blaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 26

blaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 26
34 I KVIKMYNDIR MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaðÍA 1 HE ***•• r ' DESCENT, * * * * * ★*** bX t6óro AUS UUU FYSK VIÐKVAMA] STT ^------- .Skenuntileg gYÍntýnunyad Sýnd kl. 4 m/islensku tol Mtioverð 450 b. www.laugarasbio.is , 400 kr. í bíö! Gildlr á allar sýnlngar merktar með rauðu Sýndkl. 5.50,8 og 10.10 aL16ára Sýndkl. 8 STEALTH Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 B.i. 14 ðra Sýnd kl. 8 og 10.30 Bi. 16 ðra urd. r. Sýndkl. 6og10B.L14ára Sýnd kl. 6 StealU. Rfld Eye Transporter II A History of Violonco kl. 5.45 kl.6 kl. 8 og 10 kl. 8 og 10 HUCSADU STÚRT Frá framlelðendum The Professlonal og La Femme Nlkita Fðr beint á topplnn i USA t* _ . Ari. Sá besti í bransanum STEALTH Sýnd kl. 4 í þrividd Sýnd kl. 4 fSLENSKT TAL Sýnd kl. 3.40 Miðaverð 450 kr. AW MvM/AWiA GÖLDROTT GAMANWYNDÍ Fleiri titlar á Októberfest Níu myndir hafa verið staðfestir til viðbótar á Októberfest sem fram fer dagana 26. október -14. nóvemb- er í Háskólabíói og Regnboganum. Myndirnar koma hvaðanæva að og dreifast í meginflokka hátíðarinn- ar en eiga það sameiginlegt að vera nýjar og að hafa farið sigurför um erlendar hátíðir nýverið og fengið lof gagnrýnenda. Sumar eru svo splunkunýjar að þær hafa varla kom- ið út áður annars staðar. Ein kemur frá Finnlandi, önnur frá Sviþjóð og enn önnur frá Mexíkó. í aðalhlut- verkum myndanna má finna kemp- ur á borð við Gael Garcia Bernal, A1 Pacino, Joan Allen, William Hurt og Jeremy Irons sem og fjöldann allan af manneskjum sem kalla sig „Rin- gers“ og lifa fyrir Lord of the Rings sögurnar og eyða mestum tíma sín- um í að hittast á samkomum til að dásama þær, yfirleitt klæddir eins og mismunandi verur úr bókunum. Enn á eftir að tilkynna fleiri myndir og gesti, þar á meðal opnunarmynd- ina, og verður það gert á allra næstu dögum. Minnt skal á að 10 mynda passar, sem veita afslátt og forgang, verða seldir 22. október á heimasíð- unni http://www.icelandfilmfesti- val.is og í Skífunni á Laugavegi. Sérstök forsala fyrir MasterCard korthafa verður daginn áður, 21. okt- óber. Myndirnar níu eru: Frozen Land - eftir Aku Louhimies sýnd í heimsflokknum (Finnland - 130 mín). Frábær mynd frá Finn- landi um hæfileikaríkt ungt fólk sem tekur rangar ákvarðanir í asna- skap með skelfilegum afleiðingum. Hip Hip Hora! (The Ketchup Ef- fect) - eftir Teresa Fabik sýnd í heimsflokknum (Sweden/Finland - 90 mín). Besta mynd frá Norðurlönd- um um ungt fólk síðan Fucking Am- al kom út. 13 ára stelpa drekkur yfir sig í partýi og sóðamyndir af henni birtast í kjölfarið á netinu. Hún er stimpluð hóra og drusla í skólanum sínum og tilveran hrynur. The King - eftir James Marsh sýnd í Ameríkuflokknum (USA/UK -105 mín). íslandsvinurinn og stórleik- arinn Gael Garcia Bernal sýnir hér á sér nýjar hliðar í hlutverki sem á eftir að vekja umtal og mismunandi viðbrögð. Eftir höfund Monster’s Ball og Birth. The Merchant of Venice - eftir Mi- chael Radford sýnd í Ameríkuflokkn- um (USA - 138 mín). Leikstjóri II Postino smalar hér saman helstu stórleikurum samtímans til að tak- ast á við eitt besta verk Shakespeare og útkoman er frábær kvikmynd. On a clear day - eftir Gaby Dellal sýnd í heimsflokknum (UK - 98 