blaðið - 12.09.2006, Qupperneq 2
22 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 blaAÍA
ER
MAGINN
VANDAMÁL?
Silicol hjálpar!
Fæst í öllum apótekum
Smoothies
óvoxtodrykklr eru úr pressuðum óvöxtum.
WKmt wrnmmtr '
smoothlepack smoothiepack smoothlepack
iOO/joodf*,* 100/^ood foR ym 100/jood foK,*
Inga Kristjánsdóttir er ein þeirra
sem munu leggja isiendingum
línurnar varðandi bætta heilsu og
heilbrigt mataræði í fyrirlestraröð
Yggdrasils. bmí/fmí
Einfalt að breyta um lífsstíl
^Einstakar búð- og bárvörur unnar úr
ólífuolíu beint frá ^grikklandi
Olivia
45ví þú átt það besta skilið
cVörurnar fást í verslunum Jíaá^aupa,
‘Fjarðarkaupum Jfafnarfirði, gamkaupum
JTjjarðvík og heilsubúðinni ‘Reylyarvíkuvegi.
Verslunin Yggdrasill er um þessar
mundir að fara af stað með röð fyr-
irlestra sem allir fjalla um bætta
heilsu og hollt mataræði. Lagt er upp
með almenna fræðslu varðandi alla
þætti sem huga þarf að þegar heil-
brigði er annars vegar og línurnar
lagðar fyrir þá sem vilja breyta um
lífsstíl. Inga Kristjánsdóttir næring-
arþerapisti mun halda fyrirlestrana
ásamt öðrum ráðgjöfum, en sjálf
hefur hún lengi hjálpað fólki til
betri heilsu.
„Ég er búin að stúdera þetta lengi
og veit því vel hvað skiptir máli í
þessu öllu saman. Miðað við samtöl
SYNCRO
Heyrnartœki
með gervigreind
• Afgreiðslutími innan
þriggja vikna
• Bjóðum margar tegundir
af sjólfvirkum, sfafrœnum
heyrnartœkjum
• Verðfró 47.000-170.000 kr
fyrir eitt tœki
• Persónuleg og góð þjónusta
Akureyri - ísafíröi - EgilsstöOum
Heyrnurtœkni
Betri heyrn
-bœtt lífsgœði
www.heyrnartaekni.is
Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík • Tryggvabraut 22 600 Akureyri • sími: 568 6880
við skjólstæðinga mína hingað til
hef ég komist að þvi að fólk stendur
almennt í þeirri trú að breyting á
mataræði sé alltof erfið yfirhöfuð og
fólk verður fremur ráðvillt. Málið er
einfaldlega það að það að breyta um
lífsstíl er alls ekki óyfirstíganlegt og
hægt er að gera þetta án þess að það
verði of flókið,“ segir Inga og bætir
við að fólki hætti svolítið til að gera
hlutina of erfiða. „Það er ákveðin til-
hneiging hjá okkur að gera hlutina
of flókna og oft vilja renna á okkur
tvær grímur við þessar kringum-
stæður. En það sem mestu skiptir er
að fólk geri sér grein fyrir því að það
er auðvelt að henda í burtu þessum
flækjum og lítið mál að skipta um
mataræði.“
Mikilvægt að fá þægilegar lausnir
Inga segist þess fullviss að
hræðsla fólks við að breyta mata-
ræðinu til hins betra sé einfaldlega
vöntun á einföldum ráðleggingum
og aðgengilegri fræðslu.
„Einn af fyrirlestrum okkar
heitir Einfalda leiðin, en þar gefst
fólki einmitt færi á að fá góðar og
einfaldar ráðleggingar sem auð-
velt er að fylgja eftir. Við viljum fá
aðgengilegar upplýsingar áður en
við förum af stað í breyttan lífsstíl
og það er einfaldlega það sem þarf
hverju sinni. Svo er líka svolítið vill-
andi fyrir fólk að fá upplýsingarnar
út um allt og stundum vita menn
ekki hverju þeir eiga að trúa, sérstak-
lega þegar allskyns hugmyndir eru
á lofti um hitt og þetta,“ segir Inga
og bætir við að til standi að fyrir-
lestrarnir taki mið af þægilegum
leiðum og aðgengilegu mataræði.
„Við ætlum að reyna að sýna fólki
fram á að það sé alls ekki erfitt að
breyta mataræðinu til batnaðar og
við munum gefa góðar og skemmti-
legar hugmyndir, t.d. um það sem
gott er að taka út úr mataræðinu
og hvað getur komið í staðinn. Það
er orðið þannig núna að það er til
svakalega mikið af góðri matvöru
og það er meira að segja hægt að fá
kökur, kex og flögur sem búið er að
vinna úr góðu hráefni og er miklu
betra fyrir kroppinn. Svo má ekki
gleyma því að lífið er farið að ganga
svo hratt og mikið að gera hjá fólki,
en þá er auðvitað mikilvægt að vera
með þægilegar lausnir á hreinu sem
henta vel í amstri dagsins.“
(slendingar meðvitaðir
um heilsuna
Að sögn Ingu eru íslendingar al-
mennt meðvitaðir um mikilvægi
bættrar heilsu og opnir fyrir því
að breyta um líferni, þrátt fyrir að
eiga erfitt með að finna sér réttar
leiðir. Sjálf bjó hún í Danmörku,
þar sem henni finnst fólk ekki eins
meðvitað.
„I samanburði við Dani erum við
til dæmis mjög fljót að taka við
okkur. Þjóðfélagið er lítið og hlut-
irnir fljótir að smitast á milli. Svo
erum við orðin frekar framarlega
varðandi hollan mat og hann hægt
að fá víða, svo sem lífrænan mat og
vel unnar vörur.“
Fyrirlestrarnir verða haldnir á
miðvikudagskvöldum í sal Yggdra-
sils á Skólavörðustíg og mun hver
standa yfir í tæpar tvær klukku-
stundir. Inga segir hvern fyrirlestur
hafa sína sérstöðu og alls verða
fjórar tegundir gangandi til skiptis.
„Einn fyrirlestranna fjallar um ein-
földu leiðina til betra mataræðis þar
sem til dæmis er talað um að skipta
út hvítu hveiti fyrir Hfrænt ræktað
heilhveiti, skipta út hrísgrjónum
fyrir hýðshrísgrjón o.s.frv. Svo verða
nokkrar aðrar tegundir fyrirlestra,
svo sem fyrirlestur um Hauscha-
snyrtivörurnar og éins námskeið
um hollt líferni barna sem eigandi
Yggdrasils, Hildur Guðmundsdóttir,
mun halda. Eins munum við verða
með fræðslu varðandi blóðþrýsting,
þreytu og slen og lausnir til þess að
koma í veg fyrir slíkt. Þetta verður
alla vega mjög fjölbreytt hjá okkur
í haust og allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.“
Skráning á fyrirlestrana er í
verslun Yggdrasils, Skólavörðustíg í
Reykjavík.
halldora@bladid.net