blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 3
bfaðiö ÞRIOJUDAGUR 3. JÚLÍ 2007 19 Nýtt megrunarlyf Pilla gerö úr bleiuefni Því miður er það svo að margir eiga erfitt með að hafa stjórn á áti sínu og lenda því í vandræðum með þyngd sína. Þó svo að ekkert sé að því að vera í góðum holdum þá fylgja offitu oft ýmis heilsuvanda- mál sem gott er að varast og því þarf fólk að standa vörð um heils- una og þyngdina. í gegnum tíðina hefur fólk gripið til ýmissa aðferða til þess að grennast. Sumar aðferð- irnar tengjast heilbrigðri skynsemi en aðrar ramba á barmi rökleysu og vitleysisgangs. Nú hafa ítalskir vísindamenn fundið upp nýja megrunarpillu sem á að geta hjálpað fólk með mikla mat- arþörf að hafa hemil á áti sínu. Pillan er gerð úr samskonar efni og notað er í barnableiur og fimmtán til tutt- ugu mínútum eftir að fólk er búið að taka pilluna, þenst hún út og verður á stærð við tennisbolta. Við það hverfur hungurtilfinningin hjá fólki og það borðar minna eða ekki neitt. Hinir ítölsku vísindamenn segja að þessi saðsemistilfinning muni vara í allt að tvær klukkustundir. Um þessar mundir standa y fir próf- anir á þessari nýju megrunarleið og er nú verið að prófa pilluna á um 90 Rómverjum sem glíma við offitu. Vonir standa til að þessi pilla geti verið komin á almenningsmarkað innan árs. Alessandro Sanninu er einn þeirra sem vinna að þróun pillunar og hann er ennfremur sá fyrsti til að prófa pilluna. „Þetta var svipuð tilfinning eins og þú finnur eftir einn disk af spagettíi. Þetta er ekkert óþægilegt. Þú finnur ekki þegar pillan þenst út í maganum á þér en eftir fimmtán til tuttugu mín- útur þá ertu saddur. Ég gæti borðað hádegismat ef ég vildi en það yrði þá bara mjög lítill skammtur.“ Þessa sérstöku pillu á að gleypa um hálftíma fyrir mat þannig að þegar að maturinn kemur á borð er matarlistin mun minni. Eins og fyrr segir þá er efnið í þessum pillum svipað því sem er í bleium og römbuðu vísindamennirnir einmitt á þetta tiltekna efni þegar verið var að vinna að rannsóknum á nýjum bleium. Kryddolíur Pottagaldra Hugmyndir fyrir grillarann í sumar Pottagaldrar hafa nú um nokk- urra ára skeið boðið upp á nokkrar tegundir af kryddolíum sem geta auðveldað eldamennskuna. Víkinga-grillolía Víkinga-grillolían er sérlega ljúf- feng fyrir lamba- og nautakjöt. Hún lagar sig sérstaklega að kjötinu án þess að yfirgnæfa bragð þess. Nota má hana til að pensla kjötið um leið og grillað er, eða til að kryddleggja áður og leyfa kjötinu að brjóta sig og drekka í sig kryddbragðið. Góður tími til kryddlagningar er 24-48 klst. Víkinga-grillolían er einnig góður kostur sem steikingarolía . ftölsk hvítlauksolía Hin góðu áhrif hvítlauks fyrir líkamann hafa Kínverjar þekkt í ár- þúsundir. Á okkar öld hafa vísindin stutt hollustu hvítlauksins. Hann er gulls ígildi fyrir kropp og sál. ítalska hvítlauksolían er góð til að kryddleggja hvaða hráefni sem er, kjúkling, lamba-, nauta- og svína- kjöt. Þá er hún góð til að kryddleggja og pensla á meðan grillað er t.d. lúðu, lax, silung, skötusel, humar, risarækjur og hörpuskel. Hún er góð út á pitsuna, í salatið, sem ídýfa með brauði eða í brauðbakstur. ítalska hvítlauksolian er tilvalin sem steik- ingarolía til að skerpa bragð matar- ins, s.s. fyrir kjöt, fisk, grænmetis- meðlæti og kínverska rétti. Grísk kryddolía fyrir kjúkling og lamb Gríska kryddolían er afar sérstök. Hrífandi keimur hennar er engu líkur og minnir á Miðjarðarhaf- slöndin og Austurlönd nær. Kjúk- lingakjötið fær alveg sérstakt og ný- stárlegt bragð. Best er að kryddleggja kjúklingabitana í sólarhring eða tvo og síðan elda þá í ofni eða á útigrilli. Gríska kryddolían er einnig spenn- andi til kryddlagningar á lambakjöti sem eldað er á pönnu, í ofni eða á útigrilli. Hún er góð út á salatið með fetaosti, rauðlauk og ólífum. Hún er einnig tilvalin sem steikingarolía til að gefa matnum gott bragð. Gríska kryddolían er án salts og skal þvi salta matinn eftir smekk Porúgölsk piri piri-kryddolía Piri piri er sérstök kryddolía ættuð frá Portúgal og Afríku. Hún er sérstaklega góð til að kryddleggja kjúkling, heilan eða hlutaðan og steikja/grilla í ofni eða á útigrilli. Þá er piri piri-kryddolían góð í saltfisk- rétti eða til að kryddleggja og grilla heilar rækjur og humar. Hana má jafnvel nota sem steikingarolíu fyrir sterka mexíkóska rétti eða nota út á pitsuna, í pastasalatið og út í pott- réttinn til að skerpa bragð hans. Piri piri-kryddolían er mjög sterk og skal nota hana varlega fyrir óvana bragðlauka. Matreiðslubókin er komin á netið Þaö er ekki er nóg að vera snöggur aö elda. Maturinn verður líka að vera bragðgóður. Turbochef er jafnt fyrir skyndibitastaði, kaffihús og fínustu veitingastaði Allar nánari uppl. hjá sölumönnum í S: 567 88 88 vCm ▼ Mlmst miOar « : Eldunar gæði matreiðslumeistarans á allt að 12 x styttri tíma Turbochef matreiðslubókin er komin á netið www.turbochef.com Með einfaldri uppflettingu í leitarvél finnur þú strax rétta uppskrift á réttum fyrir ofninn þinn. 0 The C3 ^ The Tornado The High h Batch

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.