blaðið - 12.09.2006, Síða 6
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 blaðiö
Byggbuff- Rauðrófubuff
Byggsalat Tabúle
-lífrtenn skyndibiti
Einu íslensku réttirnir úr
100% lífrænt ræktuðu hráefni
Ræktað og framleitt hjá Móður Jörð í
Vallanesi á Héraði
moðtr
i f t i 1 t * %
Kripalu DansKinetics®
Dansjóga
Njóttu þess aö dansa!
Kenndar eru einfaldar danshreyfingar, engin stíf dansspor,
einnig er unnið í dansflæði þar sem einstaklingurinn nýtur sín
og fær útrás fyrir eigin hreyfingarþörf.
Dansinn losar um orkustíflur og eykur brennslu,
jógateygjurnar mýkja líkamann og veita innri ró.
Tíminn endar í gó&ri slökun.
Þú endurnýjast óTíkama og sáll
Marta Eiríks.
Fitusog án skuröaögerðar
• Á aðeins 10 dögum færðu árangur sem jafnast á við fitusog
• Húðin stinnist og appelsínuhúðin hverfur
• Þú ert mæld.magi rass og læri, fyrir og eftir
• Öflugasta cellómeðferð hingað til sem stittir biðtímann um margar vikur
• 6 mismunandi aðferðir notaðar á þig til að skila sem mestum árangri
• 100% ánægja þegar meðferðinni er lokið...
Verö: 37.400,-
Ef þú pantar strax í dag Minna Mál grenningarmeðferðina færðu hana
á tilboðsverði kr: 21.900,-
Hringdu núna, síminn er: 577 7007
Kínastofan • Stórhöfði 17 • 110 Rvk
Mysupróteiniö sem hefur náð að auka
Glutathione* á náttúrulegan hátt og styrkja
þannig ónæmiskerfi líkamans.
*Aðal andoxunarefni frumanna sjálfra og afeitrari
líkamans. Starfsemi og virkni ónæmiskerfisins fyrir
t.d. C og E vitamin og ðnnur andoxunarefni, árangur
af lyfjagjöf, vörn gegn sýkingum,
líkamlegt þrek og heilbrigði og baráttuþrek hvítra
blóðkorna er algjörlega háð náttúrulegum
Glutathíone forða Ifkamans.
Immunocal á íslandi ehf. S. 533 3010
Heilsunuddhúsið Vitamin.is Heilsuhúsið
Selfossi, S. 898 6544 www.vitamin.iswww.heilsa.is
26 I HEILSA
Spennondi dansnámskeið
Allir geta lært að dansa
Fátt er ljúfara á svölu haustkvöldi
en að stíga dans við hressandi tón-
list og horfast í augu við myndarleg-
an pilt eða brúneyga stúlku. Margir
þurfa að bíta í það súra epli að kunna
ekki að dansa og halda sig þvi til
hlés þegar dansinn dunar og verma
bekkina. Þeir þurfa þó alls ekki að
örvænta því Jón Pétur hjá Dansskóla
Jóns Péturs og Köru fullyrðir að allir
geti lært að dansa. „Ég fæ oft til mín
fólk sem segist vera taktlaust og geti
því ekki lært að dansa. Allt annað
kemur svo á daginn þegar fólk fer
að reyna og leggur sig fram á nám-
skeiðunum okkar. Fólk er miklu
fljótara en það grunar að ná upp
samhæfingu og læra að hreyfa sig
við tónlistina."
Jón Pétur segir alltaf vera tölu-
verða eftirspurn eftir því að komast
í dansskólann.
„Aðsóknin hjá okkur hefur verið
nokkuð stöðug undanfarin ár, en
auðvitað rokkar þetta alltaf eitthvað
frá ári til árs. Við leggjum áherslu
á að yngstu nemendur okkar læri
sígilda dansa en fái líka að spreyta
sig á dönsum með frístæl-ívafi og að
hver og einn fái að njóta sín í dansin-
um á sínum eigin forsendum."
