blaðið - 05.09.2007, Qupperneq 2
2
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
blaðið
Þurfa námskeið til að
skilja tryggingakerfið
Fleiri styðja
framboðið
Öll Evrópuríki nema
þau smæstu hafa
setið í Öryggisráðinu
Stuðningur hefur farið vaxandi við
framboð íslands til öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna. Samkvæmt nýrri
könnun, sem Capacent hefur gert
fyrir utanríkisráðuneytið, er tæplega
41% landsmanna hlynnt framboðinu,
tæplega 32% eru andvíg en tæp 29%
hafa ekki skoðun. I könnun sem gerð
var árið 2005 voru 28% hlynnt fram-
boðinu og 53% andvíg.
Könnunin var birt á blaðamanna-
fundi í gær, þar sem kynnt var fyrir-
huguð háskólafundaröð, sem ber yf-
irskriftina: Island á alþjóðavettvangi
- erindi og ávinningur.
Ávinningurinn heilmikill
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra segir að of lítið
hafi verið fjallað um umsókn lands-
ins, þó helst um kostnaðarhliðina
og að eftir litlu sé að slægjast. „Ég
segi: Það er bæði heilmikill ávinn-
ingur af því að við kynnum ísland og
það sem það stendur fyrir á alþjóða-
vettvangi og við höfum heilmiklar
skyldur að rækja á alþjóðavettvangi
líka. Island hefur enga afsökun fyrir
því að axla ekki þessar skyldur þegar
við lítum til þess að öll ríki Evrópu
hafa setið í öryggisráðinu nema þau
allra smæstu, örríkin
Könnunin var gerð á tímabihnu
31. júlí til 14. ágúst. Úrtakið var 1350
manns á aldrinum 16-75 ára. Svar-
hlutfall var 61%. mbi.is
Ingunnarskóli
Um helmingur
ók of hratt
39 af þeim sjötíu ökumönnum
sem óku á einni klukkustund
í austurátt á Kristnibraut í
Grafarholti í fyrradag óku yfir
leyfilegum hámarkshraða,
sem er þrjátíu. Meðalhraðinn
nam liðlega 46 kílómetrum á
klukkustund en sá sem hraðast
ók var mældur á 61. Ingunnar-
skóli stendur við Kristnibraut.
gag
■ Ekki er hægt að ætlast til þess að bótaþegar skilji almannatryggingakerfið, segir starfs-
maður Tryggingastofnunar ■ Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra boðar breytingar
► Ragnhildur Helgadóttir og
Guðmundur Sigurðsson,
prófessorar í lögum við HR,
eru höfundar bókar um al-
mannatryggingakerfið sem
kemur út hjá JPV í október.
► Bókin er bæði ætluð sem
uppflettirit fyrir lögfræð-
inga og til að auðvelda
almenningi að skilja lög um
almannatryggingar sem
Ragnhildur segir vera „stórt
og flókið svið“.
mannatryggingakerfisins og mjög
óþægilegt fyrir aðstandendur að
standa í því þegar nákominn ætt-
ingi er illa á sig kominn. Auk þess
heldur hann bótunum einungis
í einhverja mánuði fái hann und-
anþágu vegna fjárskuldbindinga;
þannig að vandanum er aðeins
frestað."
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segir vel koma til
greina að rýmka gildissvið áður-
nefndrar undanþágu, til að auð-
velda öryrkjum sem þurfa að leggj-
ast inn á spítala lífið. Jóhanna mun
fara með málaflokkinn frá næstu
áramótum þegar tryggingamál fær-
ast til félagsmálaráðuneytisins.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Almannatryggingakerfið er gríð-
arlega flókið og þarf að einfalda það
eigi bótaþegar að skilja eitthvað í
því. Þetta segir Sigurður Grétarsson,
tryggingafulltrúiálífeyristrygginga-
sviði Tryggingastofnunar.
„Starfsmenn Tryggingastofnunar
þurfa kennslu til að skilja kerfið,
þannig að það er skiljanlegt að
margir bótaþegar eigi erfitt með að
átta sig á því. Það væri hins vegar
ekki erfitt að einfalda kerfið, en til
mikilla hagsbóta fyrir bótaþega.“
Sigurður nefnir sem dæmi að mik-
ilvægt sé að bótaþegi geti áttað sig á
því hversu mikið bætur hans skerð-
ast þiggi hann tiltekna vinnu. Eins
og kerfið er í dag sé ekki hægt að ætl-
ast til þess að hann geri það.
