blaðið - 15.09.2006, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2006
blaöiA
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Skeytin inn
Lí
edley King, íyrirliði Totten
ham, segir að liðið eigi að
lleika í Evrópukeppninni
hvert einasta tímabil. „Við erum
hæstánægðir með að vera aftur
komnir í Evrópukeppnina og
allt liðið er hungrað í ár-
angur,“ sagði King. Spurs
tók á móti Slavia Prag
í gærkvöldi í fyrsta Evrópuleik
sínum frá árinu 1999. Liðið
varð síðast Evrópumeistari
félagsliða 1984 og segir
varnarjaxlinri að sá árangur
geti vel verið endurtekinn
í vor. „Ef við spilum eins
og við gerum best eigum
við að geta farið alla leið.“
v/
VIÐGERÐIR FYRIR FLESTAR GERÐIR VELA
VELAVERKSTÆÐIÐ
VARAHLUTAVERSLUN
Kistuf8ll@kistufell.com
Tangarhöfða 13 Sími 5771313
Vélaviðgerðir, túrbínuviðgerðir
og spíssaviðgerðir.
Vélaverkstæðið Kistufell býður
upp á stimpla og slífar í flestar
gerðir véla frá hinum þekkta
framleiðanda Mahle.
Æ'
mnHLE
\
^Pakkningarsett
^Ventlar
^Vatnsdælur
i'Tímareimar
t/Knastásar
Legur
Stimplar
www.kistufell.com
Dómarinn er ekki lúði
Enska áhugamannaliðinu Stambridge United hefur verið meinað að klæðast
nýjum keppnisbúningum sínum þar sem á þeim stendur: „The referee’s a wan-
ker“ sem á íslensku gæti útlagst: „Dómarinn er lúði“. Samtök áhugamanna-
liða segja frasann vera móðgandi en styrktaraðili Stambridge, rithöfundurinn
Chris Turner, segir bannið fáránlegt.
HM í aflraunum fatlaðra fer fram á íslandi um helgina:
Eina aflraunamót
fatlaðra í heiminum
■ Áhugi á kraftlyftingum fatlaðra fer vaxandi ■ Frábær stemning
Keppnin Sterkasti fatlaði maður
heims fer fram í dag og á morgun og
er þetta í fimmta sinn sem keppnin er
haldin hér á landi. Kraftlyftingamað-
urinn Arnar Már Jónsson er þjálfari
íþróttafélags fatlaðra í lyftingum og
hefur haft veg og vanda að mótinu frá
því að það var sett á laggirnar fyrir
fimm árum. Keppt er í flokki sitjandi
(þeirra sem eru í hjólastól) og stand-
andi og verða því krýndir tveir heims-
meistarar um helgina.
„Ég er búinn að þjálfa hjá ÍFR í lyft-
ingum frá árinu 1991. Það var svona
hugmynd hjá mér að sjá hvað þessir
strákar geta og þeir geta einfaldlega
miklu meira en maður heldur. I fram-
haldi af því fór ég að sérhæfa greinarn-
ar og búa til þessa keppni sem er alltaf
að stækka og vinda upp á sig,“ segir
Arnar. Hann segir að keppnin sé keim-
líkhinum hefðbundnu aflraunakeppn-
um, eini munurinn sé að greinarnar í
þessu móti séu sérhæfðari.
DAGSKRA MÓTSINS:
Föstudagur
Lækjartorg kl. 15
■ Bíldráttur með höndum. Bíll sem er
2,5tonn.
■ Uxaganga. Gengið með 180 kg kúta
20 metra vegalengd.
■ Öxullyfta. 80 kg lyft eins oft og hægt
erátíma.
■ Bóndaganga. Gengið með 80 kg I
hvorri hendi eins langt og menn komast.
Krossfesta með 10 kg í hvorri hendi á
tíma.
Laugardagur
Fjörukráin Hafnarfirði kl. 11
■ Drumbalyfta. 80 kg.
■ Herkúlesarhald. 80 kg í hvorri hendi
á tíma.
■ Réttstöðulyfta. 180 kg lyft eins oft og
hægt er á tíma.
fþróttahús ÍFR Hátúni 14 kl. 14.00.
■ Hleðslugrein með bobbinga - 35 kg og
55 kg á tíma.
■ Steinatök. Atlas kúlusteinar.
