blaðið - 12.09.2006, Síða 3

blaðið - 12.09.2006, Síða 3
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 HEILSA I 23 Nýtt Style-salat ( heilsublaðinu að þessu sinni þýðir lítið annað en að mæla með nýjasta réttinum á American Style, en rétturinn er með þeim holl- ari á matseðli staðarins. Eftir miklar vinsældir gamla góða salats- ins var afráðið að leggja drög að nýju salati sem sannarlega svíkur engan - Style-salatið. Rétturinn er hugsaður sem grænn hollusturéttur fyrir alla, unga sem aldna, og sérstaklega þá sem vilja fara með vinum og vanda- mönnum á hamborgarastað en vilja samt sem áður sniðganga hamborgarana. Innihald salatsins er kjúklingur, klettasalat, spínat, rautt romaine, lollo rosa, frisee-salat, ristuð sólblómafræ, beikonbitar og kokteil- tómatar. Salatið er borið fram með ólívolíu og vinegar-dressingu. [ bókinni Grænn kostur Hagkaupa er ógrynni skemmtilegra uppskrifta sem allar hafa hollustuna í fyrirrúmi, en Sólveig Eiríksdóttir tók þar nokkra af sínum hollu og góðu réttum. Meðfylgjandi er uppskrift af sérstaklega góðu spelt-pasta úr bókinni sem auðvelt er í undirbúningi og einstaklega gott á bragðið. Spelt-pasta og þlstilhjörtu • 400 g spelt-pastaskrúfur • 300 g tofu • 4 msk tamari sósa • 1 msk fersk engiferrót • 1 msk sesamfræ • 1-2 msk ólífuolía • 1 tsk rauðlaukur • 2 stk hvítlauksrif 1 krukka þistilhjörtu • 300 g ferskt spínat • Smá sjávarsalt og nýmalaður pipar • 25 g furuhnetur • 2 dl parmesanostur Sjóðið pastaskrúfurnar samkvæmt leiðbeiningunum á pakkanum. Tofu fæst tilbúið marinerað og það er frábært að nota það. Rífið engiferrótina og skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar. Pressið hvítlaukinn, setjið þistilhjörtun í sigti og látið vökvann leka af þeim. Þurrristið furuhneturnar og rífið parmesanostinn gróft. Blandið saman sojasósu, ferskri engiferrót og semamfræjum, skerið tofu í bita og veitið upp úr soja-blöndunni. Hitið olíu á pönn og léttsteikið rauðlauk og hvítlauk. Bætið tofu og þistilhjörtum útí og látið malia í 3-5 mínútur. Bætið spínati og pastaskrúfum útá pönnuna og bragðið til með sjávarsalti og nýmöluðum svörtum pipar. Stráið að lokum parmesanosti og fururhnetum yfir. Blue Lagoon orkute Einslakt jurtate sem veitir aukna orku, jafnvægi og veljiðan. Inniheldur hvönn, vallhumal og mjaðurt úr hreinni íslenskri náttúru. Koffeinlaust. BUUGOOH BLUE LAGOON kelondic energizing tea Fáanlegt í Blue Lagoon verslunum í Bláa lóninu, að Laugavegi 15, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í netverslun á www. bluelagoon. is 050» 3— ... . .rfý BLUE LAGOON www.bluelagoon.is í góðurp malum FHugsaðu um hollustuna! Ef þú vilt aö hrökkbrauöið þitt sé hollt en líka sérlega bragðgott skaltu velja Burger hrökkbrauð. í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Svo er bragðið er ómótstæðilegt. Það er engin tilviljun að Burger er mest selda hrökkbrauðið á íslandi.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.