blaðið - 03.01.2006, Side 1
Heilsa
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006
Líkamsrœkt á að vera líisstíU
Mest sala á kortum íjanúar og september
18
Heilmikii vinna að
eiga Sheaffer-hund
19.............
Kappkosta ætti
að fá vítamín og
steinefni úr fæðu
19
Komdu í veg fyrir
skammdegisþunglyndi
20 ...............
Búin að missa 4 kg á
danska kúrnum
21................
Hreyfing hluti af endur-
hæfingu hjartasjúklinga
22................
Húðin er stærsta
líffæri líkamans
24
Kannt þú að slappa af?
Þeir sem stunda líkamsrækt reglu-
lega hafa sjálfsagt tekið eftir því
að allir tímar eru fullir í janúar
og svo heltast margir úr lestinni
fram á vorið. í maí og júní er
síðan orðið mjög fámennt. í
september ríður ný holskefla yfir
og allir flykkjast í ræktina. Nú
eru áramótin að baki og eflaust
margir sem hafa strengt þess heit
að hreyfa sig meira og koma sér í
form.
„Við seljum langmest af kortum
í janúar og september“, segir Inga
Reynisdóttir deildarstjóri ráðgjafa-
deildar Hreyfingar. Hún segir hins-
vegar minnsta sölu í kortum yfir
sumarmánuðina.
„Auðvitað er æskilegast að fólk
hreyfi sig jafnt og þétt því þá þarf
ekki að fara í sérstakt átak. Við
vitum að það kemur mikið af fólki
núna í janúar sem vill taka sig taki
eftir jólin og koma sér í form fyrir
sumarfríið.“ Inga segir að desember
sé alltaf með rólegra móti og segir
ástæðuna þá að margir séu að vinna
meira en venjulega og að skóla-
krakkar sem stundi ræktina séu í
prófum.
Ódýrast að binda sig í lengri tíma
Nú eru það regla að því lengur sem
fólk bindur sig í rœktinni því minna
þarf að borga, hver er skýringin?
„Þetta á að virka sem hvatning til
fólks um að breyta um lífsstíl. Það
eru alltaf einhverjir sem hætta að
mæta eftir stuttan tíma en fyrir
þá sem eiga erfitt með að aga sig
bjóðum við fólki að hringja í það
og hvetja það til að mæta. Með tím-
anum venst líkaminn líkamsrækt-
inni og þá vill fólk halda áfram að
æfa. Fyrir þá sem vilja prófa er hægt
að fá þrjá prufudaga fría þannig
að fólk getur áttað sig á hvort það
finnur sig í ræktinni“, segir Inga.
Kynningarmánuður í Hreyfingu
kostar 3.790 krónur en það er verð
til þeirra sem ekki hafa stundað lík-
amsrækt áður. Almennt verð á mán-
aðarkorti er annars 8.980 krónur.
Þriggja mánaða kort kQstar 20.930
krónur og sex mánuðir eru á 35.940.-
eða 5.990 krónur á mánuði sem
er tekið af korti. Árskortið kostar
59.880 eða 4.990 krónur á mánuði.
Kort til þriggja ára er hlutfallslega
ódýrast eða 3.690 krónur á mánuði.
„Kostur þess að hafa langan bindi-
tíma er að fólk kynnist fólkinu á stöð-
inni og nær að koma líkamræktinni
inn í rútínuna hjá sér. Félagsskapur-
inn er góður og margir af okkar við-
skiptavinum eru búnir að vera mjög
lengi hjá okkur. Starfsfólkið í Hreyf-
ingu leggur sig líka fram um að láta
fólki líða vel.“
hugrun@bladid.net
^Body-for-LIFE CLA
Öflugt fitubrennsluefni
• Styður þyngdarstjórnun
• Eykur fitusnauðan líkamsmassa
Nánari upplýsingar fást á www.eas.is
yZ— Nrir'—
iCÍFl^
Jtsú awat,
KFIÁNAN ffBtTam