blaðið - 28.08.2006, Síða 12
12 I FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 blaðið
Upplýsingagjöf vegna Kárahnjúkavirkjunar:
Þingið fékk ekki að
vita af viðvörunum
■ Of tæknilegt fyrir Alþingi ■ Þingmenn áttu rétt á upplýsingunum ■ Varað við að stíflan rofni
■ Vísvitandi blekkingar, segir þingmaður Samfylkingarinnar
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Þingmenn greinir á um hvort mik-
ilvægum upplýsingum um hönnun
Kárahnjúkavirkjunnar hafi verið
haldið leyndum fyrir Alþingi áður
en ákvörðun var tekin um að heimila
framkvæmdina. Grímur Björnsson,
jarðeðlisfræðingur hjá Orkustofnun,
skrifaði skýrslu með athugasemdum
um hönnunina og lýsti áhyggjum
sínum af því hversu fáar jarðtækni-
legar athuganir hefðu farið fram
á þeim áhrifum sem virkjunin og
lónið gætu orsakað.
Óviðunandi hættumat
Helstu athugasemdir Gríms lúta að
því að stíflan sé reist á virku sprungu-
svæði og að hættumat Landsvirkj-
unar sé því algjörlega óviðunandi. I
skýrslunni segir:
„Því má ljóst vera að jarðhiti þrífst í
sprungukerfi sem nær undir fyrirhug-
aða Kárahnjúkastíflu og hefur verið
ágætlega virkt með köflum a.m.k. sið-
ustu ío þúsund árin. Líkur [eru] til
þess að þetta mikla mannvirki eigi
að byggja ofan á sprungusvæði."
Grímur segir í skýrslu sinni að Al-
þingigetiekkiafgreittheimildarlögin
án þess að horfa til þeirra staðreynda
að stíflurof geti átt sér stað þegar
stíflan sé reist á sprungusvæði.
„Óviðunandi er að mínu mati fyrir.
Alþingi að afgreiða virkjanaleyfið, ef
ekki er tekið sérstaklega á þessum
þætti. Ella kann Alþingi sjálft að telj-
ast ábyrgt fyrir stærsta manngerða
hamfarahlaupi Islandssögunnar,
auk þess sem stíflan verður tæpast
endurgerð eftir að hafa rofnað einu
sinni."
inn á Alþingi þar sem ekkert nýtt
kæmi þar fram og hún væri jafn-
framt of tæknileg til umfjöllunar
þar. I fréttum Sjónvarpsins hafði
Valgerður þetta um málið að segja:
„Það er af og frá að halda því fram
að þarna hafa einhverju verið stungið
undir stól eða upplýsingum hafi
verið haldið frá Alþingi. Það er margt
í þessu sem krefst mikillar sérþekk-
ingar og það er hlutverk sérfræðinga
að fara yfir efni sem þessi,“ segir Val-
Of tæknilegt fyrir Alþingi
Þáverandi iðnaðarráðherra, Val-
gerður Sverrisdóttir, mat málið
þannig að skýrslan ætti ekki erindi
HELSTU ATHUGASEMDIR í SKÝRSLU GRÍMS
■ Hættumat Landsvirkjunar algerlega óviðunandi
■ Verulegar líkur að Kárahnjúkastíflan verði reist á virku sprungusvæði
■ Likur á stíflurofi umtalsverðar
■ Getur valdið landsigi og skertri afkastagetu lónsins
■ Þungi Hálslóns veldur tilfærslum á kviku og kann að hafa áhrif á eldvirkni
■ Tæknl við jarðgangagerð óþekkt og óreynd á Islandi
■ Þétting jarðganga getur orðið tímafrek og tafsöm
■ Talsverður leki Hálslóns og skert afköst virkjunar
■ Dregur úr náttúrlegri bindingu gróðurhúsalofttegunda í hafi
■ Lífmassar í hafi kunna einnig að finna fyrir tilkomu lónsins.
