blaðið - 28.08.2006, Qupperneq 10
10 I FRÉTTIR
MÁNÚDAGUR 28. ÁGÖST2006 biaóió
Innbrot:
Ólöglegur
sundsprettur
Þrír einstaklingar voru
handteknir aðfaranótt sunnu-
dags eftir að þeir brutust inn í
Sundlaug Breiðholts og fengu
sér sundsprett.
Fimmtán manns voru í
lauginni þegar lögreglan kom
en flestir forðuðu sér hið fyrsta.
Þrír urðu þó eftir og voru
handteknir. Þeir máttu dúsa í
fangageymslum lögreglunnar
og mega búast við því að verða
ákaerðir fyrir athæfið.
Einkaskólar:
Fagna
leikskólaráði
Stjórn Samtaka sjálfstæðra
skóla býður nýtt leikskólaráð og
menntaráð velkomið til starfa
í Reykjavík í ályktun sem hún
sendi frá sér í gær.
Vonast samtökin til þess að
með tilkomu sérstaks leikskóla-
ráðs muni málefni leikskóla
verða enn meir í brennidepli.
Lýsa þau þvi yfir að þau séu
reiðubúin til víðtæks samstarfs
um skólamálefnin.
Ölvunarakstur:
Stútar
undir stýri
Níu einstaklingar voru teknir
ölvaðir undir stýri i Reykjavik
aðfaranótt sunnudags.
Einn þeirra sem lögreglan
hafði afskipti af var einstak-
lingur sem álpaðist til þess að
keyra á ljósastaur. Þeim bíltrúr
lauk með því að maðurinn
þurfti að leita sér aðstoðar á
spítala. Hann er grunaður um
ölvun.
Flóttamenn á íslandi Flýja slæmt
atvinnuástand á landsbyggðinni
Mynd/Kristlnn
JfciSi, Rf
WSm i -:'j
gil
Flóttamenn á íslandi:
Sækja í þjónustu á
höfuðborgarsvæði
■ Halda hópinn ■ Vilja frekar búa á höfuðborgarsvæðinu
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskudlur@bladid.net
Slæmt atvinnuástand og lágt þjón-
ustustig er talið vera ein helsta
ástæða þess að flóttamenn tolla ekki
á landsbyggðinni. Formaður Rauða
krossins í Austur-Húnavatnssýslu
segir flóttafólkið hafa verið mjög
samrýmt og þegar ein fjölskylda
hafi farið til Reykjavíkur hafi önnur
fylgt eftir á. Fjölmennari sveitarfé-
lög henta flóttafólki betur að mati
framkvæmdastjóra Rauða krossins
á Akureyri.
Hærra þjónustustig
„Það sem er öðruvísi hérna fyrir
norðan er að samfélagið er stærra.
Það eru meiri möguleikar á atvinnu
og öll skólastig fyrir hendi,“ segir
Hafsteinn Jakobsson, framkvæmda-
stjóri Rauða krossins á Akureyri.
Hann telur erfitt atvinnuástand
og einhæfari atvinnumöguleika í
sumum smærri sveitarfélögum hafi
valdið því að flóttafólk hafi kosið
að flytjast á höfuðborgarsvæðið.
Samkvæmt upplýsingum frá Utlend-
ingastofu hafa um 250 flóttamenn
komið hingað til lands á síðast-
liðnum áratug. Flestum þeirra var
upphaflega veitt skjól i smærri sam-
félögum úti á landi en þeir hafa nær
allir flutt á höfuðborgarsvæðið eftir
að aðlögunartíma lauk. Aðeins 24
manna hópur sem fór til Akureyrar
árið 2003 býr þar ennþá.
Að sögn Hafsteins hafa allir flótta-
mennirnir þar sótt um endurnýjað
dvalarleyfi og gerir hann ráð fyrir
því að þeir verði orðnir fullgildir rík-
isborgarar eftir tvö ár. Hann segir
ennfremur að þó smærri samfélög
henti kannski betur hvað aðlögun
varðar geti lágt þjónustustig valdið
því að flóttafólk kjósi að flytja.
„Á sumum stöðum var atvinnu-
ástandið afar erfitt eins og til dæmis
á Blönduósi. Svo hef ég líka heyrt að
fjölskyldur hafi flutt vegna þess að
krakkarnir þurftu að fara í annað
sveitarfélag til að sækja skóla,“ segir
Hafsteinn.
Allir farnir
Alls komu 23 flóttamenn frá
Serbíu og Króatíu á Blönduós árið
1998 en þeir voru allir fluttir til
Reykjavíkur nokkrum árum seinna.