mín). Splunkuný perla frá Englandi sem sló á gegn í Sundance siðastlið- inn janúar og gagnrýnendur hafa líkt við The Full Monty. Ringers: Lord of the fans - eftir Carlene Cordova sýnd í heimilda- myndaflokknum (USA - 97mín). Hér er kafað ofan í þennan furðulega heim „The Ringers", þ.e. eldheitra að- dáenda Lord of the Rings þríleiksins, en þar á meðal eru stjórstjörnur á borð við David Carradine, Cameron Crowe, Clive Barker og að sjálfsögðu Peter Jackson. Separate Lies - eftir Julian Fellowes sýnd í heimsflokknum (UK - 85 mín). Hérnaeráferð splunkunýkvik- mynd og fyrsta leikstjórnarverkefni hins virta handritahöfundar, leik- ara og framleiðanda Julian Fellows, sem vann nýverið Óskarsverðlaun fyrir handrit sitt að Robert Altman myndinni, Gosford Park. Emily Wat- son, Tom Wilkinson og Rupert Ever- ett sýna stórleik. Voces Inocentes (Innocent Vo- ices) - eftir Luis Mandoki sýnd i heimsflokknum (Mexico/USA/Pu- erto Rico - 120 mín). Grípandi og áhrifamikil sannsöguleg kvikmynd um 11 ára dreng sem horfir fram á það að vera kallaður í herinn við 12 ára aldur til að berjast fyrir hönd ríkisstjórnar El Salvador við upp- reisnarmenn og skæruliða landsins. Myndin er eftir hinn heimsþekkta leikstjóra Luis Mandoki sem á að baki stórmyndir á borð við When a Man Loves a Woman, Message in a Bottle, Angel Eyes og Trapped. Yes - eftir Sally Potter sýnd í heims- flokknum (UK/USA -100 mín). Hér segir frá eldheitu ástarsambandi amerískrar konu (Joan Allen) og manns frá Mið-Austurlöndum (Sim- on Abkarian) þar sem tekist er á um trúmál, pólítik og kynlíf. Eftir einn virtasta leikstjóra samtímans; Sam Neill og Shirley Henderson í öðrum aðalhlutverkum. ■ Allt um hátíðina hér; http://www.icelandfilmfestival.is/ Vinsældarlistinn vikuna 12.-19. október KissFM 895, www.kissfm.is ▲ 1 Coldplay Fix U ▲ 2 Black Eyed Peas My Humps A 3 Destiny s child Cater 2 U ♦ 4 Jennifer Lopez Cherry Pie A 5 Kanya West/J.Fox Gold Digger A 6 Depeche Mode Precious T 7 Simon Webbe Lay your hands A 8 James Blunt High T 9 Yong Jeezy/Akon Soul Survivor T 10 Kano/Mike Skinners Nite Nite X-Dominoslistinn 12.október XFM 919, www.xfm.is A 1. Jeff Who? (ísl) The Golden Age A 2. Coldplay Fix You A 3. Franz Ferdinand Do You Want To? T 4. Foo Fighters D.O.A A 5. Fulli Kallinn (ísl) Before 2000 T 6. The Magic Numbers Love Me Like You T 7. 311. Don'tTread On Me T 8. Oasis The Importance Of Being Idle A 9. Death Cab For Cutie Soul Meets Body T 10. Bloodhound Gang Foxtrot Uniform Charlie Kilo Kiss Kiss Bang Bang brátt í bíó Kvikmyndin Kiss Kiss Bang Bang kemur í bió eftir rúma viku. Það er leikstjórinn Shane Black, sem er höfundur Lethal Weapon, sem er hér kominn með skothelda ræmu og eru það leikararnir Robert Downey Jr., Val Kilmer, Corbin Bernsen og Michelle Monaghan sem fara með helstu hlutverkin. Myndin snýst um einkaspæjara, leikkonu í stórræð- um og þjóf sem þykist vera leikari. Myndin er gríðarlega hröð, vel upp- byggð og fyndin. Hún hefst á þvi að þjófur slysast inn í áheyrnarprufu eftir misheppnað rán og fær aðal- hlutverkið. En þetta er aðeins byrj- unin á vandræðagangi þessa þjófs. Hann mun líka vera bendlaður við morð sem hann ekki framdi. Hann hittir hýran einkaspæjara sem hefur viðurnefnið, Gay Perry. Hér er skot- held skemmtun á ferðinni. ■

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.