■ 14. febrúar2002
Grímur Björnsson kemur athugasemdum sínum á framfæri við yfirmenn Orkustofnunar
■ 18. febrúar2002
Orkumálastjóri kemur athugasemdunum á framfæri við Landsvirkjun og iðnaðarráðuneyti
■ 6. mars 2002
Fulltrúar Orkustofnunar og Landsvirkjunar funda um skýrsluna
■ 8. april 2002
Heimildarlög um virkjunina samþykkt á Alþingi
■ 9. janúar2003
Náttúruverndarsamtökum Islands og fréttamanni RÚV afhent gögnin
■ 14. april 2005
Samkvæmt upplýsingum frá Össuri Skarphéðinssyni greindi Valgerður Sverrisdóttir fyrst frá
athugasemdum Gríms á Alþingi þennan dag
gerður. „Það eru gríðarleg ósköp af
upplýsingum og sérfræðiálitum sem
eru til um þetta mikla mannvirki og
þau gögn geta ekki öll komið fyrir Al-
þingi. Niðurstaðan er sú að það þarf
ekki að hafa áhyggjur af þessum at-
riðum í skýrslu Gríms Björnssonar
nema einu atriði og það er atriði sem
Alþingi fjallar ekki um.“
Valgerður segir þessar upplýs-
ingar hafa komið fram í ræðu sinni á
Alþingi og Orkustofnun hafi einnig
sent þær á fjölmiðla og til Náttúru-
verndarsamtaka íslands í janúar
2003. Alþingi samþykkti hins vegar
heimildarlögin um virkjunina niu
mánuðum fyrr.
„Það er ekki hægt að rannsaka
allt fyrirfram, áður en ákvörðun er
tekin, það getur ekki allt legið fyrir
áður en lagt er af stað. Ég tel hafa
verið staðið mjög eðlilega að þessu
máli og er með hreinan skjöld,“
segir Valgerður.
Efasemdum lýst um stífluna
Grímur Björnsson geröi ýmsar
athugasemdir viö byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar. Athugasemdir
hans fóru til Orkustofnunar,
Landsvirkjunar og iönaöarráö-
herra en bárust þingmönnum
ekki fyrren eftirað framkvæmd-
Segist engu
hafa haldið
leyndu fyrir
Alþingi.
Valgeröur
Sverrisdóttir
fyrrverandi
iðnaðarráðherra.
Guöjón A. Kristjánsson
Átti fullt erindi
inn á Alþingi
„Það fer ekkert
á milli mála að
þessari skýrslu
var leynt
fyrir Alþingi
og ekki veit
ég til þess að
iðnaðarnefnd
hafi heldur
séð hana.
Alþingismenn hafa það hlutverk
að leggja mat á hlutina og við
erum iðulega að fjalla um ýmis
mál sem krefjast sérþekkingar.
Að sjálfsögðu átti að skoða þetta
alveg frá upphafi og meta hvort
færa þyrfti stífluna. Upp hefðu
komið fleiri vangaveltur um gerð
stíflunnar og hvort þetta svæði
væri heppilegt fyrir stíflu- og
jarðgangagerð. Allt 1 verkferli
framkvæmdarinnar hefur sýnt
það að viðvaranir Gríms Björns-
sonar áttu fullt erindi inn í um-
ræðu Alþingis. Það er einfaldlega
vítavert að þessar upplýsingar
hafi ekki komið fyrir sjónir
alþingismanna.“
Hjálmar Amason
Mannleg
mistök
,Þetta er eins
og hver önnur
upphrópun í
þessu máli og
þær hafa verið
margar frá
upphafi. Ég lít á
þetta sem enn
eitt upphlaupið
og pólitískan
leik til að setja blett á þessa fram-
kvæmd. Hér voru gerð mannleg
mistök þegar Orkumálastjóra láðist
að aflétta trúnaði yfir skýrslunni.
