blaðið - 14.08.2007, Side 4

blaðið - 14.08.2007, Side 4
Glerártorg Akureyrí Calsium EAP KALK SEM NÝTIST wfeLARAY’ CaldumEAP 500 MG Póstsendum um land allt S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet/heilsuhorn.is Útsölustaðir m.a Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi, Lífsins lind - Hagkaup, Lyfjaval, Krónan Mosfellsbae, Nóatún Hafnarfirði, Krónan Mosfellsbæ og Akranesi 's'qrænmeti sérmerkt þér! r Arangur fer eftir gæðum Hvaða Spirulina ert þú að taka? 29 vítamín og steinefni • 18 aminósýrur • Blaögræna • Omega ■ GLA fitusýrur ■ SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu i likamanum. Súrefnistæmdar umbúöir vernda næringarefnin. Lifestream þörungarnir eru ómengaðir, ræktaðir í ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. IS09001 • IS014001 Greinilegur árangur eftir nokkra daga inntöku Aukið úthald, þrek og betri líðan Fæst í apótekjum og heilsubúöum. www.celsus.is Polarolje Selolía einstök olía Inniheldur hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur ÓRTÚLEGUR ÁRANGUR POLAROLÍU!!!!! "Eftir að hafa verið of þungur í mörg ár og þjáðst af verkjum í liðum og stoðkerfi tók ég mig til og létti mig um 65-70 kg. Ég sat eftir með þessar þjáningar og reyndi allt til að mér liði þetur. Það var ekki fyrr en ég uppgötvaði POLAROLÍU að þjáningar mínar hurfu og nú get ég þess vegna hlaupið 100 m grindarhlaup." Gott fyrir: • Liðina • Maga- og þarma- starfsemi Magnús Ólafsson, leikari. • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið Polarolían fæst í: apótekum, Þín verlsun Seljabraut, heilsuhúsum og Fjarðarkaupum 20 HEILSA ÞRIÐJUDAGUR 14. AGUST 2007 blaðió BodyVive er nýjung í líkamsræktinni: Mjúk en krefjandi alhiiða líkamsþjálfun BodyVive, sem er einföld og styrkjandi leikfimi, kemur í líkamsræktar- stöðvar síðar í haust. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Svokölluð BodyVive-leikfimi er nýjung i líkamsræktinni, en um er að ræða einfalda og styrkjandi leik- fimi sem boðið verður upp á í heilsu- ræktarstöðvum síðar í haust. „Þetta er nýjasta leikfimin í Les- Mills-æfingakerfinu, sem er upp- runalega frá Nýja-Sjálandi og hefur notið mikilla vinsælda hér á landi frá árinu 1998,“ segir Bjargey Aðal- steinsdóttir, íþróttakennari og um- boðsmaður LesMills á fsland. „Allir þekkja Body Pump, Body Balance og RPM svo dæmi séu nefnd, en Bo- dyVive er sem sagt nýjasta nýjungin í þessu kerfi og ólíkt öllum hinum.“ BodyVive er að ýmsu leyti sér- stakt. „Þetta er svona mjúk en þó krefjandi leikfimi með einföldum sporum og skemmtilegri tónlist, til dæmis diskótónlist og fleiru sem fólk þekkir. Það er ekki mikið álag á bak, hné og liðamót og engin rapp- eða teknótónlist eins og í sumum leikfimitímum,“ segir Bjargey. Tengjast öðrum í tímunum eru notaðir boltar, teygjur og fleiri hjálpartæki. „Þegar maður heldur á bolta fyrir framan sig með höndunum spennir maður kviðvöðvana ósjálfrátt um leið, enda er markmiðið meðal annars að styrkja bak og maga, eins og er til dæmis gert í Pilates sem er svo vinsælt í dag. Reyndar koma áhrifin víða að, ekki bara úr pilates heldur líka tai chi, þolfimi og fleiru. Þá er líka lagt töluvert upp úr því að vinna saman og tengjast öðru fólki í tímanum," segir hún. Vel fylgst með nýjungum BodyVive er svo mikil nýjung að enn er ekki farið að kenna það hér á landi. „Það verður kennaranám- skeið helgina 21. til 23. september og í kjölfarið þurfa þeir að æfa sig meira og fínpússa sig í tækninni. Sennilega verða þeir orðnir klárir að kenna einhvern tímann i okt- óber. Nordica Spa og Bjarg á Ak- ureyri ætla alla vega að vera með þessa tima auk þess sem Iceland Spa & Fitness á líklega eftir að gera það líka ásamt öðrum. Þetta er þegar komið í um 500 líkamsræktar- stöðvar í heiminum, þó svo að þetta sé alveg splunkunýtt,“ segir Bjargey og bætir því við að íslendingar séu almennt afar hrifnir af nýjungum. „Fólk fylgist vel með því hvað er að gerast í líkamsræktinni og stekkur oft í tíma sem koma nýir inn í tíma- töflur í stöðvunum. Þó halda Body Pump, RPM og fleiri alltaf velli, enda er mikil krafa gerð til kennar- anna um að þeir tileinki sér alltaf nýtt prógramm á þriggja mánaða fresti og fari nákvæmlega eftir leið- beiningum um hvernig þeir eiga að bera sig að.“ Fyrir stressaða Fyrir hverja er BodyVive fyrst og fremst? „Það getur hentað fólki af báðum kynjum og á öllum aldri, en er fyrst og fremst hugsað fyrir þá sem vilja fara í líkamsrækt og taka vel á því án þess þó að þurfa að hoppa mikið og hamast eða læra flókin spor. Nú- tímafólk er gjarnan mjög upptekið og stressað og finnst því þægilegt að geta stundað sína hreyfingu þannig að það sé „matað“ af einföldum sporum undir skemmtilegri tón- list, ásamt því að hver og einn ráði álaginu. Þannig eru einmitt þessir tímar,“ segir Bjargey að lokum. Bestu mögulegu myndgæöi og ekkert loftnet Sjónvarp Sirnans Það er Síminrr'

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.