blaðið - 14.08.2007, Side 7
blaöíö
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007
HEILSA
23
Islendingar komust á -pall á heimsmeistarakeppni bama í hreysti
Unnu þriðju verðlaun
KYNNING
Fimm íslenskar stúlkur sem
kepptu í heimsmeistarakeppni
barna í hreysti í lok júlí hrepptu
þriðja sætið í hópakeppni. Stúlk-
urnar heita Aníta Olmudóttir,
Tinna Óðinsdóttir, Daniella Belányi,
Fanney Hauksdóttir, Dominiqua Be-
lányi og Norma Dögg.
Keppnin var haldin í Malasíu og
stúlkurnar dvöldu þar í rúmlega
viku við æfingar og keppni. Alls
tóku 18 lönd og 65 keppendur þátt
og keppnin sjálf tók alls sjö klukku-
stundir. Krisztina G. Agueda, fram-
kvæmdastjóri Hreyfilands, fór með
stúlkunum í keppnina.
„Þetta voru stúlkur frá aldrinum
11-15 ára og þær eru vitanlega mjög
stoltar af sjálfum sér. Alls unnu þær
til þrennra verðlauna, tvenn verð-
laun fyrir góða sýningu og þriðju
verðlaun í keppninni sjálfri.“
Spennandi tímar í sporteróbikk
Krisztina segir að þetta hafi verið
mjög skemmtileg upplifun en svo-
lítið erfið vegnaþess að ferðin tók 26
klukkustundir. „Stúlkurnar þurftu
auk þess að æfa á hverjum degi og til
dæmis undirbjuggu þær atriði sem
allir keppendurnir tóku þótt í. Þetta
var því heilmikil keyrsla en stelp-
urnar voru mjög duglegar. Eins var
þetta góð reynsla fyrir kennarana,“
segir Krisztina og bætir við að búið
sé að bjóða Islandi í Evrópumeist-
arakeppni í hreysti í lok þess árs í
Serbíu og á næsta ári til Spánar.
„1 tilefni af því ætlar Hreyfiland
að bjóða upp á tíma í sporteróbikk
fyrir 6-10 ára börn svo þeim gefist
tækifæri til að undirbúa sig fyrir
keppnina. í tímunum verða kenndir
fimleikar, eróbikk, dans og styrktar-
æfingar og þetta verður frábær leið
til að fá börn til að njóta sín með
hreyfingu og dansi. Námskeiðið
hefst 27. ágúst og kennt verður 3
sinnum í viku. Þess utan ætlum við
að bjóða upp á fría kynningartíma
vikuna 20.-24. ágúst og bjóðum við
alla hressa krakka velkomna."
Hraustar Hér má sjá stúlkumar
sem tóku þátt í heimsmeistara-
keppni barna í hreysti í lok júlí.
Sílíkon og sjálfsvíg
Hættulegar
ígræðslur
Samkvæmt nýrri bandarískri
rannsókn sem birt var í síðustu
viku eru konur sem fá brjósta-
ígræðslur þrisvar sinnum
líklegri til að fremja sjálfsvig en
kynsystur þeirra. Rannsóknin,
sem framkvæmd var af vísinda-
mönnum við læknamiðstöð
Vanderbilt-háskólans í Tenn-
essee, kannaði 3.527 sænskar
konur sem gengust undir
brjóstaígræðslur á árunum 1965
til 1993.
Rannsakendur skoðuðu
dánarvottorð þeirra kvenna í
úrtakinu sem voru látnar til
að sjá hver dánarorsökin væri.
Þá kom í ljós að 24 kvennanna
höfðu framið sjálfsvíg. Sú tala
þykir kannski ekki mjög há en
hún er samt þrefalt hærri en hjá
konum sem ekki hafa gengist
undir brjóstastækkanir.
