blaðið - 28.02.2007, Side 7

blaðið - 28.02.2007, Side 7
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 Aðrar gerðir ferminga: Manndómsvígslur víða um heim Fermingin er í augum okkar Islendinga nokkurs konar mann- dómsvígsla. Þetta er dagurinn sem ungmennin fara frá því að vera börn og komast í hóp fullorð- inna. Flest öll trúarbrögð og þjóð- félög hafa einhvers konar mann- dómsvígslu sem þessa en það er ærið misjafnt hvernig þær eru. í Amish-samfélögunum nefn- ist þessi manndómsvígsla rum- springa. Þar, ólíkt fermingunni, snýst rumspringa um það að kynna ungmennunum hina hlið lífsins. Amish-fólkið trúir því að enginn geti tekið kristna trú án þess að vera vel upplýstur um báðar hliðar málsins. Því eru ungmennin á vissum tímapunkti, oftast í kringum 17 ára aldurinn, hvött til að yfirgefa Amish-sam- félagið og lifa á meðal venjulegra borgara. Þar komast ungmennin í kynni við alla nútímatækni og þau kynnast að einhverju leyti hinu hefðbundna ameríska ung- lingslíferni. Þess ber þó að geta að flestir af þeim unglingum sem yfirgefa samfélagið fyrir rumspringa snúa aftur. í gyðingdómi er það hin fræga Bar Mitzvah fyrir drengina og Bat Mitzvah fyrir stúlkurnar. Þegar börnin hafa náð ákveðnum aldri, 12 ára fyrir stúlkur og 13 ára fyrir drengi, ganga þau í gegnum þessa athöfn. Með því að gangast undir þessa athöfn verða þau sjálf ábyrg gjörða sinna en fram að þessu liggur ábyrgðin á því að börnin fylgi gyðingasiðum hjá foreldrunum. í samfélögum frumbyggja N-Ameríku eru margar mis- munandi manndómsvígslur. Hjá hinum forna Lakota-ættbálki kallaðist manndómsvígslan hanblechyapi og fór hún fram snemma á unglingsárum barn- anna, líklega í kringum 12 ára aldurinn. Þá hélt ungmennið langt frá mannabyggðum, sett- ist inn x stóran hring og sat þar í allt að 2 til 4 daga. Ungmennið mátti ekkert taka með sér í hring- inn nema vatn og mátti það ekki undir neinum kringumstæðum yfirgefa hringinn. Sumar heim- ildir geta þess að ungmennin hafi kastað þvagi í vatnið sitt til þess að hreinsa það. Þetta and- lega ferðalag ungmennanna átti að tryggja þeim gott veganesti út í lífið. Jelmlngalmgnciut mín Andri Freyr Viðarsson, útvarpsmaður „Þessi mynd er skelfileg. Mamma skammast sín alveg jafn mikið fyrir þessa mynd og ég, enda er hún geymd ofan í ein- hverjum kassa. Þessi mynd vekur upp al- veg skelfilegar tilfinningar því að þarna var ég alveg á mörkunum, ég var að reyna að safna hári en ég mátti samt ekki hafa það of sítt því ég var að ferm- ast og það þótti bara óheyrilegt að vera með sítt hár. Jóhanna frænka mín sá um að blása á mér hárið og það var greitt í píku og var eins og gardína. Að sjálf- sögðu, í takt við tímann, var ég með svona íslandssylgju, einstak- lega smekklegt, í vesti og fötum sem ég átti ekki sjálfur. Mér líður ekki vel á þessari mynd og fólk sér það alveg. Þótt ég sé að brosa þá var það bara gert fyrir þetta móment. Fermingin var búin að vera í gangi og hún var ömurleg. Ég fékk.engan pening en frænka mín sem var að fermast með mér fékk einhvern 120.000 kall en ég fékk bara 30.000 kall. Ég stakk af úr minni eigin fermingu, mér fannst þetta svo leiðinlegt. Ég fór á rúntinn með Ölveri frænda og fékk mér malt og kókosbollu. Þetta var hundleiðinlegt og ég mæli ekki með því að nokkur maður geri þetta.“

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.