Það eru þvi engar annarlegar hvatir
hér að baki og allir sem að þessu
koma vinna að heiðarleika. Það er
rétt að bíða eftir viðbrögðum iðnað-
arnefndar en ég trúi því að hér hafi
allir gert sitt besta. Alþingismenn
eru bara 63 talsins og því er ég sam-
mála þáverandi iðnaðarráðherra
um að treysta verði á umsagnir
sérfræðinga sem til eru kallaðir.
Stjórn Landsvirkjunar ber ábyrgð á
framkvæmdinni og hvarflar varla
að nokkrum manni að hún sé að
ana áfram að lítt ígrunduðu máli.“
Ásta Möller
Rétt með-
höndlað
„Ég átti von á efn-
ismeiri skýrslu
en raun ber vitni
miðað við hina
miklu umræðu
sem orðið hefur.
Þetta eru meiri
vangaveltur
en fræðilegar
staðreyndir sem
þarna koma fram. Að mínu mati
finnst mér hún hafa verið með-
höndluð rétt og hefði ekki breytt
miklu í afstöðu þingsins þó hún
hefði verið kynnt um leið og hún
var gerð. Öllum atriðum skýrsl-
unnar var svarað á fundi Landsvirk-
unar. Mér finnst að Grímur hefði
sjálfur átt að koma athugasemdum
sínum á framfæri við almenning
með greinaskrifum. Það hefði þó
ekki skemmt fyrir ef skýrslan hefði
komið fyrir Alþingi því sem þing-
maður hefur maður lesið annað
eins.“
Össur Skarphéðinsson
Vísvitandi
blekkingar
„Valgerður segir
ekki rétt frá
þegar hún lýsir
afskiptum sínum
afskýrsluGríms.
Hún beitir
vísvitandi blekk-
ingum þegar hún
kveðst sjálf hafa
greint Alþingi
frá hinum grafalvarlegu viðvörun-
arorðum um sprungur og jarðhita-
virkni við Kárahnjúka. Niðurstaðan
er sú, að áður en alþingismenn
greiddu atkvæði nefndi Valgerður
Sverrisdóttir aldrei athugasemdir
Gríms og nefndi aldrei hættu vegna
eldvirkni eða sprungna. Það þarf því
ekki að fara í neinar grafgötur með
að Valgerður hélt upplýsingunum
leyndum fyrir þinginu og bætir nú
gráu ofan á svart með því að beita
blekkingum til að fegra fortíð sína.
Það breytir engu um að hún brást
upplýsingaskyldu sinni gagnvart
þinginu og er ábyrg fyrir þvi að al-
þingismenn höfðu ekki réttar upplýs-
ingar þegar þeir tóku ákvörðun sína.“
Kolbrún Halldórsdóttír
Alvarleg afglöp
ráöherra
,Þetta eru alvar-
leg afglöp í starfi
ráðherra þegar
hún ákveður
að ritskoða það
hvað sé þinginu
fyrir bestu. I
þessari skýrslu
er efni sem átti
fullt erindi inn
á Alþingi og það er ekki í verka-
hring ráðherra eða starfsfólks hans
hvað á erindi þangað inn og hvað
ekki. Ég spyr mig að því hvenær
sé tilefni til afsagnar ráðherra, ef
ekki nú. Þetta er yfirhylming í
þeim tilgangi að taka frekari vopn
úr höndum þeirra sem hafa alla
tíð andmælt virkjunarframkvæmd-
unum. 1 lýðræðissamfélagi er það
ekki ráðherra að meta hvað á
heima á Alþingi og þessi skýrsla er
til mikils gagns í þessum efnum að
meta hættuna sem af þessu kann
að leiða. Þessar upplýsingar hafa
legið fyrir allan tímann og hafa nú
verið staðfestar í þá veru að enn
meiri hætta sé þarna á ferðum.“