blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaðiö
Teygjustökk var upprunalega manndómsvígsla í Vanuatu.
ljósmyndari
Áshoiti 2 við Laugaveg
105 Reyfcjavík
S: 552 2700
♦2* www.ljosmyndarinn.is jlong@ljosmyndarinn.is ^
Kökumót
Bakaðu íistaverkfyrir
ferminguna með lítillifyrirhöfn!
Slist
Brautarholt 22 • 105 Rvk. • Sími 552 2258 • www.ahl.is
wmmmr ^
Gunnar með krökkunum
Segir samskiptin við krakkana
og gefandi.
Séra Gunnar Sigurjónsson:
Samskiptin við börnin
langskemmtilegust
Það er ekkert smá verkefni að fræða
fermingarbörnin um allt sem tengist
fermingunni. Séra Gunnar Sigurjóns-
son, prestur í Digranessókn, tekur
því mikla verkefni þó með brosi á
vör. Þetta árið mun Gunnar ferma
120 börn í sex aðskildum fermingum
og hafa krakkarnir mætt einu sinni
í viku í fermingarfræðslu til Gunn-
ars. Hann velkist ekki í vafa um hvað
honum finnst skemmtilegast við
fermingarundirbúninginn. „Sam-
skiptin við krakkana eru skemmti-
legust. Að kynnast þessum krökkum
og að verða félagi þeirra, mér finnst
það langskemmtilegast.”
Fermingarfræðslan hjá Gunnari
er fjölbreytt. „Þau eru að læra um
kristna trú og fá tækifæri til að átta
sig á ýmsu í sambandi við kristin-
dóminn sem kannski er ekki bein-
línis haldið að þeim dagsdaglega.
Þau læra bænir og þau læra siðfræði,
trúfræði og allt mögulegt.” Að auki fá
þau fíkniefnavarnarfræðslu því Toll-
gæslan mætir í tíma með fíkniefna-
hundinn og spjallar við krakkana.
Gunnar segir að það sé oft mikið
fjör í fermingarfræðslunni og þá sér-
staklega á fermingarnámskeiðinu
sem haldið er í Vatnaskógi. Þá er farið
með krakkana í Vatnaskóg og dvalið
þar í tvo daga. „Við höfum verið í
samstarfi við Hjallakirkju vegna
þess að við erum með einn skóla sem
er bæði í Digranes- og Hjallasókn
og þá höfum við farið sameiginlega
með krakkana í Digranesskóla. Við
förum í tvær ferðir, annars vegar
með Smáraskóla og hins vegar með
Kópavogsskóla og Digranesskóla.
Það er mikið fjör í þessum ferðum og
lítið sofið.”
Hann segir að fermingartíðin sé
mjög annasöm en þannig kann hann
best við sig.< „Ég kann best við mig
undir miklu álagi. Mér finnst lang-
skemmtilegast þegar það er hasar
og einhver læti.“ Hann bætir við að
fermingarfræðslan sé mjög gefandi
starf. „Þetta er mjög gefandi og þá
sérstaklega eftir áramótin þegar
þau eru búin að læra meirihlutann
af því sem þau þurfa að læra og það
er hægt að spjalla við þau á jafnréttis-
grundvelli. Þá yfirleitt sér maður þau
blómstra og það er sá tími sem mér
finnst skemmtilegastur með þeim.“
Langar í bretta-
ferð til Austurríkis
Styrmir Vilhjálmsson mun fermast
þann 1. apríl í Háteigskirkju. Hann
hefur vel orðið var við það álag sem
fylgir því að skipuleggja ferminguna en
segir þó að hann og foreldrar hans séu
1 alveg róleg yfir þessu.
„Við erum eitthvað farin að skipuleggja
matinn og svo erum við að fara að
gera kortin fljótlega." Börn sem eru
að fara að fermast ganga að jafnaði til
prests í fermingarfræðslu og Styrmir
er þar engin undantekning.
Hann fer í fermingarfræðslu einu sinni
í viku, á fimmtudögum, og segir að
hann reyni að komast eins oft og hann
getur í þá fræðslu. „Þetta er stundum
mjög gaman en þó ekki alltaf."
Það er mikill spenningur sem fylgir
því að fermast og þó svo að dagurinn
snúist fyrst og fremst um trúna þá eru
gjafirnar tvímælalaust eitthvað sem
vekur spenning í hjarta fermingar-
barna. Styrmir segir að hann sé ekki
búinn að setja saman neinn ákveðinn
fermingargjafalista en bætir þó við að
það séu vissulega nokkrir hlutir sem
freisti hugans. „Það er svona helst ferð
til Austurríkis til að fara á bretti." Hann
segir að spennings sé farið að gæta
hjá honum og félögunum varðandi
yfirvofandi fermingu þeirra. „Við tölum
stundum um ferminguna og við erum
orðnir nokkuð spenntir."
Ásta Möller, alþingiskona
„Það er kannski tvennt sem stendur upp
úr. Á þessum tíma var það þannig að
maður fékk fyrsta úrið sitt í fermingar-
gjöf og það fékk ég frá foreldrum mínum.
Síðan fékk ég einnig æðardúnskodda
sem afi minn hafði tínt dúninn í sjálfur.
Hann bjó í Stykkishólmi og hafði meðal
annars sem starfa að tína æðardún í
einni eyjunni á Breiðafirðinum. Ferm-
ingardagurinn var alveg sérlega góöur
dagur. Ég reyndar fermdist um haust,
þetta var svo stór árgangur og það
var gefinn kostur á því að fermast um
haustið. Ég frestaði fermingunni fram á
haustið og fermdist því í október. Það
var frekar óvenjulegt.
Það sem ég man alveg sérstaklega
eftir var að á þessum tíma var mjög
mikil breidd í tískunni á sídd á kjólum.
Mamma hafði látið sauma á mig alveg of-
boðslega fallegan kjól og þegar hann var
saumaður á mig, um vorið, þá var hann
dragsíður. Um haustið var hann orðinn
millisíður og þegar ég fermdist var hann
orðinn míni. Ég á þennan kjól enn þá og
dætur mínar hafa notað hann, þó ekki
þegar þær fermdust, en hann er bara í
hátísku núna.“
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM
15-30%
AFSLÁTTUR
FERMINGARLEI
RÚMGOTT
Þrjú heppin fermingarbörn sem
fá nýtt rúm f rá Rúmgott, fá
andvirói rúmsins í fermingargjöf
frá Rúmgott. Dregið veróur 30 mai
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is