blaðið - 12.05.2006, Síða 19

blaðið - 12.05.2006, Síða 19
blaöiö FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 HEILSA I 19 Hjólum okkar allra vegna Undanfarna daga hefur verið ein- staklega gott veður og má með sanni segja að allt lifni við. Æ fleiri hafa nú tekið fram hjólið sitt og eru farnir að nota það á góðviðrisdögum. Aðrir hafa ákveðið að fá sér hjól, hafa jafn- vel ekki átt hjól lengi og hafa nú kosið að prófa að hjóla til og frá vinnu. Hjól eru einhver umhverfisvænustu sam- göngutæki sem við getum fundið. Mikið færri dauðsföll án óbeinna reykinga Með því að koma í veg fyrir óbeinar reykingar væri hægt að minnka dauðsföll tengd hjarta- sjúkdómum um meira en 500 þúsund í Bandaríkjunum á næstu árum, samkvæmt rannsakendum við Háskólann í Kaliforníu. Hættan af óbeinum reykingum er talin jafngilda því að einstaklingur reyki eina sígarettu á dag samkvæmt Dr. Kirsten Bibbins-Domingo. Kirs- ten og samstarfsmenn hennar mátu áhrif þess að koma í veg fy rir óbeinar reykingar að fullu fyrir árið 2030. Á milli 15-25% einstaklinga segjast verða fyrir óbeinum reykingum heima hjá sér eða á vinnustað. Kirs- ten nýtti sér einnig blóðsýni banda- rískra þegna við rannsóknina og leit- aði eftir merkjum óbeinna reykinga. I ljós kom að það eru í raun 29-43% einstaklinga í Bandaríkjunum sem hafa verið í návígi við reykingar. „Það eru margir sem átta sig ekki á að þeir eru í daglegu návígi við reyk- ingar og því má búast við að árlegt mat á dauðsföllum vegna hjartasjúk- dóma sé vanmetið," segir Kirsten. Óbeinum reykingum ætti að útrýma Út frá blóðsýnunum metur Kirsten að vegna óbeinna reykinga deyi 9.500-21.500 einstaklingar árlega í Bandaríkjunum vegna hjartasjúk- dóma og 14.600-32.400 vegnahjarta- áfalla. Lægri tölurnar eru byggðar á persónulegu mati einstaklinga á hve miklum óbeinum reykingum þeir verða fyrir en hærri tölurnar miða við það magn níkótíns sem fannst í blóðsýnunum. Kirsten spáir að ef hægt væri að koma í veg fyrir óbeinar reykingar árið 2006 væri komið í veg fyrir 953.200 hjartasjúkdóma, 842.900 hjartaáföll og 580.600 dauðsföll vegna hjartasjúkdóma í Banda- ríkjunum einum fyrir árið 2030. „Skilaboðin eru skýr, byrði óbeinna reykinga er raunveruleg. Þetta ætti að ýta undir stefnumótun á þessu sviði og óbeinum reykingum á al- mennum svæðum ætti að útrýma,“ sagði Kirsten ákveðin. Hjólavika (SÍ Hjólavika íþróttasambands Islands stendur nú sem hæst og tekur mikill fjöldi fyrirtækja um allt land þátt í henni. Það er nánast allt jákvætt við að hjóla, það eina sem maður hefur eðlilega áhyggjur af er það hvað hjól- reiðamenn er illa varðir á hjólunum og því er einmitt svo mikilvægt að fara varlega. Þess vegna er líka mikil- vægt að öll umferðarmannvirki geri ráð fyrir hjólandi umferð og við end- urgerð gatna, gatnamóta og við gerð nýrra, sé tekið mið af því að hjólreiða- menn geti farið þar um. Þríhjól fyrir fullorðna Ég ræddi við eldri konu um daginn sem var vön að hjóla mikið en hefur ekki treyst sér til að hjóla frá síðast- liðnu sumri. Ég spurði hana hvort hún hefði prófað að hjóla á þríhjóli. En hún vissi ekki að til væru þríhjól fyrir fullorðna. Það eru til mjög fín þríhjól hér sem eru ekki síst hugsuð fyrir þá sem eru annað hvort farnir að tapa jafnvægi eða orðnir óstyrkir og hræddir við að hjóla á