blaðið - 05.09.2007, Síða 4
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
blaóiö
Starfshópur um
Vaðlaheiðargöng
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra hefur skipað starfshóp sem
ætlað er að vinna tillögur um
með hvaða hætti verði haldið á
málum varðandi fyrirhuguð jarð-
göng í Vaðlaheiði. Hópurinn á að
skila af sér fyrir lok september.
Vantar vitni að
umferðarslysi
Ekið var á gangandi vegfaranda
og ók ökumaður á brott mánu-
daginn 27. ágúst. Varð slysið um
klukkan 13 í Faxafeni í Reykja-
vík til móts við KFC. Lögreglan
lýsir eftir vitnum en samkvæmt
lýsingu er um bláa skutbifreið að
ræða. Sími lögreglu er 4441000.
Eigin mynd
á frímerki
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
heimilað íslandspósti að gefa út
persónuleg frímerki með áletrun-
inni „Bréf 50g innanlands”. Fyr-
irtækið getur þar með gefið fólki
og fyrirtækjum kost á því að setja
eigin mynd eða hugsanlega velja
mynd úr myndabanka á frímerki.
Fjórir vilja verða
borgarritari
Fjórar umsóknir bárust um
starf borgarritara, en umsóknar-
frestur rann út í síðustu viku. Um-
sækjendurnir eru Birgir Björn
Sigurjónsson, mannauðsstjóri
Reykjavíkurborgar, Garðar Lá-
russon rafmagnstæknifræðingur,
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar,
og Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
doktorsnemi.
■W&i'iTi .
Nýtt útibú
Umferðarstofu
Ákveðið hefur verið að opna
útibú frá Umferðarstofu í
Stykkishólmi á næstunni. Dagný
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
ökutækjasviðs Umferðarstofu,
segir að tvö störf muni flytjast
í Stykkishólm en um er að ræða
störfvið símsvörun og skráningu.
VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
Vagnhöfða 25 I 12 Reykjavík sími 567 4455 fax 567 4453
r
\Á
1 (/\
T 4 r'f
^— ÍIP
f:
Víngerð er okkar fag
Hjá okkur færðu.-
• Allt til heimavíngerðar
- • Góða þjónustu
• Faglega ráðgjöf
• Námskeið í heimavíngerð
Netverslun - Póstkrafa - Símapantanir
(Sendum hvert á land sem er)
ánmn
Áman ehf Háteigsvegi 1 105 Reykjavík
Sími: 533 1020 aman@aman.is www.aman.is
Ábyrgðartrygging innifalin í skráningargjaldi fyrir hunda
Bótaskylda fellur niður ef
hundaeigandi brýtur reglur
Á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis segir að ábyrgðar-
trygging sem innifalin er í skráning-
argjaldi fyrir hunda nái til þess tjóns
sem hundurinn kunni að valda.
Brynia Tomer hjá Vátrygginga-
félagi lslands segir það algengan
og leiðan misskilning að ábyrgðar-
trygging bæti allt tjón sem hundar
kunni að valda. „Ef eigandi hunds
bakar sér bótaskyldu vegna mistaka
eða vanrækslu ber hann skaðabóta-
ábyrgð. Vátryggingin bætir hins
vegar eklci tjón á þriðja aðila ef eig-
andi hunds brýtur reglugerð um
hundahald. Að láta hund ganga
lausan í íbúðahverfi er dæmi um
slíkt brot.“
Brynja greinir jafnframt frá því
að ekki sé litið á fjölskyldu vátrygg-
ingarhafa sem þriðja aðila. „Ef
heimilishundur étur iPod heimasæt-
unnar ber tryggingafélagi ekki að
greiða bætur.“
ingibjorg@bladid.net
llla bitinn Eigandi Kols, öldruð kona í
Mosfellsbæ, slasaðist er hún reyndi að
bjarga honum undan árás stórs hunds.
Úrvinnslustöð Mjólku Úrvinnslustöðin vlð
Vagnhöfða í Reykjavík er um 450 fermetrar
að stærð. Ný stöð sem til stendur að byggja
verður um 2500 fermetrar og mun geta fram-
leitt um fimmfalt meira en sú gamla.
