blaðið - 06.01.2006, Side 16

blaðið - 06.01.2006, Side 16
16 I VEIÐI FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2006 blaAÍ6 Gjöfull veiðistaður varð uppspretta deilna á Arnarvatnsheiði síðasta sumar. Slegist um veiðistað Kappið getur verið mikið í veiðinni og það bar veiðimenn algjörlega of- urliði upp á Arnarvatnsheiði síðast- liðið sumar. Veiðimenn voru að veiða við Stóra- Arnarvatn, nánar tiltekið í veiðiá sem úr því fellur, en hún er ákaflega vinsæll veiðistaður. Þar höfðu tveir veiðimenn komið sér fyrir og veitt dágóða stund. Þeir höfðu veitt vel, reyndar helling af fiski, og vildu veiða miklu, miklu meira. Bar þá að veiðimenn sem sáu að- farirnar og virðast hafa fyllst nokk- urri öfund. Vildu þeir ná þessu góða svæði og byrjuðu hægt og sígandi að þoka sig nær veiðimönnunum við ána. Gengu þeir svo langt að þeir voru í raun farnir að ýta þeim frá veiðistaðnum. Þeir sem fyrir voru héldu stöðugt áfram að mokveiða af silungi og fóru hvergi. Lá við að til átaka kæmi um þetta gjöfula veiði- svæði. Kom þá á staðinn veiðivörður einn og vildi auðvitað stilla til friðar áður en illa færi. Var það niður- staðan að veiðimennirnir sem fyrr komu á svæðið héldu því og veiddu víst lengi og vel í ánni góðu. Reyndar svo lengi að þeir áttu í hinum mestu vandræðum með að koma aflanum til byggða. Fjölluðu um Brunná Starfsemi veiðifélaga er með ágætum víða um land og veiðimenn hittast og hnýta fyrir næsta sumar. Það styttir biðina eftir sumrinu. Að sögn Ragnars Hólm, formanns Stangaveiðifélags Akureyrar, hefur húsnæðisvandi staðið starfsemi félagsins nokkuð fyrir þrifum það sem af er vetri en nú horfir allt til betri vegar. Félagið hefur vilyrði fyrir því að fá á næstu dögum inni í hinni nýju félags- og tómstundamið- stöð í gamla Barnaskóla Akureyrar og verður þá aftur tekið til óspilltra málanna með hnýtingakvöld og kynningar. Aðeins ein kynning hefur verið haldin það sem af er vetri en það var í nóvember þegar Guðmundur Ármann og félagar fjöll- uðu um veiðar í Brunná í Öxarfirði. Sú samkoma var ágætlega sótt. Langa Francy Búðu til þína eigin Löngu Francy Broddur: Ávalt silfur og flúor- græn vöf Stél: Toppfjöður (Topping) af gullfasana Búkur: Flatt silfur með ávölum silfurþræði yfir Skegg: Fanir úr blárri hana- fjöður undir og svo fanir úr svartri hanafjöður yfir Vængur: Svart íkornaskott Kinnar: Fjaðrir úr skóg- arhana (Jungle Cook) Hún hefur gefið marga laxa i Langá á Mýrum, Langa Francy, en flugan er hnýtt af doktor Jónasi. „Þetta er frábær fluga og hún gefur vel hjá okkur," segir Ingvi Hrafn Jónsson. STAJSTGTÁVEIÐIMEJSnSr ATHUGIÐ Okkarárlega flugukastkennsla ÍTBR húsinu Gnoðavogi 1 hefst 8. janúar klukkan 20:00. Kennt verður 8., 15.,22.og 29.janúar. Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort). Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm. Verð krónur 8.000 en krónur 7.000 til félagsmanna gegn framvísun gilds félagsskírteinis. Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085 KKR, SVFR og SVH ■ Fluguhnýtingahorniö

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.