blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 23
blaöið
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
35
Endurkoma
Led Zeppelin
verður rusl
Skoska sveitin The View hefur
lýst því yfir að umtöluð endur-
koma Led Zeppelin verði rusl.
Sterkur orðrómur er á kreiki um
hugsanlega endurkomu Led Zep-
pelin sem er ein allra merkasta
hljómsveit allra tíma.
Meðlimir The View sögðu í við-
tali við breska tónlistartímaritið
NME að endurkomman muni
rústa orðspori sveitarinnar eftir
að þeir sáu Robert Plant, söngv-
ara Led Zeppelin, koma fram á
tónleikum. „Þetta verður rusl,“
sagði söngvari The View, Kyle
Falconer. „Gaurinn getur ekki
sungið lengur. Ég sá hann í þætti
Jools Holland. Hann rak upp
hræðilegasta öskur sem ég hef á
ævi minni heyrt. Ég mun forðast
endurkomu Led Zeppelin eins og
plágu.“
Bond hermir
eftir Bourne
Framleiðendur James Bond leita
nú logandi ljósi að einhverju sem
getur gert sjarmasteingerving-
inn ferskan á ný. Nú hefur Dan
Bradley, maðurinn á bak við
hasarinn í nýjustu Bourne-mynd-
inni, verið fenginn í Bond-liðið
og á hann að sjá um að bardagar,
bílaeltingaleikir og brjálæðið í
næstu Bond-mynd verði jafn stór-
kostlegt og í Bourne Ultimatum,
sem fór á toppinn í Bandaríkj-
unum en laut í lægra haldi fyrir
Astrópíu hérna heima.
Pacino og De
Niro í hasar
Gömlu hundarnir A1 Pacino og
Robert De Niro leika tvíeyki
lögreglumanna í New York í kvik-
myndinni Righteous Kill, eftir
leikstjórann John Avnet. Myndin
er ekki væntanleg fyrr en á næsta
ári, en félagarnir leiddu síðast
saman hesta sína í Heat eftir Mi-
chael Mann fyrir meira en áratug.
Það ætti ekki að koma neinum
á óvart að nýjasta mynd þeirra
verði testósterónfylltur spennu-
tryllir með byssum og bombum.
Myndir/Oddur
Busavígsla á ísafirði fór úr böndunum
Fiskislor, súrhey
og rækjumjöl
Yfir strikið Skólameistari
skólans segir aö fram-
kvæmd busavígslunnar
hafi einkennst af klúru orð-
bragði, ofbeldi, sóðaskap.
Sinnep, tómatsósa, fiski-
slor og rækjumjöl er
aðeins brot af því sem
busarnir á ísafirði fengu
framan í sig á föstudag.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
„Við vorum látin fara ofan í kar
og það var fullt af einhverjum við-
bjóði eins og fiskislori, súrheyi og
öðru sem við vissum ekki hvað var,“
segir Elma Sturludóttir, nemandi
í Menntaskólanum á Isafirði, um
busavígslu skólans á föstudag. „Við
urðum að fara í röð ofan í tvö kör,
beygja okkur ofan í þau og ógeðinu
var hellt yfir okkur. Það var ískalt
með klökum ofan í.“
Skólameistari skólans, Jón
Reynir Sigurvinsson, segir í til-
kynningu að framkvæmd busavígsl-
unnar hafi einkennst af klúru orð-
bragði, ofbeldi, sóðaskap og gengið
í berhögg við þær reglur sem settar
hafa verið.
Vissu ekki af rækjumjölinu
„Svo fórum við inn í skot sem
var lokað, þannig að við stóðum
þar öll og vorum að drepast úr
kulda," segir Elma. „Þá fengum við
yfir okkur flórsykur og rækjumjöl
- sem var eiginlega það ógeðslegasta
við þetta. Þetta var kannski allt
eins og það hefur verið áður, en
þetta rækjumjöl; það var ógeðsleg
lykt af því. Þetta var ógeð. Maður
var næstum því búinn að æla.“
Þegar þarna var komið sögu var
búið að skvetta sinnepi, tómatsósu
og sírópi framan í busana, en Elma
segist hafa búist við því, þar sem
það hafi verið gert síðustu ár. „Ég
held að það hafi ekki allir vitað af
þessu með rækjumjölið - þetta var,
held ég, eitthvað sem einhverjir
krakkar komu með.“
Ekki í takt við slíkar athafnir
Halldór Smárason, nemandi í
þriðja bekk og einn skipuleggjenda
busavígslunnar, segir í viðtali við
héraðsfréttablaðið Bæjarins besta á
ísafirði að vissir hlutir hefðu mátt
fara betur. „Við áttum fund með
skólayfirvöldum í síðustu viku þar
sem okkur voru settar reglur. Við
reyndum auðvitað að fara eftir
þeim, en eins og við má búast fara
alltaf einhverjir yfir strikið.“
Busavígslan í Menntaskólanum
á Isafirði var ekki í takt við slíkar
athafnir annars staðar á landinu,
samkvæmt frétt Blaðsins í síðustu
viku. Þar kom fram að busar séu
boðnir velkomnir í Verslunarskól-
anum, en látnir fara þrautabraut á
Egilsstöðum. 1 Menntaskólanum
að Laugarvatni eru busarnir látnir
flytja inn búslóð eldri nema, þrífa
bíla og loks skírðir í Laugarvatni.
