blaðið


blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 2

blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 2
FERMINGAR MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaöiö (júní 2004 varð séra Gunnar Sigurjónsson sterkasti prestur helms. r KökuhaMkam LatíU/ UM, WÚlMM'þÍM' IKökubankinn ÉkJ BAKAR Í KOMDITORI lönbúð 2 - Garöabæ - sími: 565 8070 > Fermingarboöskort Álfabakka 14 - sími 557 4070 - myndval@myndval.is Formaður Heimilis ogskóla: Finnur ekki fyrir stressinu vio ferminguna Ásta Margrét Eiríksdóttir mun þann 19. apríl, sumardaginn fyrsta, fermast í Fríkirkjunni í Hafnar- firði. Móðir hennar, Maria Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, mun þá standa í ströngu við að tryggja það að fermingardag- urinn gangi vel fyrir sig. Blaðið spjallaði aðeins við Maríu um fermingarundirbúninginn. María segist lítið verða vör við það álag sem á að fylgja því að standa í því að láta ferma barn. ,Við ákváðum að hafa veislu heima og verðum með á milli 80 og 100 manns þannig að mesti undirbún- ingurinn er eftir. Ég held að hver geti haft svona athöfn og veislu eftir sínu höfði. Ég ætla að vera með móttöku milli klukkan sex og átta og verð með léttan mat, hlaðborð.” Hún segir að með því að nýta sér hjálp vina og ættingja verði álagið mun minna. „Ég ætla að elda sjálf en ég ætla að virkja fjölskyldumeðlimi og vini. Ég og nokkrar vinkonur mínar og fjöl- skyldan höfum ákveðið að styðja hvert annað í þessu ferli. Gera einn rétt og koma með og gera svo hið sama fyrir hina. Það mun létta á öllum.” María segir að sér finnist sem sjálfræði fermingarbarnanna hafi aukist mikið og það stuðli að því að allur fermingarundirbúningur- inn verði mun ánægjulegri fyrir börnin, hún valdi til dæmis ferm- ingardaginn sjálf. „Það var mikið mál að velja þennan dag, það er líka fermt 1. apríl en dóttir mín hélt að þá yrði bara gert grín að henni. í mínu tilfelli þá ákvað dóttir mírt' að fermast i Fríkirkjunni en við erum í Þjóðkirkjunni. Þetta val var algjörlega hennar, hún þekkir til prestanna og þetta hefur gert allan undirbúninginn og hennar fermingarfræðslu miklu ánægju- legri fyrir hana.“ Hún segir að mun meira frjáls- ræði ríki í klæðavali fyrir ferming- una. „Ég upplifi hjá dóttur minni og í hennar vinahópi að þau eru ekki neitt stressuð yfir þessu. Mér finnst að fataval þeirra sé mjög frjálslegt og ég held að í hennar vinahópi þá séu foreldrarnir farnir að slaka aðeins meira á. Það þurfa ekki allir að vera í sama gallanum, einhverjum hvítum kjól sem þú notar aldrei aftur. Ég upplifi það þannig að það sé komin meiri ró yfir þetta og það sé bara áhersla á það að krakkarnir fái að vera þau sjálf, þetta er þeirra dagur.“ Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Maria fermdist sjálf og henni finnst að fermingarnar hafi tekið miklum breytingum á þeim tíma. „Ég var með stóra veislu sem mamma útbjó sjálf og það var svona hálfgert ættarmót og það finnst mér bara gleðilegt. En fólk verður auðvitað að haga því eftir aðstæðum hjá sér. Það sem mér finnst hafa breyst mest er áherslan á gjafir og gildi gjafa. Það er eins og verðmiði gjafanna skipti meira máli en áður. Ég man að ég fékk þverflautu í fermingargjöf frá foreldrum mínum, þótti það alveg meiriháttar og dóttir mín er enn að nota þverflautuna. En núna er það bara tölva eða hundraðþúsund- kallar í umslögum og það hugnast mér ekki.“ Þorsteinn Guðmundsson, leikari „Ég fermdist 1981 í Bústaðakirkju hjá Olafi Skúlasyni. Það voru tvær stórar gjafir sem ég fékk sem voru mjög merkilegar. Það var ritvél í svona kassa til að halda á. Það fyrsta sem ég gerði var að skrifa fyrstu blaðsíðuna í dagbók sem fjallaði um fermingardaginn og þar kemur fram hversu trúaður ég var, að minnsta kosti þennan dag. Það var nánast eins og þetta kæmi beint frá Gunnari í Krossinum. Þetta var bara helgislepja og ég dreg þetta bréf fram á svona fimm ára fresti til að minna mig á hvaðan ég kem. Þessi ritvél var í miklu uppáhaldi hjá mér og ég gekk með hana i skól- ann í mörg ár. Svo var það trompet sem ég fékk i fermingargjöf frá mömmu og sú gjöf nýttist mér í mörg ár.“

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.