blaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 blaðið 24 I 'h'NG Nóg að gera hjá Reyni bakara Marsípanterturnar vinsœlastar ,Ég myndi segja að marsípanterturnár séu vinsælastar núna. Það er auðvitað alltaf eitthvað um kransakökurnar Uppskrift af fermingarbók frá Reyni bakara: Massabotn 500 gr möndlumassi 500 gr sykur 500 gr smjörlfki 500 gr egg 200 gr hveiti Sykri og möndlumassa hrært vel saman og síðan smjörlíkinu samanvið. Þar á eftir er eggj- unum hrært samanvið og loks hveitinu. 430 gr jarðaberja puree (mauk) 25grmatarlim 300 gr þeyttur rjómi 105 gr eggjahvítur 145grsykur Puree hitað og matarlímið sett samanvið. Eggjahvítan og sykur- inn síðan hitað saman í marengs og þegar puree-ið hefur kólnað er því varlega bætt í mareng- sinn og því svo öllu bætt rólega í rjómann. líka en þó er aðeins minna um þær,“ segir Reynir Carl Þorleifsson, bak- arameistari og eigandi bakarísins Reynir bakari í Kópavogi. Hann segir ástæðu fyrir vinsældum marsípankö- kunnar eflaust þá að nafn fermingar- barnsins sé yfirleitt skrifað á kökuna. „Það er náttúrulega mjög skemmti- legt að hafa áritaða köku með nafni fermingarbarnsins og oft þykir fólki gaman að eiga slíka köku á mynd til minningar um daginn." Aðspurður segir Reynir mikið að gera um þessar mundir, enda sé fermingartíminn alltaf annasamur og mikið um að fólk panti sér góm- sæta köku með kaffisopanum í ferm- ingunni. „Fólk er annaðhvort með kökuhlaðborð eða matarhlaðborð með köku á eftir. Þó svo að fólk sé með mat vil það oftast fá góða köku með kaffinu eftir matinn og þá er mjög sniðugt að vera með flotta ferm- ingarbók eða annarskonar marsípan- köku,“ segir hann og bætir við að fólk sé að panta allt upp í 6o manna tertur. „Veislurnar eru margar hverjar orðnar svo stórar í dag og kökurnar þurfa náttúrulega að vera eftir því.“ Kransakökukarfa með konfekti alltaf vinsæl Reynir segir konfektið alltaf vinsælt, bæði heimabakað og pantað, og að flott sé að bjóða upp á kransaköku- körfu fyllta af góðu konfekti. „Það er líka alltaf mjög flott að panta körfu úr kransakökudeigi og fylla hana af einhverju flottu kon- fekti. Svona karfa er stundum pöntuð með marsípantertu eða öðru og gerir oft mikið fyrir borðið. Þó svo að mest sé lagt upp úr góðum kökum eða konfekti er þetta oft spurning um að vera með eitthvað glæsilegt á borðinu sem skreytir veisluna. Mars- ípanbækurnar eru t.d. mjög vinsælar þegar kemur að fermingunni, enda mjög flottar á borðinu og áritaðar með nafni barnsins,“ segir Reynir. Þá bætir hann við að sonur hans, Henry Þór, hafi verið að koma úr námi hjá Harrods í London þar sem hann lærði kökuskreytingar. „Það er líka gaman að segja frá því að sonur minn var að koma frá námi í London þar sem hann útbjó kökur fyrir hina ýmsu aðalsmenn og poppstjörnur. Hann er farinn að vinna hjá okkur og er að gera glæsilegar og mjög góðar tertur sem hafa verið mjög vinsælar." Reynir segir verðlag fermingarkak- ana afar mismunandi eftir stærð og lögun kakanna. „Þetta fer voðalega mikið eftir því hvað við erum að gera stórar kökur. Annars reynum við auðvitað eftir fremsta megni að hafa verðið sanngjarnt.“ Pantaðu boðs- kortin á Netinu Á heimasíðu Hans Petersen er hægt að búa til sitt eigið tækifæriskort og tilvalið að nota þá þjónustu til að panta boðskortin í fermingarveisl- una. Á heimasíðunni er hægt að velja útlit kortsins, setja inn texta og hugsanlega mynd og síðan eru kortin prentuð í stærðinni 10*20 á ljósmyndapappír. Einnig er hægt að koma með ljósmynd í verslunina og láta skanna hana inn á staðnum. Á heimasíðunni er einnig hægt að panta þakkarkort til að senda til þeirra sem mættu í veisluna og þá er tilvalið að nota fermingarmynd á það kort. Boðskort láttu okkur sjá um boðskortið fyrir ferminguna

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.