Tengsl við lélegt sjálfsálit
Forsprakki rannsóknarinnar,
Loren Lipworth, sagði í viðtali
við Reuters-fréttastofuna að
hún teldi að sumar konur sem
fá sér brjóstaígræðslu glími við
einhver geðræn vandamál, hugs-
anlega tengd lélegu sjálfsáliti
eða óöryggi með líkama sinn.
Það var þó tekið fram í rann-
sókninni að hin aukna sjálfsvigs-
áhætta kæmi ekki fram fyrr en
um tíu árum eftir að aðgerðin
var framkvæmd. Þessi rann-
sókn rennir stoðum undir niður-
stöður rannsóknar kanadískra
vísindamanna sem á síðasta ári
greindu frá því að konur með
brjóstaígræðslu væru líklegri til
að fremja sjálfsvíg.
Áfengi og eiturlyf tíka
En það eru ekki bara sjálfsvíg
sem eru algengari hjá konum
með brjóstaígræðslu. Rannsókn-
araðilar greindu einnig frá því
að konur í þessum hópi væru
einnig líklegri til að deyja af
völdum fíkniefna og áfengis.
„Að minnsta kosti 38 dauðsföll,
22 prósent allra dauðsfalla, í
þessu brjóstaigræðsluúrtaki
var hægt að rekja til sjálfsvíga,
geðtruflana eða fíkniefna- og
áfengisneyslu." Á síðasta ári
lögðust 383.886 amerískar konur
undir hnífinn til að láta stækka
brjóst sin og er brjóstastækkun
næstalgengasta lýtaaðgerðin
vestanhafs, á eftir fitusogi.
I ILILSUDYNUR @G HLI
Ein besta heilsudýna í heimi
IQ-CARE aðlagast íullkomlega að líkamaniim og tryggir dýpri og bctri svefni.
IQ-CARE er svæðisskipt og gefur því réttan stuðning fyrir mjóbak og axlir.
IQ-CARE er með opnari efniseiginleika en flestar vörur úr skyldum efnum og andar því betur.
IQ-CARE aðlagast hraðar að líkamanum en flest rúm úr skyldum efnum.
IQ-CAREe r ein sterkasta efnablanda sem þróuð hefur verið og endist því lengur en skyldar vörur
IQ-CARE þrýstijöfnunarefnið er mikið notað og viðurkcnnt af sjúkrahúsum og heilsuslofnunum.
S-CAPE
WALLHUGGER
okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 369.900 stgr.
Rúm sem dregst að veggnum þannig
að þú helst við hlið náttborðsins.
• Mest seldi botninn í heiminum.
• Upplýst þráðlaus fjarstýring með
öllum stillingum.i.
• Sterkir og hljó[átir þýskir
lyftumótorar.
• Sér stilling fyrir höfuðlag.
• Öflugir nuddmótorar með
sjálfvirkum tímarofa.
• Einn allra sterkasti stálgrindarbotn
sem framleiddur er í dag.
• Öll liðarmót úr flugvélaplasti.
• 12áraábyrgð.
Loftrúm án rafmagns
Hjónarúm með
okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 219.900 stgr.
Mest selda stillanlega rúmið
Frábær reynsla á íslandi frá árinu 2000.
• Sterkir og hljóðlátir þýskir mótorar.
• Stýring er einföld og þægileg.
• Mýkra axlasvæði og stillanlegt
mjóbakssvæði.
• Hægt að fá stillanlega fætur sem
ráða hæð rúmsins.
• 5 ára ábyrgð.
Ef þig vantar gott og sterkt stillanlegt
rúm þá er BIFLEX lausnin.
Frí þrýstijöfnunarmæling
sem greinir hvaða dýna
hentar þér best
SVEFN & HEILSA GECNIR MIKILVÆGU HLUTVERKI
*t~
Svefn&heilsa
★ ★ ★ ★ ★
Svefn&heilsa
★ ★ ★ ★ ★ . -a::'
AKUREYRI
REYKJAVIK
I C .II I PQKSI LINSSON KIKOrKAK I ()K
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraut I, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 11:00 - 16:00
www.svefn.is