna, fimm
mánuðum síðar, leikur hljómsveit-
in með Adams á Jacksonville city
lights, sem er hans fyrsta raunveru-
lega kántríplata.
Kántríáhrifin hafa að vísu alltaf
verið augljós á öllum plötum Ad-
ams en aldrei hefur hann gengið
alla leið eins og núna. Þetta er al-
vöru kántrítónlist sem alls ekki má
rugla saman við þá ofurtilfinninga-
sömu og óverpródúseruðu kántr-
ítónlist sem menn eins og Garth
Brooks hafa ælt uppúr sér undan-
farna áratugi.
Eins og venjulega vitnar Adams
vel og skilmerkilega í alla þá tónlist-
armenn sem hafa haft áhrif á hann
og á nýju plötunni eru það Gram
Parsons og Hank Williams sem
fylla hann andagift. Líkt og með þá
félaga er Adams vonlaus rómantí-
ker og á nýju plötunni syngur hann
um óendurgoldna ást og hér um bil
ekkert annað. Lagatitlar eins og ~
One more kiss before I go, My he-
art is broken, Don’t fail me now og
Dear John (dúett með Noruh Jones)
segja í raun allt sem segja þarf. Ad-
ams er í ástarsorg og maður með
rödd eins og hann á ekki erfitt með
að koma depurðinni til skila.
Jacksonville city lights er vita-
skuld engin frumleg, stórbrotin og
mikilvæg tónlistarleg yfirlýsing en
það er sennilega ekki lengur mark- w
miðið hjá Ryan Adams. Þó hann
verði aldrei súperstjarna er Adams
- á góðum degi - einn af betri laga-
höfundum dagsins í dag. Og núna
hefur hann einfaldlega gefið út lát-
lausa og hlýlega kántríplötu sem
kántrípjúristar, og líka þeir sem
hata kántrí, geta haft gaman af.
Jón Knútur Ásmundsson
Veislunni lokið í bili
Pað kemur án efa upp hálfgerð
tómleikatilfinning að Alþjóð-
lega kvikmyndahátíðin sé
að enda komin enda var um hreina
veislu að ræða fyrir kvikmynda-
áhugafólk og margir eru þegar orðn-
ir spenntir fyrir hátíðinni á næsta
ári. Það er vel við hæfi að nefna
eina þeirra mynda sem í boði var
en það er heimildarmyndin Fædd í
vændi (Born into Brothels). Myndin
er heimildarmynd sem fjallar um
börn vændiskvenna í Kalkútta á
Indlandi. Áhorfendur tóku á áhrifa-
ríkan hátt þátt í lífi barna sem fædd
voru inn í skelfilegar aðstæður. Til
þess að fá sem besta sýn á líf barn-
anna tók leikstjórinn þátt í lífi þeirra
og kenndi þeim ljósmyndun meðan
hún dvaldist með þeim. Þannig upp-
lifði leikstjórinn að veraþátttakandi
I lífi þeirra en ekki einungis sem
áhorfandi heldur var um að ræða
samstarf hennar ogbarnanna. Börn-
in tóku þannig þátt í að gera efni í
myndina því ljósmyndir þeirra voru
stór þáttur í kvikmyndinni. Leik-
stjórinn náði þannig sterkum tengsl-
um við börnin þar sem daglegt líf
þeirra einkennist af hræðslu og
örvæntingu. Dvöl hennar var mjög
áhrifamikil og sést það í myndinni
þar sem hún berst fyrir því að koma
börnunum í skóla og á framfæri í
heimi ljósmyndanna. Myndin kom
að mörgu leyti á óvart því þrátt fyr-
ir skelfilegan veruleika sýndi hún á
einstakan hátt lífsgleði barnanna og
baráttuvilja þeirra. ■
sara @vbl.is