blaðið - 17.05.2006, Síða 22
38 I ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 blaðiö
Knattspyrnuveisla í París í kvöld
Tvö af skemmtilegustu liðum Meistaradeildarinnar, Barcelona ogArsenal, leika til úrslita í kvöld.
Gríðarleg spenna ríkir fyrir úr-
slitaleik Meistaradeildar Evrópu
sem verður á franska þjóðarleikvang-
inum í París í kvöld. Þá mætast tvö af
skemmtilegustu liðum keppninnar í
ár: Barcelona og Arsenal.
Menn þurftu ekki að vera spámann-
lega vaxnir síðastliðið haust til þess
að sjá það fyrir að Barcelona myndi
leika úrslitaleikinn. Hins vegar hefur
Arsenal komið flestum á óvart, lagt
hvert stórliðið af fætur öðru af velli,
og komist í úrslitaleikinn með sann-
færandi hætti.
Einvígi bestu framherja heims
Allt bendir til þess að stórleikur sé
í vændum. Ekki síst vegna þess að
liðin tvö skarta tveimur bestu sókn-
armönnum heimsins nú um stundir:
Mikiö veltur á því fyrir Arsenal að Thierry Henry nái sér á strik í leiknum.
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
MARKISUR
www»markisur.com
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
nrmrm
1 1 1: L i
Ronaldhino og Thierry Henry. Þetta
eru leikmenn sem eru vanir að láta til
sín taka þegar mikið er i húfi og þeir
geta báðir tekið öll völd á vellinum og
tryggt sínu liði sigur þegar sá gállinn
'er á þeim. Margir spá því að úrslit
leiksins ráðist af því hvor þeirra eigi
betri leik.
Aðrir sparkspekingar vilja meina
að aðrir leikmenn muni skilja á milli
feigs og ófeigs að leikloknum. Reynist
það rétt telja flestir að Börsungar beri
sigur úr býtum. Auk Ronaldhino eru
í liðinu stórkostlegir leikmenn eins
og Samúel Eto’o, Deco, Guily og Xavi
svo einhverjir séu nefndir. Liðið er
vel skipulagt en þrátt fyrir alla snilli
Ronaldhino er ekki hægt að segja að
hann þurfi að bera liðið á herðum
sér. Hann fær mikla hjálp frá öðrum
leikmönnum.
Hins vegar er lið Arsenal skipað
ungum leikmönnum í bland við eldri
og reyndari. Enginn skyldi afskrifa
þá ungu og reynslulitlu þar sem þeir
hafa staðist flest þau próf sem hafa
verið lögð fyrir þá í Meistaradeild-
inni í vetur. Vörn liðsins hefur staðið
sig frábærlega í Evrópuleikjum í
vetur og takist henni að halda Ron-
aldhino og Eto’o í skefjum í kvöld
hafa sóknarmenn Arsenal yfir nógu
miklu byssupúðri að ráða til þess að
skora gegn Börsungum. Þrátt fyrir að
liðið hafi valdið vonbrigðum í ensku
úrvalsdeildinni í vetur er öllum ljóst
að Arsene Wenger er mikill knatt-
spyrnujöfur og útfærsla leikskipu-
lags liðsins hefur gefist ákaflega vel í
Evrópuboltanum.
HERBERGID* BAÐID • HEIMILIÐ
Rúmfatalagerinn óskar eftir lagermönnum,
í boði er fullt starf.
Góð laun í boði fyrir duglega einstaklinga.
Mikil vinna í boði ó líflegum og skemmtilegum vinnustað.
Or vöxtur fyrirtækisins gefur mikla möguleika á að vaxa í starfi.
Hæfniskröfur:
• Hressleiki
• Opin fyrir nýjungum
• Tilbúin að læra
• Metnaður og áhugi
Urnsóknir sendist á rumfatalagerinn@rumfatalagerinn.is eða Smáratorg 1 201
Kópavogur merkt „Lagermaður" Allar nánari upplýsingar veitir Daði Hrólfsson í
síma 820-8005 eða á staðnum í Smáratorgi 1.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Smáratorgl 1 Holtagörðum
200 Kópavogi v/Holtaveg
510 7000 104 Reykjavfk
Póstkrafa 588 7499
Smóratorgi 1
510 7020
Sketfunnl 13 Qlerártorg
108 Reykjavlk 600 Akureyri
568 7499 463 3333
Póstkrafa
Glerártorg
463 3333
Ronaldinho og Eto'o eru lykilmenn Barcelona. Nái þeir sér ekki á strik eru sigurlíkur
liðsins litlar.
Kunnugleg sjón úr Evrópuboltanum í vetur: Leikmenn Barcelona fagna marki en eftir
situr markvörðurinn með sárt ennið.
Leikmenn Arsenal hafa haft ástæðu til að fagna í vetur.
Spænskir fjölmiðlar spá sigri
Þrátt fyrir að enskir fjölmiðlar séu
þekktir fyrir ofmat á möguleikum
landsliðsins fyrir stórmót eru þeir
yfirleitt hófsamari þegar kemur að
möguleikum þarlendra félagsliða í
Evrópukeppnum. Flestir telja Bör-
sunga mun sigurstranglegri en í
ljósi ótrúlegs sigurs Liverpool á AC
Milan í sömu keppni í fyrra telja
enskir íþróttablaðamenn ekki loku
fyrir það skotið að Arsenal takist að
leggja Katalóníumennina að velli.
Krafa spænskra fjölmiðla
fyrir leikinn er skýr. Blaðamenn á
Spáni telja Barcelona sterkara lið
en Arsenal og krefjast sigurs. Portú-
galski miðjumaðurinn Deco sagði í
fjölmiðlum í gær að það væri eðlileg
krafa en bætti því við að leikmenn
Barcelona mættu alls ekki hugsa
þannig. Hann sagði að í slíkum úr-
slitaleikjum væri hvorugt liðið sigur-
stranglegra og nauðsynlegt væri fyrir
leikmenn Barcelona að bera næga
virðingu fyrir andstæðingunum og
missa ekki einbeitingu.
Mikil eftirspurn er eftir miðum
á leikinn en spænska blaðið Marca
sagði frá því í gær að miðar á svörtum
markaði seljist á hátt í 200 þúsund
krónur. Franski þjóðarleikvangurinn
í París tekur um 80 þúsund manns í
sæti.