tvíhjóli. Ég hvet eldri borgara til að skoða þennan kost, það er svo mikilvægt að hreyfa sig og það er gott að hjóla þrátt fyrir minni styrk. Það er í raun hægt að líkja því að hjóla við að synda. Maður getur hreyft sig án þess að öll þyngdin hvíli á fótunum um leið. Þríhjól er hægt að fá í öllum betri hjól- reiðaverslunum en svona þríhjól eru mikið notuð erlendis. Mikilvægi hreyfingar Rannsóknir hafa rökstutt mikilvægi hreyfingar fyrir likamlegt og andlegt heilbrigði. Með því að hjóla erum við umhverfisvæn, við komumst auð- veldlega á milli staða og við fáum nauðsynlega hreyfingu um leið. Is- lendingar eru að fitna og offita og hreyfingarleysi er vaxandi vandamál hjá þjóðinni. Það er því mikilvægt að venja börnin okkar strax við það að nota hjólið sem samgöngutæki. Allir geta hjólað, jafnt ungir sem aldnir og von mín er sú að sífellt fleiri kjósi að nota hjólið sitt sem samgöngu- tæki. Þannig getum við stuðlað að heilnæmara umhverfi, fengið nauð- synlega hreyfingu og bætt andlega og líkamlega heilsu okkar. Gerir þú miklar kröfur? Útvegumfýrstaftokkshúsbílaog hjóihýsi If* |rr af öllum stœrðum og órgerðum beintfró Þýskaiandi. endurnýia húsbílinn? Allt eftir þínum óskum y' Tom Tychsen hóf innflutning á húsbílum frá Þýskalandi fyrir 5 árum en þar er hægt að fá húsbíla á mjög góðu verði. Eftir að hafa flutt inn húsbíla og hjólhýsi í 5 ár var ákveðið að flytja fýrirtækið til íslands til þess að geta veitt viðskiptavinunum enn betri þjónustu. Húsbílamir em vandlega yfirfamir úti í Þýskalandi áður en þeir koma til landsins. Fyrirtækið er með umboð fyrir CI, sem em ítalskir gæða húsbílar sem em allir útbúnir vetrarpakka sem þýðir að af- faldstankurinn er upphitaður og eyðileggst því ekki í frosti. Einnig er Tom Tychsen með umboð fyrir Euromobil, sem em þýskir hágæða húsbílar sem henta íslenskri veðráttu mjög vel þar sem þekjan er með tvöfoldu gólfi og lágþekjan er vel einangmð. Fyrirtækið býður líka upp á bíla frá Cristal sem er þýskt gæðamerki á mjög góðu verði en hjá þeim er bæði hægt að fá húsbíla og hjólhýsi. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á gæði og þess er gætt að selja ekki bíla nema það sé fúllvíst að þeir séu mjög góðir. Þjónustan fellst líka í góðri ráðgjöf áður en viðskiptavinurinn gerir upp hug sinn og festir kaup á húsbíl eða hjólhýsi. Ef húsbíla og hjólhýsaeigendum vantar vara- eða aukahluti þá getur fyrirtækið veitt þeim góðar upplýsingar en eins er hægt að nálgast bækling með 7500 mismunandi aukahlutum fyrir útileguna hjá Tom Tychsen. Verðunum er haldið í Iágmarki, þannig að viðskiptavinimir geta verið vissir um að þeir séu að gera góð kaup, en í þessum bransa veltur allt á góðu orðspori og trausti viðskiptavinarins gagnvart söluaðilanum. Enn er verið að vinna í heimasíðunni www.husbilagalleri.is en engu að síður geta forvitnir kíkt inn á hana og aflað sér einhverra upplýsinga. Ef þið finnið ekki það sem þið emð að leita að þar, þá getið þið slegið á þráðinn eða sent tölvupóst til Tom Tychsen. irr- SKaáfe^,. Opnunartími: Mön - fös. kl. 10-18 | Lau. & sun. kl. 12-16 Gott verð - pottþéff þjónusta T°m Tychsen Sími 517 93501 Gsm 821 9350 Skútuhraun 2 Fax517 9351 220 Hafnarfirdi tom@husbilagalleri.is :nrasnrn aallerí www.husbilagalleri.is

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.