blaðið - 30.08.2005, Page 8

blaðið - 30.08.2005, Page 8
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2005 blaðiö 24 I BÍLAR Bílar við allra hœfí í Frankfurt: Fréttum af væntanlegum sýningar- gripum á bílasýningunni í Frank- furt fjölgar stöðugt, en hún stendur frá 15. til 25. september. Lúxusjeppi frá Audi er væntanlegur, GM ætlar að setja sportbíl á markað, ný Honda Civic verður afhjúpuð, Fiat heldur áfram að sækja í sig veðrið og Skoda mun kynna nýtt flaggskip. Sýningin í Frankfurt er ein stærsta bílasýning heims og í Evrópu er hún önnur af þeim tveimur helstu. Mönn- um þarf tæpast að koma á óvart að þýsku framleiðendurnir eru jafnan fyrirferðarmestir í Frankfurt, en sýningin er samt sem áður alþjóðleg og margt forvitnilegt að sjá frá fram- leiðendum utan Evrópu. Það sem gerir bílasýninguna í Frankfurt sérstaka er umfangið, en hún fyllir tíu tröllvaxna sýningar- skála. Fyrir áhugasama geta tíu dag- ar því reynst í það minnsta til þess að skoða sig almennilega um. Nýr jepplingur frá Audi Sagan segir að það hafi komið Audi i opna skjöldu hvað jepplingurinn þeirra seldist vel, en um 90.000 bíl- ar hafa selst síðan hann var settur á markað árið 2000. Hann verður tekinn úr framleiðslu á næsta ári, en Audi hefur þegar staðfest að arftaki hans sé að verða tilbúinn til fram- leiðslu. arm. 1 1 VELAVERKSTÆÐIÐ IT: n Nýi jepplingurinn mun verða af- ar svipaður tilraunaútgáfunni, sem sýnd var í upphafi árs í Detroit og Blaðið hefur áður greint frá. Hann er byggður á A6 bílnum, en er með drif á öllum og loftfjöðrun. Með því að hækka hann upp getur hann farið allra sinna ferða yfir veg sem vegleysur, þó sjálfsagt muni fáir eig- endur hætta þessari lúxuskerru út á malarvegi hvað þá meira. Talið er að tilraunaútgáfa jepplingsins, sem sýnd verður í Frankfurt, verði afar lík endanlegri útgáfu. Audi verst hins vegar allra frétta. V ARAHLUT AVERSLUN Kistufell@centrum.is # Tangarhöfða 13 Sími 5771313 Spyrnur og stýris- hlutir í flestar gerðir bíla www.kistufell.com Gabriel Aisin kúplings- höggdeyfar eru orginal ^ASCC^ sett eru orginal hlutir frá USA og E.E.S. hlutir frá Japan TRIDON> varahlutir í miklu úrvali Q&varahlutir Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík VÍKURVA6NAKERRURNAR þessar sterku Allar gerðir af kerrum Allir hlutir til kerrusmíða Víkurvagnar ehf * Dvergshöfda 27 ^Simi 577 1090 * www.vikurvagnar-is y Eigð'ann eða leigð'ann - Þitt er valið! $ LÝSING Sudurlandsbraut 8 108 Reijkjavík s: 540 1500 www.lysing.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.