blaðið - 15.09.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2006
blaöið
hH'
INNLENT
HJALPARSTARF
Sex milljónir til Darfúr
Utanríkisráðuneytið lagði á dögunum fram
sex milljónir króna til hjálparstarfs á vegum
kirkjunnar í Darfúr-héraðí í Súdan. Hjálparstarf
kirjunnar hefur nú miðlað tólf milljónum króna til
bágstaddra í Súdan.
VIÐSKIPTI
Exista í Kauphöllina
Hlutafé fjármálafyrirtækisins Exista verður skrað
á aðalllsta Kauphallarinnar i dag. Skráning Exista
er stærsta nýskráning félags í Kauphöllina til
þessa, en markaðsvirði félagsins er rösklega 230
milljarðar króna..
HEILBRIGÐISMÁL
Reyksíminn fær styrk
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að styrkja
starfsemi Reyksímans með þriggja milljóna króna framlagi á
ári í tvö ár. Um er að ræða viðbót við árlegt framlag Lýðheilsu-
stöðvar, sem verið hefur þrjár milljónir króna á ári undanfarin
ár, og því er þetta tvöföldun fjár til starfseminnar.
íslendingar enn i haldi Mál
Hlyns Sigurz er enn í rannsókn
og heldur lögreglan því opnu
hvort fleiri íslendingar eigi þátt
í smyglinu
Lögreglan rannsakar enn mál íslendings:
Rannsaka tengsla-
net Brasilíufanga
Rannsókn stendur enn yfir í
máli Hlyns Rúnars Sigurz, annars
af tveimur fslendingum sem eru í
fangelsi í Brasilíu. Samkvæmt lög-
reglumanninum José Williams
Machado de Souza er lögreglan
að rannsaka tengslanet Hlyns. Því
er haldið opnu í rannsókninni að
annar fslendingur hafi átt þátt í
smyglinu.
Samkvæmt heimildum Blaðsins
hefur fjölskylda Hfyns náð sam-
bandi við hann en konsúll íslands
í Brasiliu vinnur að því að fá sóma-
samlegan lögfræðing til að taka
málið að sér. Að sögn lögreglu
nýtur hann nú lögfræðiaðstoðar
opinbers verjanda.
Ekki er vitað um aðbúnað Hlyns
en fangelsi í Brasilíu munu vera
með þeim verri sem fyrirfinnast í
veröldinni.
Málið hefur vakið nokkra at-
hygli á meðal brasilískra blaða-
manna vegna þess að íslendingar
eiga hlut að máli.
Microsoft
Microsoft
Excel
MftM Mtcrosoft
Skr Word
Microsoft
Excel
Viobo*Photoshop totus. notes
WWW.TOLVUNAM.IS • SÍMI: 552*2011 • TOLVUNAM'TOLVUNAM
Skortirfjármagn Sviðsstjóri
geðsviðs Landspitalans segir
fjárskort eina af ástæðum
þess ad biðlistar hafa myndast
og að bygging göngudeildar
myndi leysa vandann.
Vandi barna og fjölskyldna þeirra:
Geðheilbrigðismál
í algjörum ólestri
■ Skólana skortir fé og þekkingu ■ Kallað eftir aðgerðum
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Alveg ljóst er að málefni barna með
geðvandamál eru í algjörum ólestri
og við finnum gífurlega þörf fyrir að
bætt verði úr því fjölskyldur í vanda
leita mjög mikið til okkar,” segir
Jarþrúður Þórhallsdóttir, foreldra-
ráðgjafi hjá Sjónarhóli, og ítrekar að
um það bil helmingur allra þeirra
sem leita til Sjónarhóls kemur vegna
þess að barnið þeirra þrífst ekki í
skólanum.
Barna- og unglingageð
deild Landspítalans, BUGL,
stendur frammi fyrir gíf-
urlegum biðlistum og
er biðtími þar kominn
í fjórtán mánuði. Fjöl-
skyldur barna sem
greind hafa verið
með alvarleg hegð-
unarvandamál líða
fyrir þennan langa
biðtíma.
Guðmundur Sig-
hvatsson, skólastjóri
Austurbæjarskóla, kýs
frekar að kalla þetta
verkefni en vandamál.
„Við þekkjum þetta verk-
efni mjög vel og í mínum
huga snýst þetta aðallega um
kostnað. Tilað sinnahverjumáli
fyrir sig þarf starfsmann og sér-
þjálfaður aðili kostar nokkra hundr-
aðþúsundkalla á mánuði. Nokkuð
ljóst er að fjármagnið sem veitt er
í sértæk úrræði í grunnskólanum
nægir hvergi,” segir Guðmundur.
„Þetta er búið að vera svona í mörg
ár.”
Biðlistarnir hamla mjög
Aðspurð segir Jarþrúður grein-
ingu frá BUGL hjálpa fjölskyldum
mjög í því að fá aðstoð í skólunum
því eftir greiningu aukast líkurnar
á fjárstuðningi hvers skóla fyrir sig.
„Greina þarf börnin fyrr og veita
þeim og foreldrum meiri stuðning.
Hingað til hefur verið rætt um að
bæta þurfi úr og sérfræðingar hafa
skoðað þessi mál. Við höfum hins
vegar ekki séð nein bætt úrræði
á málverkum
Eingöngu í Skútuvogi og Grafarholti
HÚSASMIÐJAN
akkert mál
ennþá,” segir Jarþrúður. „Foreldrar
leita til okkar eftir stuðningi og
ráðgjöf en við rekum okkur sífellt
á hinn langa biðtíma sem er hjá
BUGL. Sú þjónusta sem býðst utan
geðdeildarinnar er ekki nógu mark-
viss eða heildræn.”
„Skólana vantar stuðning, það
mál eru í algjör-
um ólestrí.
Jarþrúður Þórhallsdóttir
Foreldraráðgjafi
Sjónarhóls
er ekki spurning. Málin eru þar í
miklum ólestri og börnunum fylgir
ekki fé inn í skólana til að taka á
þessum málum. Skólarnir ná
ekki að búa nógu vel að
þessum börnum og þar
vantar skilning á mis-
munandi þörfum
barnanna,” segir Jar-
þrúður. „Þekking
þarf líka að vera
til staðar í skól-
unum til þess að
taka á mismun-
andi röskunum.
Þeir eru líklega
að gera sitt besta
en það vantar
mikið upp á enn.
Þetta er því miður
ekki nóg.”
Kemur ekki á óvart
Guðmundur segir
umræðuna um að sér-
fræðiþekldngu skorti í
grunnskólum til að taka á
sértækum málum ekki koma sér
á óvart „Þetta kemur mér alls ekki
á óvart. Grunnþelcking kennara
snýr að kennslufræði og við erum
að tala hér um mjög sértæka þekk-
ingu sem þarf til að mæta erfiðum
verkefnum,” segir Guðmundur.
.Þessa þekkingu þurfa skólarnir
að geta keypt og slíkt er ekki raun-
hæft miðað við fjárskortinn sem
fyrir er.”