blaðið - 17.10.2005, Qupperneq 12
12 I VEIÐI
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaAÍÖ
Leiðinlegt vedurfar bjargaði rjúpunni
Rjúpnaveiðin byrjaði aftur á laugardaginn eftir tveggja ára hlé. Fjölmargir veiðimenn héldu til veiða um allt land.
Gera má ráð fyrir að nokkur þúsund
veiðimenn hafi haldið til veiða víða
um land nú um helgina. Reyndar
setti slæmt veður og slæm veðurspá
strik í reikninginn sem hefur vænt-
anlega orðið til þess að margir héldu
sig heima.
Skotveiðimenn sem Blaðið ræddi
við á Akranesi og Borgarnesi fengu
eitthvað af fugli en margir fóru ekki
fyrr en i gærmorgun. Einn sem fór
vestur í Dali og út á Mýrar fékk átta
rjúpur.
„Það er aðalmálið að komast á
rjúpu og veiða hóflega, aflatölur
skipta engu máli lengur fyrir veiði-
menn. Menn eru að ná sér í jóla-
matinn, 10-15 rjúpur og fá góðan
göngutúr," sagði skotveiðimaður á
Snæfellsnesi sem Blaðið ræddi við.
Hann og veiðifélagi hans höfðu geng-
ið lengi án árangurs en sögðu að
það skipti engu máli - innan tíðar
myndu þeir fá eitthvað.
Misjafnar aflatölur
Blaðið heyrði í veiðimönnum víða
um land og sögurnar voru misjafn-
ar mjög. Flestir höfðu þó náð í eina
og eina rjúpu.
„Það var fullt af liði þar sem ég
var í nágrenni við Hvammstanga,
ég fékk nokkra fugla, en rjúpan var
styggsagði Hörður Gylfason, eftir
fyrsta daginn sem mátti skjóta.
„Ég er búinn að heyra í mörgum
veiðimönnum í morgun víða um
land og flestir eru með sömu sög-
una, rjúpnaveiðin gengur rólega,“
sagði Árni Halldórsson á Hauganesi
sem ekki fór á rjúpu fyrsta daginn.
„Aðstæður eru ekki góðar en það
er maður við mann í Kötlufjalli
hérna fyrir ofan en þeir fá víst lítið.
Það voru rosalega margir sem fóru
til rjúpna í dag. I gær var töluverður
snjór hérna en hann hefur tekið mik-
ið upp í nótt,“ sagði Árni ennfremur
sem ætlaði á gæsaveiði í Skagafirði
ígær.
Erfitt var að athafna sig fyrir aust-
an því veðurfar var slæmt og mikil
rigning.
Margir skotveiðimenn sem höfðu
samband við Blaðið sögðu að það
væri orðið erfitt að átta sig á því hvar
mætti skjóta lengur, svo mörg svæði
væru lokuð fyrir veiðimenn.
„Ég er búinn að fara víða en alls
staðar er lokað þar sem mátti skjóta
áður,“ sagði einn sem var á ferðinni
fyrir norðan.
Eftir þriggja ára bann var rjúpnaveiði leyfð á ný nú um helgina. Veðurguðirnir tóku ekk-
ert tillit til veiðimanna og vegna þessa héldu fjölmargir veiðimenn sig heima.
VARAHLUT AVERSLUN
kistufell@kistufell.com
Tangarhöfða 13 Sími 577 1313
Spyrnur og stýrishlutir í flestar geröir bíla
Rjúpnaveiðimenn þurfa oft að hafa mikið fyrir því að finna veiðibráðina og flestir geta
sagt sögur af langri göngu á hæstu tinda í leit að bráð. Þetta er þó ekki algilt eins og
myndin hér að ofan sýnir. Þessar rjúpur sátu og horfðu á veiðimenn þar sem þeir voru
við bíl sinn að gera sig klára fyrir veiði dagsins.
