blaðið - 06.01.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 06.01.2006, Blaðsíða 22
30 I ÍÞRÓTTIR FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2006 blaöiö Alfreð Gíslason rekinn frá Magdeburg Forráðamenn liðsins ósáttir með keppnistímabilið Það voru þýskir vefmiðlar sem skýrðu fyrstir frá brottrekstri Alfreðs í gær. Ljóst er að forráða- menn Magdeburg eru allt annað en ánægðir með gang mála hjá félaginu en Alfreð hefur verið þar við þjálfun í rúm sex ár. Félagið er í fjórða sæti í þýsku deildinni, sex stigum á eftir toppliði Kiel. Þýski meistaratitillinn er svo að segja genginn félaginu úr greipum og þá svíður það sárt að Magdeburg er fallið úr Meistara- deild Evrópu eftir tvo erfiða leiki gegn Barcelona. Liðið er komið í 8- liða úrslit í bikarkeppninni þar sem það mætir Melsungen. Alfreð á annars glæstan feril að baki hjá félaginu. Hann kom þangað fyrst árið 1999. Árið 2001 vinnur Alfreð þýsku Búndesliguna og Evrópukeppni félagsliða og ári síðar sigraði Magdeburg Meistara- deild Evrópu og varð félagið fyrsta þýska liðið sem náði þeim áfanga. Liðið hefur hins vegar misst nokkra geysisterka leikmenn á síðustu árum, meðal annars Ólaf Stefánsson. Haft var eftir Bernd-Uwe Hilde- brandt hjá Magdeburg að þeir hefðu skilið í bróðerni og að samningar hefðu náðst um starfslok Alfreðs. Aðstoðarþjálfari Magdeburg, Githa Licu, tekur nú við þjálfun liðsins að sögn þýskra fjölmiðla en Bogdan Venta hefur einnig verið nefndur, en Venta var pólskur landsliðsmaður og fyrrum samherji Alfreðs á Spáni. Talað hefur verið um að Alfreð Gíslason taki við þjálfun hins geysisterka liðs Gummersbach á næstu leiktíð en í ljósi síðustu atburða gæti það jafnvel gerst fyrr. DeVillers í forystu í Dakar-rallinu Keppni í Dakar-rallinu er æsispennandi og hefur DeVillers, sem ekur Volks- wagen Toureg, náð forystunni eftir sex sérleiðir. Búið er að aka nokkur þús- und kílómetra við erfiðar aðstæður og er heimsmeistarinn Carlos Sainz í öðru sæti á sams konar bíl. Jutta Kleischmidt er siðan í þriðja sæti í þesari erfiðustu rallkeppni heims. Skráning hafin í síma 594 9630 og á staðnum Nematilboð Önnin 12.900.- ORKUVERIÐ Egilshöllinni Simi: 594 9630 www.orkuverid.is Dani til Liverpool Danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger, sem leikur með Bröndby, gengur líklega til liðs við Liverpool á næstu dögum. Agger er 21 árs, en hann þykir afar efnilegur varn- armaður og hefur staðið sig vel í vörninni hjá danska liðinu. Talið er að Liverpool þurfi að borga rúmar 5 milljónir punda fyrir Danann, sem á eftir rúmt ár af samningi sínum hjá Bröndby. Ekki er að efa að Daniel Agger á eftir að stykja vörnina hjá Liverpool til muna enda telja margir að hann sé einn efnileg- asti bakvörður Evrópu um þessar mundir. Cudicini til Portsmouth? hefur þurft að sætta sig við vara- mannabekkinn hjá félaginu að und- anförnu, en Petr Cech hefur staðið á milli stanganna. McCarthy, sem leikur með Porto í Portúgal, var orðaður við lið í ensku úrvalsdeild- inni síðastliðið sumar og var West Ham nefnt í því sambandi. Að sögn breskra fjölmiðla varð þó ekkert úr því að hann færi þangað fyrir 6,5 milljónir punda, sem boðnar voru í hann. Rússneski auðkýfingurinn Alex- andre Gaydamark hefur keypt stóran hlut í Portsmouth og lofað að koma félaginu í hóp þeirra sterkustu á Englandi, en það er nú í botnbar- áttunni. Hann hefur meðal annars lofað að kaupa nýja leikmenn og eru breskir miðlar uppfullir af vanga- veltum um málið þessa dagana. Breska blaðið Sun segir að Port- smouth hafi áhuga á að kaupa mark- vörðinn Carlo Cudicini og framherj- ann Benny McCarthy. Cudicini, sem hefur leikið 170 leiki fyrir Chelsea, Carlo Cudicini

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.