Að sögn Þórmundar Skúlasonar,
formanns Rauða krossins í Austur-
Húnavatnssýslu, voru margar
ástæður fyrir því að fólkið ákvað að
flytjast búferlum. „Þetta voru um
fimm fjölskyldur sem komu hingað
á sínum tíma. Tveir voru í vinnu
hjá fyrirtæki hér f bæ og þegar það
fyrirtæki flutti suður fóru þeir með
ásamt fjölskyldum sínum. Svo var
það þannig að þegar ein fjölskylda
flutti vildi önnur flytja líka. Ein-
hverjir áttu vinafólk í Reykjavík og
vildu vera nálægt því. Það voru því
margar ástæður fyrir því að fólkið
flutti.“
Þórmundur segir þó alls ekki úti-
lokað að tekið verði á móti fleira
flóttafólki í Austur-Húnavatnssýslu
í framtíðinni. „Þetta er stórt verk-
efni en ég hef alveg trú á því að við
getum gert þetta aftur."
Mengun:
Meira súrt
regn í Kína
mbl.is Mengun frá iðnaði í Kfna
veldur því að súrt regn hefur
aukist gríðarlega og haft slæm
áhrif á gróður og menn í um
þriðjungi landsins.
Uppgangur hefur verið geysi-
hraður í landinu og iðnaður
þanist út og mengun þar af
leiðandi aukist mikið. Yfirvöld
hafa engu að síður heitið því að
hreinsa andrúmsloftið. Mengun-
arslys eru einnig tfð í landinu,
nú síðast láku eiturefni út í
vatnsból sem 100.000 manns
fá drykkjarvatn úr í norðvestur-
hluta landsins.
Lögreglan:
Fimmtán ára
tekinn á bíl
Lögreglan handtók fimmtán
ára gamlan ökumann f Reykja-
vík aðfaranótt sunnudags. Hann
hafði tekið bíl foreldra sinna í
leyfisleysi og er þar að auki grun-
aður um að aka ölvaður.
Skýrsla var tekin af honum og
þurftu foreldrar hans að sækja
hann á stöðina. Ekki liggur
fyrir hvernig þeir fóru að því að
sækja hann.
Fullorðnir
STÓR vershm
FLOTT úrval
FTvÁBÆRT verð
PLAST umgjarðir
AUar stærðir, allir litir
565-5970
Reykjavíkurvcgi 22
22Ö Hafnarfirði
Brunavarnir ósáttar við boðun vegna elds í breskri flugvél:
Fréttu af nauðlendingu í fjölmiðlum
■rM/.
- >.-U rí%:.
' >; c. * V. -
Slökkvilið fréttir af nauðlendingu
Brunavarnir Suðurnesja heyrðu um nauð-
lendingu breskrar flugvélar i fréttum
„Við fréttum af flugvélinni í
gegnum sjúkraflutningamenn sem
sáu þetta í sjónvarpsfréttum," segir
Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðs-
stjóri Brunavarna Suðurnesja, en
þær fengu tilkynningu um brunann
í bresku farþegaþotunni í gegnum
fjölmiðla. Tilkynning barst þeim
frá Neyðarlínunni klukkan 18:08 en
áður höfðu sjúkraflutningamenn
hringt til þeirra og sagt þeim að þeir
hefðu heyrt um atvikið í fréttum.
„Hefði það staðist að eldur væri um
borð í þotunni þá hefði þetta verið
stóralvarlegt," segir Sigmundur en
þotan var að gerð Boeing 777 og
tæplega 300 farþegar um borð. Flug-
vélin nauðlenti á Keflavíkurflugvelli
um kvöldið og var talsverður viðbún-
aður vegna þess. í ljós kom að reykur
kom úr brauðvél um borð og er ekki
staðfest að eiginlegur eldur hafi
nokkurn tíma blossað upp. „Það er
athyglisvert að fjölmiðlar hafi vitað
af þessu á undan okkur og verður
ferlið skoðað í kjölfarið,“ segir Sig-
mundur sem lítur málið alvarlegum
augum. Hann segir að þeir þurfi að
nota allan þann tíma sem þeir geti
fengið og þeir notist við ákveðið
skipulag. Slökkviliðið á Keflavfkur-
flugvelli á fyrst að fá tilkynninguna
og svo eiga Brunavarnirnar á Suður-
nesjum að fá þær. Ef um mikinn við-
búnað er að ræða þá er kallað eftir
aðstoð fleiri umdæma.
Samkvæmt Sigmundi hefur skipu-
lagið virkað vel hingað til en alltaf
megi gera betur og verður farið yfir
þessa þætti strax á mánudaginn.