Hefðbundið Skrúðgangan var hetðbundnasti hluti busavígslunnar á ísafirði.
Hinir hættu Hjálmar eru komnir í hljóðver
Dauðakippur verður að breiðskífu
„Jú, við erum hættir," segir Guðmundur
Kristinn Jónsson, meðlimur reggísveitarinnar
Hjálma. Hjálmar eru þessa dagana staddir í
Hljóðrita í Hafnarfirði þar sem þeir taka upp
sína þriðju breiðskífu. Þetta væri ekki sérstakt
nema fyrir þær sakir að sveitin hætti fyrir rúmu
hálfu ári, en hefur tekið nokkra dauðakippi í
formi tónleika síðan.
Hætta aftur bráðum
„Við ákváðum bara að skella í allavega eina
plötu í viðbót," segir Guðmundur. „Menn áttu
fullt af lögum og vissu ekkert hvað þeir áttu að
gera við þau. Alít ný lög. Við höfum spilað alla-
vega þrisvar eftir að við hættum, þannig að það
er frekar augljóst að við séum að halda áfram.“
Aðspurður hvort það sé ennþá markaður fyrir
íslenskt reggí færist dulúð í rödd Guðmundar.
,Hver veit nema þetta sé ekki reggí, maður veit
aldrei,“ segir hann, en blaðamaður þykist heyra
reggítónlist hljóma fyrir aftan hann. „Þetta er
reyndar reggí sem þú heyrir í bakgrunninum.
Þannig að ég get ekki logið rneira að þér.“
Hjálmar búast við að gefa skífuna út fyrir
jólin, en Guðmundur segir það ekki alveg
ákveðið. Sveitin kemur næst fram á föstudag á
Nasa við Austurvöll. Frítt er inn á tónleikana, en
aðspurður hvenær Hjálmar hætti næst er Guð-
mundur snöggur að svara: „Bara einhvern tíma
bráðum."
atll@bladid.net
Hættir? Hjálmar vinna nú að nýrri breiðskífu, en sveitin
hætti fyrir nokkrum mánuðum.
Pfeiffer kvenna
fallegust
Leikkonan Michelle Pfeiffer var
valin fallegust kvenna yfir fer-
tugu af lesendum tímaritsins OK,
en Pfeiffer er að þeirra mati ein
þeirra kvenna sem verða fallegri
með aldrinum. Ofurfyrirsætan
fyrrverandi Cindy Crawford sem
er 41 árs varð í öðru sæti og hin 53
ára gamla Ellen Barkin, sem lék
nú síðast í kvikmyndinni Ocean's
Thirteen, hafnaði í þriðja sæti.
Neðar á listanum voru leikkon-
urnar Glenn Close og Marcia
Cross en Cross hefur gert garðinn
frægan í sjónvarpsþáttunum um
Aðþrengdu eiginkonurnar. Pfeif-
fer segir mikinn heiður fólginn í
því að vera efst á þessum lista, sér-
staklega í ljósi þess að hún hefur
aldrei farið í lýtaaðgerð. „Það er
engin aðgerð sem getur komið í
veg fyrir að aldurinn færist yfir
mann. Ég skil heldur ekki af
hverju fólk sækist eftir því.“
Réðst á Pitt
Leikarinn Brad Pitt varð fyrir
árás óðs aðdáanda á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum, en konan
sú hafði á einhvern hátt komist
framhjá öryggisvörðum á svæð-
inu. Pitt var staddur á rauða
dreglinum þegar atvikið átti sér
stað en konan ruddist úr aðdá-
endahópnum og reyndi að faðma
stjörnuna. Að sögn vitna var Pitt
allt annað en ánægður að sjá að
konunni hefði tekist að komast
svo nálægt honum sérstaklega í
ljósi þess að um hættulegan ein-
stakling hefði getað verið að ræða
og óhætt að ætla að öryggismálin
verði tekin í gegn á hátíðinni.