Óskað eftir upplýsing-
um um heiðagœs
Nú um helgina voru heiðagæsir tald-
ar á Bretlandi. Til að meta stærð
stofnsins er mikilvægt að vita hvort
eitthvað verulegt magn af gæsum
sé enn hér á landi svo unnt sé að
taka það með í reikninginn. Því er
óskað eftir því að veiðimenn sem
verða varir við heiðagæsir á næstu
dögum láti af því vita. Gott væri að
vita hvar menn sáu gæsir, hvenær og
hve margar menn telja að þær hafi
verið. Upplýsingarnar verða teknar
saman og sendar talningaraðilum á
Bretlandi sem eru Wildfowl & Wet-
lands Trust. Upplýsingar má senda
á arnor@vst.is.
Sigurður yngri með pabba sínum Ólafi Erni Jónssyni, afanum Sigurði G Steinþórssyni og langafanum Ólafi J. Hjartarsyni með morgun-
veiðina úr Laxá á Skógarströnd. Sigurður yngri veiddi mariulaxinn sinn í ferðinni, fimm punda lax.
Eystri Rangá:
Gaf yfir fjögur
þúsund laxa i sumar
Góðu sumri er lokið í stangveiðinni
en heildarlaxveiðin yfir landið voru
um 54 þúsund fiskar. Segja má að
vonbrigði sumarsins séu að 98% af
veiddum laxi er eins árs fiskur og
því hefur verið erfitt að ná í klakfisk
í mörgum veiðiám eins og Stóru-
Laxá í Hreppum. Þó hefur eitthvað
náðst í klakið þar.
„Við fengum laxa í Hrútafjarðará
en það var mikið vatn í ánni þegar
við drógum á. Það er víða fiskur í
henni,“ sagði Þröstur Elliðason leigu-
taki árinnar en tveggja ára laxinn er
víða í mjög litlu magni í veiðiánum.
Lokatölur úr Laxá í Leirársveit
voru 1.286 laxar og veiðimenn sem
voru þar undir það síðasta sögðu
mikið vera af fisld í henni.
Ennþá veiddur sjóbirtingur
Laxá í Kjós gaf 1.545 laxa og veiði-
menn voru að veiða sjóbirtinga og
laxa undir það síðasta. Andakílsá
endaði í 230 löxum og Grímsá gaf
1.486 laxa en ennþá er veiddur sjó-
birtingur í henni. Veiðimenn hófu
veiðiskapinn á sjóbirtingi á dögun-
um. Gaman verður að sjá hvernig sú
veiði gengur en oft gengur töluvert
af sjóbirtingi í ánni og veiðist neðar-
lega í henni.
„Veiðiskapurinn gekk rólega undir
það síðasta enda kalt og fiskurinn
tók illa,“ sagði Ingvar Ingvarsson á
Múlastöðum, en Flókadalsá endaði í
410 löxum. Þverá og Kjarrá enduðu í
4.151 löxum, sem er meiriháttar, en
þær misstu toppsætið fyrir fáum
dögum og Eystri-Rangá er orðin
efsta laxveiðiáin. Áin endaði í 4.222
löxum. Norðurá endaði 3.138 löxum
og Gljúfurá bætti sig verulega á milli
ára en áin gaf 255 laxa.
„Við enduðum 11.917 löxum og það
er gott. Það var mikið af fiski í ánni
þegar við hættum en laxinn hefði
mátt taka betur,“ sagði Ingvi Hrafn
Jónsson við Langá á Mýrum er loka-
tölurnar lágu fyrir.
Hítará endaði í 504 löxum og Haf-
fjarðará gaf 1.291 lax, Straumfjarð-
ará gaf 645 laxa og Vatnasvæði Lýsu
halaði inn nærri 300 löxum. Miðá
í Dölum gaf 260-265 laxa og Laxá í
Dölum endaði í 1.885 löxum, sem er
miklu betra en fyrir ári síðan.
Blanda gaf 1.620 laxa og Laxá á
Ásum endaði í 703 löxum. Víðidalsá
gaf 1.730 laxa, Hofsá í Vopnafirði
gaf 1.955 laxa og Selá gaf 2.318 laxa.
Breiðdalsá gaf 814 laxa en alls veidd-
ust 2.665 fiskar í ánni þetta sumarið.
Leirvogsá gaf 744 laxa á tvær stangir
sem er mjög gott.
Það var víða metveiði í laxveiðián-
um og því má fullyrða að veiðimenn
séu almennt hressir með sumarið.