Burðast með kúlusteininn Góð
aðsókn var á heimsmeistaramótið í
aflraunum fatlaðra í fyrra og er ekki
von á öðru í ár.
Vakningin tekur tíma
Hann segir aflraunir vera afar vin-
sæla íþróttagrein meðal fatlaðra og
stöðugt fleiri sem leggja stund á kraft-
lyftingar. „Þeir bíða eftir þessu í heilt
ár, alveg frá þvi að síðustu keppni
lýkur, og eru að undirbúa sig fyrir
þetta allt árið,“ segir Arnai og bætir
við að áhuginn sé einnig að aukast ut-
an frá, en auk þeirra níu Islendinga
sem verða með í ár koma keppendur
frá Finnlandi, Svíþjóð og Færeyjum.
„Finninn er búinn að vinna öll ár-
Vin í flokki sitjandi og hann er
búinn að segja að hann ætli
. að koma hvert einasta ár
: sem við höld-
m * um þetta,"
FANTASTIC MATCH
Kavíar línan gefur húðinni létta
andlitslyftingu og fallegan Ijóma!
Sjón er sögu ríkari ...
Velkomin á kynningu í Hygeu Smáralind
í dag og á morgun föstudag
kl. 13-17 báða dagana
Bjóðum nýtt kortatímabil
10% kynningarafsláttur
og fallegur kaupauki
www.laprairie.com
H Y G E A
jnyrtivöruverjlun
Smáralind • Sími 554 3960
segir Arnar. Mótið er hið eina sinnar
tegundar í heiminum og eru íslending-
ar því frumkvöðlar á þessu sviði. „Ég
hef verið að kanna málið og er búinn
að komast að því að þetta er eina afl-
raunamót fatlaðra í heiminum. Það
er þó sannarlega að verða vakning,
en það tekur auðvitað einhver ár að
byggja þetta upp,“ segir Arnar. Mótið
verður sýnt beint í sjónvarpinu, eins
og undanfarin tvö ár, en hann hvetur
alla til að mæta á staðinn og fylgjast
með og lofar að fólk muni ekki verða
fyrir vonbrigðum. „í fyrra var alveg
troðið niðri á Lækjartorgi og frábær
stemning. Það er ótrúlega gaman að
fylgjast með þessum strákum."
Myndin um Jón Pál vekur athygli
Arnar hefur sjálfur keppt í kraft-
lyftingum og aflraunum um árabil
en segir fremur lítið um að vera um
þessar mundir. „Ég og Magnús Ver
erum reyndar búnir að stofna nýtt
lyftingasamband og ætlum að halda
mót í nóvember, svonefnt „Pull and
push“, þar sem eingöngu verður
keppt í bekkpressu og réttstöðulyftu.
Stefnan er að hafa þetta í Smáralind
eða á einhverjum fjölförnum stað og
fá fólk til að mæta og fylgjast með,“
segir Arnar.
Aflraunakeppnir voru mjög vinsæl-
ar hér á landi á tíunda áratugnum en
Arnar segir að áhuginn hafi minnkað.
„Þegar Jón Páll var upp á sitt besta og
Jötnamótin voru sýnd í sjónvarpinu
voru allir að fylgjast með þessu.
Áhuginn er minni en var
þá en það er hins vegar
: y. fullt af jákvæðum
hlutum í gangi
núna, til dæm-
is hefur mynd-
in um Jón Pál
vakið mikla
athygli, og við
horfum björt-
um augum á
framtíð grein-
arinnar," segir
Arnar.
Sven-Göran Eriksson:
Vill þjálfa á ný
Sven-Göran Eriksson, fýrrum
landsliðsþjálfari Englendinga, er
staðráðinn í að snúa sér aftur að
þjálfun.„Égþarf
að fara aftur að
þjálfa. Arsenal,
Liverpool, Manc-
hester? Þetta eru
allt stór félög,
en ég vil ekki
eitthvert ákveðið
félag frekar en
annað. Að taka
við stjórn einhvers þessara væri frá-
bært,“ sagði Eriksson. Hann sagðist
enn fremur harma að hafa ekki náð
betri árangri með enska iandsliðið.
„Ég átti frábær ár með landsliðinu
og það er synd að við höfum eldd
náð betri árangri. En ég verð alltaf
stoltur af því að hafa verið fyrsti
útlendingurinn á bekk landsliðsins."