blaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 2
HEILSA 18 m PeteCr fLottw bem/ OprcCfa WLnfrey mcelír wieð otymeð náttúndegrí/ úpplyfttngu/ UtMiruC Verð 4.990.- Hamraborg7 Kópavogi Sími5444088 Opnunartími-Mán-fös 11-18-Lau 11-14 Útsölustaðir: Esar Húsavík, Snyrtivöruverslunin Nana Lóuhólum, Heimahornið Stykkishólmi, Smart Vestmannaeyjum, Efnalauqin Vopnafirði, Pex Reyðarfirði www.ynja.is Ég nota Sterimar, það hjálpar kvef ofnæmi nabólga ýking STÉRIMAR’ Physiological Sea Water Miaospray Fæst í apótekum Byggbuff Rauðrófubuff taunobuff Byggsalat Tu lllppi á'l aét 9. Ó&é, skyndibiti Einu íslensku réttirnir úr 100% lífrænt ræktuðu hráefni Ræktað og framleitt hjá Móður Jörð í Vallanesi á Héraði Sérfræðingar í saltfiski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús - hótel - mötuneyti: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Ekta Sœlgcetifiskur úrsjónum Simi: 466 1016 ektafískur@emax.is Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbltskinnar og bita ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 blaðið Öndun hefur áhrif á heilsu Það er mikilvægt að anda djúpt og vel og það getur haft mikil áhrif á heilsu, andlega og líkamlega. Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd. svanhvit@bladid.net Góð öndun er oft vanmetin en er samt sem áður grundvöllur góðrar heilsu. Hæg og djúp öndun endur- nýjar súrefnið í líkamanum og þar með fá blóðfrumur og ýmis líffæri nýtt og ferskt súrefni. Sérfræðingar telja að með því að anda djúpt losi líkaminn sig við eit- urefni 15 sinnum hraðar en þegar andað er grunnt. Öndunin hefur því áhrif á líkamlega heilsu sem og andlega því hæg og djúp öndun er af- slappandi. Hér að neðan er æfing til að þjálfa öndunina en með tíma og þjálfun getur hæg öndun orðið hluti af hversdagslegri öndun. Að sama skapi er þessi æfing tilvalin til að slappa af eða til að hreinsa höfuðið. Vertu viðbúin/n Slökktu ljósin í herberginu. Leggstu á bakið eða sestu upp við vegg. Notaðu púða svo þú sért af- slappaðri. Lokaðu augunum. Veittu öndun þinni athygli í nokkrar mín- útur. Ekki reyna að breyta henni en fylgstu með hvernig þú andar. ímyndaðu þér ferskt blóðið flæð- andi um líkama þinn. Hlustaðu á umhverfið. Öndun Æfðu þig í að anda inn og út um nefið. Það er gott að anda út um munninn ef ætíunin er að fá snögga afslöppun en venjulega er best er að anda inn og út um nefið. Taktu þér tíma til að anda inn og út, en ekki anda djúpt. Ekki þvinga öndunina, þú ættir ekki að heyra sjálfa/n þig anda. Þú ert að anda hægt og rólega en ekki harkalega. Finndu taktinn í önduninni. finndu hvernig hann hreyfist upp og niður. Ef hann gerir það ekki skaltu ýta létt með hendi þinni þegar þú andar nokkrum sinnum og sleppa síðan. Þá ætti maginn að fylgja eftir. Slakaðu á í andlitinu, hálsinum, kinnbeinum, kjálka og jafnvel tung- unni. Allir líkamshlutar ættu að vera afslappaðir. SLOKUN Slökun hefur mikil áhrif á andlega líðan, sérstaklega ef álag er mikið. Líkaminn getur slakað á hvar og hvenær sem er. Ein- beiting er allt sem þarf. Afslöppun Góð öndun fer fram í neðri hluta búksins en ekki efri hluta hans. Hver andardráttur ætti að gera magann, neðra bak og rifbein meiri. Hafðu axlirnar afslappaðar og reyndu að anda ekki með brjóstkassanum. Leggðu hendurnar á magann og Hægur andardráttur Finndu hvernig góða loftið fer inn í lungun og gamla loftið yfir- gefur líkamann. Láttu útöndun standa yfir eins lengi og innöndun til að vera viss um að allt gamla loftið sé farið. Mundu að andar- drátturinn á að vera langur og hægur. Flestir anda 12 til 16 sinnum á mínútu en best er ef andað er 8 til 10 sinnum á mínútu. Prófaðu að taka lengri tíma í að anda út en að anda inn. Einblíndu á kyrrðina og ekki neyða líkamann til að anda inn. Líkaminn andar þegar hann þarfnast þess. Skólinn að byrja Margar skólatöskur of þungar Iðjuþjálfafélagið mun í næsta mán- uði, nánar tiltekið dagana 24. til 28. september, standa fyrir sínum ár- legu skólatöskudögum. „Þetta er forvarnarverkefni sem er ætlað til að kynna börnum, foreldrum og kennurum hversu mikilvægt er að skólataskan sé ekki of þung og að það sé rétt raðað í hana. Börnin eru gerð meðvituð um það hvað það skiptir miklu máli að taskan sé rétt stillt og að vera með góðar töskur," segir Hólmdís Freyja Methúsalems- dóttir iðjuþjálfi sem auk annarra stendur á bak við framkvæmd skólatöskudaganna. Margar töskur of þungar Hugmyndin að sérstakri fræðslu varðandi skólatöskurnar kemur frá Bandaríkjunum en þar er árlega haldinn sérstakur dagur sem ber heitið School Backpack Awareness Day. Þessi dagur hefur nú náð fót- festu vlða um heim en hér heima nægir ekkert minna en vika í verkefnið. Aðstandendur verkefnisins faraþá í skóla um allt land, fræða börnin og vigta töskur þeirra. Það er ógrynni af skólabókum sem íslensk skóla- börn þurfa að burðast með til og frá skóla á hverjum degi á meðan skóla- starfið stendur yfir. Því er óæskilegt að börnin séu að burðast með ein- hvern óþarfa í töskunum sínum og segir Hólmdís að það sé mikilvægt að reglulega sé raðað í skólatöskuna, helst á hverjum degi. „Það er æski- legt að taskan sé ekki meira en 15 prósent aflíkamsþyngd barnanna. í fyrra var það ansi oft sem töskurnar voru meira en 15 prósent." Geta valdið hryggskekkju Ef allt fer á versta veg með skóla- töskur barnanna, þær eru of þungar, illa gerðar eða bornar vitlaust þá geta ýmsir heilsukvillar farið að gert vart við sig hjá börnunum. „Þá geta hugsanlega farið að koma hrygg- skekkjur, höfuð- og bakverkir. Þetta er alltaf að verða meira og meira hjá börnum í dag en hluta af orsök- inni er hægt að rekja til aukinnar kyrrsetu.“ Það er gífurlega mikil- vægt að börn fái góðar og vandaðar skólatöskur, auk nægrar hreyfingar til að sleppa við þessa fyrrnefndu heilsukvilla. „Börnin eiga að vera með góðar töskur, með breiðum og bólstr- uðum böndum sem falla vel að og skerast ekki ofan í axlirnar á þeim, Svo er líka gott að töskurnar séu með mittisól eða ól yfir bringuna svo að taskan sitji vel,“ segir Hólm- dís að lokum. hilduredda@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.