Mjólka ætlar
að fimmfaldast
■ Mjólka hefur sprengt húsnæðið og ætlar að byggja nýja úr-
vinnslustöð ■ Stefnt að því að framleiða allt að tíu milljónir lítra
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
MJÓLKA
ast tilbúnar og við erum í rauninni
bara að bíða eftir umbúðunum.“
Mjólka hefur ákveðið að auka
framleiðslugetu sína allt að fimm-
falt á næstu árum. Tvö sveitarfélög
koma til greina fyrir nýja úrvinnslu-
stöð fyrirtækisins og munu forsvars-
menn Mjólku funda með fulltrúum
þeirra í dag og á morgun. Ákvörðun
um framtíðarstaðsetningu nýju
úrvinnslustöðvarinnar verður til-
kynnt að þeim fundum loknum
en samkvæmt heimildum Blaðs-
ins kemur Borgarnes sterklega til
greina.
Ólafur Magnússon, framkvæmda-
stjóri Mjólku, segir stækkunina fara
fram í áföngum. „í dag er húsnæðið
okkar um 450 fermetrar en það er
allt sprungið utan af okkur. Við
stefnum að því að það verði byggt
1000 til 1100 fermetra húsnæði yfir
vinnsluna í fyrsta áfanga en að
þetta verði um 2500 fermetrar allt í
allt. Þá ætlum við að auka framleiðsl-
una í fjórar til fimm milljónir lítra
á næsta ári úr þeim tveimur millj-
ónum sem við framleiðum nú. Við
stefnum svo að því innan þriggja til
fimm ára að fyrirtækið verði farið
að vinna átta til tíu milljónir lítra
árlega."
► Fyrirtækið var stofnað í
febrúar 2005.
► Það er eina fyrirtækið í
íslenskum mjólkuriðnaði
sem er ekki hluti af hinu
hefðbundna greiðslumarks-
kerfi landbúnaðarins.
►
Mjólka nýtur því ekki fram-
leiðslustyrkja frá íslenska
ríkinu.
Mun selja hefðbundna mjólk
Mjólka hefur á undanförnum
árum einbeitt sér að framleiðslu
mjólkurafurða á borð við osta,
rjóma og jógúrt. Ólafur segir að
nýjar vörutegundir frá fyrirtækinu
séu væntanlegar á markað mjög
fljótlega. Það fari einnig að koma að
þvi að þeir muni hefja hefðbundna
mjólkurframleiðslu. Því ætti ekki
að vera langt að bíða þess að hægt
verði að kaupa mjólkurfernur
frá öðrum framleiðanda en MS
(Mjólkursamsölunni).
„Það er mikið í bígerð hjá okkur
og margt á leiðinni á markað á allra
næstu dögum. Innan tveggja mán-
aða munu neytendur Uta nýjar af-
urðir frá Mjólku augum. Þær eru nán-
Munu taka við umframmjólkinni
MS tilkynnti i siðasta mánuði að
fyrirtækið myndi ekki lengur greiða
fullt verð til bænda fyrir umfram-
mjólk. Héðan í frá fá bændurnir 27
krónur fyrir hvern lítra af mjólk
sem rúmast ekki innan kvótans
um áætlaða mjólkurneyslu á innan-
landsmarkaði frá MS. Mjólka hefur
hins vegar sagst ætla að greiða 52
krónur til bænda fyrir sama mjólk-
urlítra. Ólafur segir mikil sóknar-
tækifæri felast í þessum mun.
„Okkar sérstaða hefur byggst á
því að við höfum verið að borga
hærra afurðaverð til bænda. Við
sjáum sóknartækifæri í þvi að geta
tekið við meiri umframmjólk frá
bændum eftir að við stækkum.
Mjólka er komin inn á þennan
markað til að veita Mjólkursamsöl-
unni aðhald og vera verðugur keppi-
nautur á þessum markaði. Það ætti
að leiða af sér aukna fjölbreytni og
lægra vöruverð til neytenda þegar
til lengri tíma er litið.“
HEFUR ÞÚ ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net