blaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 8
26 I HÚSBYGGJANDINN
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 blaöiö
Val á inni-
hurðum
Við val, kaup og uppsetningu
á innihurðum er um að gera að
skoða úrvalið og leita ráða hjá fag-
mönnum sérverslana. Best er að
hafa nokkur atriði á hreinu áður
en farið er að kaupa hurðirnar á
heimilið. Þekkja þarf nákvæmlega
veggþykktina og mæla breidd og
hæð á hurðaropinu. Eins þarf að
ákveða hvort um vinstri eða hægri
hurðaropnun er að ræða. Við val
á útliti hurðanna er ágætt að taka
mið af því að nota aðeins eina
viðartegund þannig að hurðirnar
og aðrar innréttingar ásamt gólf-
efnum skapi fallega heildarmynd.
MARGAR GERÐIR
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
www.brynja.is • brynja@brynja.is
Rýmingarsala
á tilbúnum
Rimlum
Margir litir
og stærðir
Z-brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • S.525 8200
Óklárað en heimilislegt
Stundum þarf að flytja inn á nýtt heimili án þess að allt sé tilbúið en
það getur reynt á þolinmœðina eins og eflaust margir húsbyggjendur
kannast við. íþessum tilvikum er um að gera að látafara vel um sig
og reyna aðgera umhverfið sem huggulegast.
■ Njótið þess að hafa ekki allt
tilbúið og lítið svo á að þið hafið
óteljandi möguleika til að hanna,
breyta og betrumbæta. Gluggið
í tímarit og kíkið í verslanir en
þannig getið þið fengið góðar
hugmyndir að draumaheimilinu.
I Málið veggina í fallegum litum
og hengið upp myndir.
■ Haldið öllum hlutum vel til
haga þannig að skipulag sé á
þrátt fyrir að ekki séu allar inn-
réttingar komnar upp.
■ Ef gólfefni eru ekki komin á
þá er tilvalið að mála yfir gólfin
þannig að þau séu snyrtilegri og
velja sér svo fallegar mottur sem
hylja gólfin og gera þau hlýlegri.
■ Veljið fallega lampa og hafið
lýsinguna heima fyrir sem nota-
legasta. Þannig virkar rýmið
ekki jafn kuldalega og það getur
gert þegar húsið er óklárað.
■ Gætið þess þó að láta ekki fara
of vel um ykkur því að þá er hætta
á því að það dragist á langinn að
ljúka þeim framkvæmdum sem
eftir eru. Takið eitt herbergi fyrir
í einu og klárið heimilið í smáum
skrefum. Það er miklu auðveldara
en að ætla sér of mikið í einu.
Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu
Samkvæmt Fasteignamati rík-
isins var vísitala íbúðaverðs á höf-
uðborgarsvæðinu 313,1 stig ísept-
ember 2006 og hækkaði um 0,7%
frá fyrra mánuði. Síðastliðna þrjá
mánuði hækkaði hún um 1,3% en
síðastliðna 6 mánuði hefur hún
hækkað um 2,9% og hækkun
síðastliðna 12 mánuði var 10,5%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar-
svæðinu sýnir breytingar á vegnu
meðaltali fermetraverðs. íbúð-
arhúsnæði er skipt í flokka eftir
stærð og hvort það telst fjölbýli
eða sérbýli. Reiknað er meðalfer-
metraverð fyrir níu flokka íbúðar-
húsnæðis. Niðurstaðan er vegin
með hlutdeild viðkomandi flokks í
heildarverðmæti á markaði miðað
við undangengna 24 mánuði.