Börnin blómstra
„Dansinn hefur tvímælalaust mik-
il áhrif á félagshæfni barna og und-
irbýr þau vel undir ýmislegt sem
þau þurfa síðar að takast á við á lífs-
leiðinni. Margir foreldrar sjá þessa
kosti og nýta sér þá þegar börn
eru feimin og senda þau til okkar
en mörg börn koma af eigin frum-
kvæði. Við höfum séð krakka hjá
okkur taka miklum breytingum,
þau koma oft til okkar mjög ófram-
færin en eru fljót að öðlast sjálfs-
traust í dansinum. Við erum líka
alltaf mjög ánægð að sjá krakka hjá
okkur blómstra og láta að sér kveða
á öðrum vettvangi - kannski í leik-
húsi eða á sviði tónlistar,“ segir Jón
Pétur, stoltur af starfi skólans.
Stelpur í meirihluta.
Jón Pétur segir stelpurnar vera
í nokkrum meirihluta nemenda.
„Það verður að viðurkennast. Það
er enn dálítið ríkjandi að strákar
séu sendir í fótbolta og stelpur eitt-
hvað annað en ég held að þetta sé
þó að breytast. Ég hef oft séð stráka
standa hjá og horfa öfundaraugum
á vini sína sem hafa fengið þjálfun
í dansi og kunna að bjóða stúlkum
upp. Það er þó aldrei of seint að læra
að stíga sporið og við erum með fólk
á öllum aldri í skólanum hjá okkur.“
Tískan hefur áhrif á dansinn líkt og
flest annað. Jón Pétur segir að leik-
húsin hafi töluverð áhrif í þessu
sambandi og eftir að Footloose var
frumsýnt þá hafi börnin flykkst í
skólann og langað að læra þau spor
sem þar voru stigin. „Þessar bylgj-
ur standa yfirleitt stutt við en það
eru alltaf þónokkuð margir krakk-
ar sem fara á þessar sýningar og sjá
í hillingum að geta lært þessi spor.
Við leggjum okkur fram um að
gera öllum til hæfis og höfum reynt
að vera dugleg að svara þessari eft-
irspurn.“ Innritun stendur nú yfir
í Dansskóla Jóns Péturs og Köru
og má finna nánari upplýsingar á
www.dansskoli.is.
'Hreystin kemur innan frá
( bókinni Hreystin kemur innan frá
má finna ógrynni upplýsinga um
aukið heitorigði og skemmtileg ráð.
(einum kafla bókarinnar er fjallað
sérstaklega um hreinsun líkamans,
sem kemur jafnvægi á líkamsstarf-
semi og magnar upp orku hugar og
holds.
Hér eru nokkur ráð sem finna má
í bókinni.
Byrjaðu á því að fá þér glas
af heitu vatni með sítrónu-
safa. Það hressir ótrúlega,
hreinsar tungu og góm
og auðveldar lifrinni að
losna við úrgangsefni.
Láttu vatnið sjóða
og kældu það
síðan niður
áður en þú
bætir sítrónu-
safanum út í. Á
veturna er gott að
krydda vatnið með
malaðri engiferrót sem
hleypir hita í kroppinn.
2Drekktu að minnsta kosti
1,5 lítra af vatni á dag. Sítrónu-
vatnið er góð byrjun hvern morgun
og heldur þér frá kaffi og tei. Ekkert
mælir þó gegn því að þú fáir þér
jurta- eða ávaxtate.
3Borðaðu að minnsta kosti þrjár
máltíðir á dag. Þú ættir að
borða einn skammt af hýöishrís-
grjónum á dag og í það minnsta
þrjá skammta af grænmeti, þar
af einn hráan. Gleymdu því ekki
að matjurtunum geturðu breytt í
girnilega drykki eða hitað safann
af þeim svo úr verði lystugar súpur.
Eins má snöggsteikja græn-
metið á pönnu, gufusjóða
það eða baka í ofni.
Hressandi
drykkur
Þeir sem vilja góðan og sval-
andi drykk sem inniheldur fáar
kaloríur ættu hiklaust að prófa
nýjasta afbrigði sódavatns á
markaðnum, Topp T2. Drykkur-
inn, sem er létt kolsýrður með
hreinum ávaxtasafa, er virki-
lega hressandi þegar þorstinn
gerir vart við
sig auk þess
sem kröftugt
ávaxtabragðið
gerir drykkinn
sérstaklega
svalandi.
ToppurT2
er fáan-
legur með
tveimur
bragðteg-
undum,
sítrónu- eða
perubragði,
í 0,5 lítra
hand-
hægum um-
búðum sem
henta vel
við hvaða
tækifæri
sem er.