blaðið - 03.01.2006, Síða 4
20 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 blaöiö
Búin að missa 4kgá danska kúrnum
Uppistaðan ávextir og grœnmeti
,Ég byrjaði á danska kúrnum í
byrjun desember", segir Ragnheiður
M. Kristjónsdóttir, sem þegar hefur
misst 4 kíló. „Ég frétti fyrst af
kúrnum í þættinum Island í bítið
en þar var rætt við hjón sem samtals
höfðu misst 8o kg síðan í mars. Þar
var líka rætt við hjúkrunarfræðing
sem sér um kúrinn“, segir hún.
„Ég var lengi búin að hugsa um
að breyta um mataræði, í og með í
þeim tilgangi að grenna mig. I vor
fór ég að hugsa um það sem ég borð-
aði en hef ekki verið í skipulögðum
hóp fyrr en núna. í hópnum er ég
skyldug til að mæta í vigtun einu
sinni í viku og eftir viktunina er
fundur með öðrum í hópnum.“
Ragnheiður segir að kúrinn gangi
út á að borða 1200-1500 kaloríur á
dag og fólk eigi að reyna að borða
sem mest fyrir kaloríurnar og það
megi ekki sleppa neinu á listanum.
.Uppistaðan í fæðinu er grænmeti
en okkur er uppálagt að borða 600
grömm af grænmeti á dag ásamt
4 ávöxtum. Leyfilegt er að skipta
ávexti út fyrir brauð, hrísgrjón,
pasta eða kartöflur en hvítur sykur
er á bannlista. Það er ekki einfalt að
sneyða hjá hvítum sykri því hann er
í svo mörgum matartegundum. Við
megum borða skyr, ost, ab mjólk,
olíu, fitu, fisk, kjöt og kjúkling í
ákveðnu magni. Þetta fæði kann að
virka einhæft en þarf ekki að vera
það. Þá er leyfilegt að nota taco eða
tómatsósu í litlum mæli.
Ragnheiður segir enga skipulagða
hreyfingu vera inn í planinu en hver
og einn geti hreyft sig að vild.
Mikilvægt að skipuleggja sig
Hvað er erfiðast við kúrinn?
„Þetta er mikil skipulagning og það
fer mikill tími í matarundirbúning.
Ég þarf að hugsa út í hvað ég ætla
að borða yfir daginn og þarf að
nesta mig í vinnuna því ég get ekki
gripið hvað sem er til að borða. Mér
finnst ég alltaf vera að kaupa í mat-
inn, því ég get ekki gripið í kornflex
eða annað til að borða ef ekkert er
til í ísskápnum." Ragnheiður segir
að það hafi líka komið sér á óvart
hversu dýrt það er að vera á þessu
fæði. Kjúklingur, kjöt og fiskur er
dýr svo og ávextir og grænmeti.
,Svo þurfti ég að kaupa mér vog til
að vigta matinn til að þetta sé ná-
kvæmt. Ég þarf að elda einu sinni á
dag og mér finnst ég alltaf vera að
elda, plana eða verslá', segir Ragn-
heiður en bætir við að þetta komist
fljótt upp í vana.
„Ef fólk fylgir planinu í einu og
öllu á það að ná af sér kílói á viku
en karlmenn eru jafnvel að léttast
Polarolje
Selolía frá Noregi **
&
Þórhanna
Guðmundsdóttir
Skrífstofumaður hjá SÍ8S
„Ég hef verið með exem og þurra húð á
höndum,eftir að ég fór að taka inn Polarolje
er húðin á mér eins og silki.
Ég get því mælt með Poiarolje''
Niðurstöður kliniskra rannsókna sem
prófessor Arnold Berstad við
Haukeland háskólasjúkrahúsið f
Noregi framkvæmdi sýna að olían
hefur áhrif á:
- Ónæmiskerfið
- Gigt - auma og sttfa llði
- Sár og exem
- Maga- og þarmastarfsemi
- Hárvöxt og neglur
- Kólestról og blóðþrýsting
Fæst í öllum
apótekum
og heilsubúðum
{QEAS
Body-for-LIFE Omega 3-6-9
Nauðsynlegar fitusýrur
• Mikilvægarfyrir heilbrigða líkamsstarfsemi
• Rétt hlutfall nauðsynlega fitusýra
Nánarí uþþlýsingar fást á www.eas.is
Qniega 3-6
ÍÚkarnt
vZ—fi*—
ÓFlÐj
fmtii
KRÚNAN g
Byggbuff - Rauðrófubu
Byggsalat Tubúle
-lífríenn skyndibiti
Einu ísiensku réttirnir úr
100% lífrænt ræktuðu hráefni
Ræktað og framleitt hjá Móður Jörð í
Vallanesi á Héraði
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
Ragnheiður M Kristjónsdóttir, breytti um mataræði og er farin að sjá árangurinn,
meira. Ég stefni að því að komast í
kjörþyngd en það er langtímamark-
mið en ég reyni að einblína ekki
aðeins á það. Ég er búin að ákveða
að þegar ég hef losnað við 10 kíló
ætla ég að fara að synda. Það er mik-
ilvægt að setja lokamarkmiðið niður
í minni markmið til þess að halda
einbeitingunni."
Ragnheiður segir að það eitt að
taka ákvörðun um breytt mataræði
skipti sköpun og að sér hafi fundist
hún vera grennri við þá ákvörðun
eina að breyta mataræðinu. „Um
leið og maður finnur að kílóunum
fækkar er það síðan hvatning til að
halda áfram“, segir Ragnheiður að
lokum.
hugrun@bladid.net
Mambó
Tjútt
Freestyle
Salsa
Brúöarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskeiö fyrir hópa
Nýjustu tískudansarnir
Börn - Unglingar - Fullorðnir
K|w+"þ| I Styttra sérnámskeið íSalsa ogMambó
IN y L L. | fyrir pör og einstaklinga
Ýmis starfsmanna- og stéttarféiög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
AthugiÖ að við erum fiutt í nýtt húsnæði að Borgartúni 6
DANSSKOLI
Jóns Peturs og Köru
DansráÖ íslands | Faglæröir danskennarar
Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is