Erfitt að gera ráðstafanir
I Blaðinu í gær var sagt frá því
að hafi örorku- eða ellilífeyrisþegi
dvalið á sjúkrahúsi í samtals 180
daga síðustu 24 mánuði og samfley tt
síðustu 30 daga, missir hann rétt til
allra bóta og lífeyris frá Trygginga-
stofnun í eitt ár. Hann getur þó sótt
um undanþágu hafi hann stofnað
til fjárhagslegra skuldbindinga.
Faðir Samúels Gíslasonar þurfti
Legið inni Nánast
ómögulegt er fyrir sjúkling
sem liggur inni að skilja
almannatryggingakerfið.
ynd/Ásdís Ásgeirsdóttir
að leggjast inn á spítala fyrir um 7
mánuðum, og hafa allar bætur verið
teknar af honum sem og lífeyrir.
„Hann er með þannig sjúkdóm að
alltaf er von á því að honum batni.
Því hefur ekki verið heppilegt að
gera ráðstafanir á borð við að selja
fasteign hans.“
Lítil hjálp íTryggingastofnun
Samúel segir að erfitt hafi reynst
að fá upplýsingar hjá Trygginga-
stofnun um hvaða möguleikar
væru í stöðunni. „Þar vísar bara
hver á annan. Það er ómögulegt
fyrir sjúkling að setja sig inn í þær
flóknu reglur sem gilda innan al-
BÓKUM KERFIÐ
Niðurrifið samþykkt Borgarstjórn Reykjavíkur tók fyrir niðurrif húsanna við Laugaveg
4 og 6 á fundi sínum í gær. Vinstri grænir höfðu hvatt borgarbúa til að mæta og hlýða
á umræðurnar og brugðust þó nokkrir við þeirri hvatningu. Árni Björnsson þjóðhátta-
fræðingur var einn þeirra. Árni segist ekki hafa setið allan fundinn en að hann hafi mætt
vegna þess að hann vilji halda þeim gamla brag sem er á Reykjavík eins og hægt er. þsj
Héraðsdómur Reykjavíkur
Sýknaður af ákæru
um nauðgun
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði í gær þroskahamlaðan karl-
mann af ákæru um nauðgun og
kynferðislega misbeitingu gagnvart
þroskahamlaðri konu. Atburðirnir
sem ákæran byggði á urðu eftir
dansleik á vegum Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík í maí á
síðasta ári, þar sem konan fór heim
með manninum. Þau eru bæði á
fertugsaldri.
I dómi er vísað til vitnisburðar
tveggja sérfræðinga sem segja var-
hugavert að fullyrða um hæfni
mannsins til að skynja og meta
réttilega mörkin milli samþykktra
kynlífsathafna og kynferðislegrar
misnotkunar í samskiptum við
hitt kynið. Ljóst sé að ákærði hafi
sjálfur ekki staðið í þeirri meiningu
að hann væri að misnota konuna
og að svo virðist sem hún hafi ekki
sent honum skýr skilaboð eða sagt
afdráttarlaust „nei“. aí
FÖSTUDAGAR
LÍFSSTÍLLBÍLAR
510 3744 blaðið=
Skúraveður
Vestlæg átt, 3-10 m/s og nokkuð bjart
veður, en stöku skúrir suðvestanlands og á
Norðausturlandi. Hiti 8 til 15 stig.
AMORGUN
Súld eða rigning
Suðvestan 8-13 m/s, en hægari vindur
norðantil á landinu. Súld eða rigning, en
úrkomulítið austanlands. Hiti 10 til 18 stig,
hlýjast á Austurlandi.
STUTT
• Friðargæsluliði Utanrík-
isráðherra Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hefur ákveðið að kalla
heim eina íslenska friðargæslulið-
ann I írak. Stöð 2 greindi frá.
Árétting
Vegna fréttar í Blaðinu í gær vill
Einar Hermannsson skipaverk-
fræðingur koma þvi á framfæri
að hann hafi ekki látið gera
úttekt á lekastöðugleika nýju
Grímseyjarferjunnar á sínum
tíma, heídur verið milligöngu-
maður um að útvega aðila til að
framkvæma hana. Að öðru leyti
hafi Einar ekki komið að úttekt-
inni. Vegagerðin hafi beðið um
hana og Siglingastofnun séð um
samskipti við úttektaraðilann,
breska verkfræðistofu.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VIÐA UM HEIM
Algarve 26 Halifax 17 New Vork 24
Amsterdam 17 Hamborg 15 Nuuk 18
Ankara 34 Helsinki 15 Orlando 26
Barcelona 27 Kaupmannahöfn 14 Osló 16
Berlín 13 London 19 Palma 25
Chicago 29 Madrid 31 París 18
Dublin 19 Mflanó 22 Prag 15
Frankfurt 16 Montreal 14 Stokkhólmur 11
Glasgow 14 Munchen 12 Þórshöfn 13