blaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 8
• FERMINGAR Ótrúlega margir skammast sín fyrir fermingarmyndina sína. MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaöiö . Stóra veislusýning Garðheima: Alltfyrir ferminguna á einum stað I byrjun febrúarmánaðar hófst Stóra veislusýningin í Garðheimum og mun þessi sýning standa fram til loka apríl. Um síðustu helgi fór fram sérstök fermingarsýning í tengslum við þessa miklu sýningu þar sem haldin var stærðarinnar tískusýning þar sem fermingartískan þetta árið var sýnd fyrir troðfullu húsi. Jónína Sigríður Lárusdóttir, markaðsstjóri Garðheima, segir að þó svo að ferm- ingartískusýningin sé afstaðin sé margt að sjá í Garðheimum og getur fólk leitað þangað eftir aðstoð varð- andi skreytingu eða hreinlega til þess að fá innblástur. Það er hægara sagt en gert að koma á fót fermingarveislu. Oft stendur fólk gjörsamlega á gati og þá er gott að leita til fagfólks til að fá nokkrar góðar hugmyndir. „Við erum með veisluborð sem eru uppsett með hug- myndum fyrir fólk. Einnig erum við með ráð frá bökurum í sambandi við kökur. Þá erum við með kynningu frá Veislunni á Seltjarnarnesi í sam- bandi við mat og við reynum að tína svona til það sem hentar fólki og það sem það þarf á að halda.“ Margir kjósa að gera sem mest sjálfir í kringum ferminguna, bæði til að halda kostnaði niðri en einnig til að tryggja það að fermingin fái per- sónulegra yfirbragð. Jónína segir að þetta fólk fái góðan stuðning í Garð- heimum. „Fólk gerir mikið af því að föndra fyrir fermingarnar, föndra boðskortin og borðskrautið og þetta erum við allt saman með og fólk hefur hér aðgang að vél til þess að skera út borðskrautið.“ Það ætti því ekki að vefjast fyrir neinum að töfra fram sniðugar borðskreytingar og boðskort, það eina sem þarf er smá hugmyndaflug. Jónína segir að markmið Garð- heima sé einfalt. „Við leggjum upp með að fólk geti fundið allt á einum stað sem viðvíkur fermingarveisl- unni.“ Því ættu allir að geta fundið það sem þá vantar í Garðheimum, bæði efni og hugmyndir. Þess má ingu, rósasýningu í tengslum við einnig geta að það eru ekki bara hana sem og mörgum öðrum glæsi- fermingarnar sem koma inn á Stóru legum sýningum. Það er því kjörið veislusýninguna.Garðheimarstanda að snúa sér til Garðheima til að fá meðal annars fyrir brúðkaupssýn- nýja sýn á fermingarveisluna. ► Jeui ungatn lyndin Auglýsingasíminn er 510 3744 Ásgeir Kolbeins, þáttastjórnandi „Eg hef nú ekki skoðað myndina í örugglega 13 ár eða eitthvað álíka og var mjög smeykur við að sjá hvernig hún myndi líta út, sérstaklega þar sem ég var búinn að lofa að leyfa henni að fljóta með í þessu viðtali, enda eru gamlar fermingarmyndir einhvern veginn oftast alveg ferlega hallæris- legar og þarf maður virklega að geta haft húmor fyrir sjálfum sér til að geta sýnt þær. Ég verð nú samt að segja að ég held að ég þurfi ekki að óttast að mín eldist illa. Enda var ég svo feginn að sjá að hún var bara nokkuð eðlileg miðað við myndir af mörgum af mínum bestu vinum, en þær hafa meðal annars verið notaðar sem grín í auglýsingaherferðum." „Svona ef maður tekur þetta allt saman þá er minningin góð hvað varðar ferm- inguna, undirbúninginn, veisluna og allt sem átti sér stað á þessum tíma. Þetta er stórt skref fyrir þá sem vilja að það sé þannig og finnst mér þetta vera eitthvað sem krakkar eigi virkilega að njóta að eiga í minningunni hjá sér. Þetta er án efa einn af stóru áföngum lífs manns. Þegar fólk kemur saman til að fagna einhverju með manni, það er eitthvað sem stendur ætíð upp úr.“ „Fermingardagurinn var virkilega skemmtilegur og fékk ég mikið af góðum gjöfum en mér finnst eftir á að hyggja að fólk sé allt of mikið að gefa gjafir bara af því að því finnst það verða að gefa eitthvað, óháð því hvort fermingarbarnið hefur einhverja þörf fyrir gjöfina eða ekki. Það er alltaf verið að gefa penna, bindisnælur og allskonar hluti sem eru í raun óper- sónulegir og lítil eða engin þörf fyrir. Ég fékk vídeóupptökuvél frá foreldrum mínum sem var líklega flottasta gjöf sem hægt var að hugsa sér á þeim tíma, enda langt frá því að vera til á j hverju heimili." QÍTARAR frábært úrval ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ TÓNLISTARFÓLKS í Tónastöðinni finnur þú einstakt úrval hljóðfæra á góðu verði, nótur og fylgihluti. Fagleg ráðgjöf - frábær þjónusta =ynf> TOV ASTÖDIS wm Allt fyrir t ó n 1 i s t a r m a n n i n n Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími: 552 1185 • www.tonastodin.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.