blaðið - 05.09.2007, Side 6
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
blaðið
Vill stöðva
Hiinnebeck
Þrjátíu verkamenn
skráðir til bráðabirgða
Starfsgreinasamband íslands
undrast aðgerðaleysi Vinnumála-
stofnunar gegn meintum ólög-
mætum starfsmannaleigum og
krefst þess að starfsemi þeirra verði
stöðvuð nú þegar.
Á heimasíðu SGS segir að Hiinne-
beck, sem starfar sem undirverktaki
hjá Arnarfelli við Kárahnjúkavirkj-
unar, hafi ekki getað gert grein fyrir
launa- og ráðningarkjörum starfs-
manna. „Þetta kemur ekki á óvart,
enda sjálfsagt ekkert fram að leggja.
Okkur vitanlega hafa hvorki skattar
né skyldur samkvæmt leikreglum
á vinnumarkaði verði tilgreindar
neins staðar frá þessu fyrirtæki,“
segir á heimasíðu SGS.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, sagði í samtali við
mbl.is að verið væri að fara yfir þau
gögn sem borist hafa frá Hunnebeck
varðandi 30 erlenda starfsmenn
sem hafa verið óskráðir við vinnu
við Kárahnjúkavirkjun. Gissur stað-
festi að mennirnir hafi ekki verið
skráðir en að nú hafi þeir fengið
bráðabirgðaskráningu. Gissur segir
að verið sé að skoða hvort mönn-
unum hafi verið greidd laun sam-
kvæmt íslenskum launataxta. Það
ætti að skýrast í dag.
Talsmaður neytenda
Engin tilmæli
til bankanna
Gísli Tryggvason, talmaður
neytenda, hefur hætt við að
gefa út formleg tilmæli til fjár-
málafyrirtækja varðandi svo-
kallaðan FIT-kostnað líkt og
hann hafði boðað. Hann fer þó
fram á það til bráðabirgða að
„tryggt verði að neytendur séu
upplýstir um viðbrögð banka
og sparisjóða við yfirdrætti“.
Þess í stað ætlar talsmaðurinn
að bíða niðurstöðu starfshóps við-
skiptaráðherra um gjaldtöku fjár-
málafyrirtækja fyrir þjónustu og
rafræn greiðslukerfi, en Gísli á
sjálfur sæti í hópnum.
Þsj
★★★★★★★★★★
★
*
*
JOÐFÆRÁVERSLUN*
jóðlagagítar*
Poki, Ól, Stilliflauta, *
Auka Strengjasett, J
eMedia geisladiskur.*
Kr. 13.900 ;
★
*
Fáanlegir Litir>
Víðarlitaður, *
Sunburst, *
Svartur, *
Blár. *
*
*
★
JStórhöfða 27 * Sími: 552-2125^
www.gitarinn.is *
★★★★★★★★★★★★★★★★★
Ríkið vill land sem
það seldi árið 2000
■ íslenska ríkið seldi Orkuveitunni land en gerði síðan kröfu um að það yrði lýst þjóð-
lenda ■ Orkuveitan hefur krafist ógildingar á úrskurði þess efnis fyrir dómstólum
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Islenska ríkið seldi Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) landsvæði um
síðustu aldamót sem óbyggðanefnd
hefur síðan úrskurðað að sé þjóð-
lenda. Samkvæmt því getur ríkið
eignast aftur land sem það seldi
fyrir örfáum árum.
OR hefur höfðað mál fyrir Hér-
aðsdómi Suðurlands til að krefjast
ógildingar á úrskurði óbyggðanefnd-
arinnar og var málið tekið fyrir
þar síðastliðinn mánudag. Þá var
ákveðið að málflutningur hefjist í
lok október.
Tóku við greiðslu með bros á vör
OR keypti lönd af landeigendum
í Ölfusi á árunum 1999 og 2000
undir starfsemi Hellisheiðarvirkj-
unar. Hluti af þeim löndum var í
eigu íslenska ríkisins. Hjörleifur B.
Kvaran, forstjóri OR og lögmaður
fyrirtækisins í málinu, segir að
kaupverð á þessum löndum hlaupi
á hundruðum milljóna króna. Tugir
milljóna króna hefðu verið greiddir
fyrir landið sem íslenska ríkið átti
og hefur verið úrskurðað þjóðlenda.
Hjörleifi þykir það sérkenni-
legt að ríkið geti selt fyrirtækinu
land einungis til að taka það
aftur nokkrum árum síðar með
stjórnvaldsaðgerð.
„Þetta þykir okkur mjög skrýtið.
Fjármálaráðherra fékk heimild Al-
þingis til að selja landið á fjárlögum.
Hann seldi það með gögnum og
gæðum. Ríkið tók síðan við greiðslu
með bros á vör en skömmu síðar
gera þeir kröfu um að hluti þess
lands sem þeir seldu okkur verði
aftur eign ríkisins. Það er kröfugerð
sem við höfum alla tíð átt mjög erf-
itt með að sætta okkur við.“
Hefur áhrif á nýtingarrétt
Hjörleifur segir þessa aðgerð
hafa ýmis áhrif á fyrirtækið verði
úrskurðinum ekki snúið. Hluti
þeirra hitaréttinda sem Hellisheið-
arvirkjun nýtir i sína starfsemi er
inni á þeim löndum sem óbyggða-
nefnd lýsti þjóðlendur.
„Við munum eiga minna land en
við gerðum ráð fyrir og þurfum
Hellisheiðarvirkjun Orkuveita Reykjavíkur keypti
lönd fyrir hundruð milljóna króna af bændum í
Ölfusi um síðustu aldamót. Meðal seljenda var ís-
lenska ríkið. Óbyggðanefnd hefur síðan úrskurðað
að hluti landsvæðisins séu þjóðlendur.
ÞJÓÐLENDULÍNAN
Mörk þjóðlendu,
skv. úrskurði
óbyggðanefndar
••• Krafa fjármála-
ráðherra f.h.
ríkisins um
þjóðlendumörk
Skikinn
ÞJÓÐLENDUR
► Þjóðlendulögin tóku gildi 1.
júní 1998 en hefur þrívegis
verið breytt síðan þá. Til-
gangur þeirra er að leysa
úr óvissu um eignarhald á
ýmsum hálendissvæðum
íslands.
Þjóðlenda er samkvæmt
þeim skilgreind sem „land-
svæði utan eignarlanda
þó að einstaklingar eða
lögaðilar kunni að eiga þar
takmörkuð eignarréttindi".
► Óbyggðanefnd hefur það
hlutverk að skera úr um
hvaða land telst til þjóð-
lendna og hver séu mörk
þeirra og eignarlanda.
þá væntanlega að kaupa eða leigja
hitaréttindin af ríkinu. Hluti af því
landi sem við nýtum fyrir okkar
virkjun er óumdeilanlega innan
þjóðlendunnar og við munum auð-
vitað semja við ríkið um endurgjald
fyrir þá nýtingu, en hluta af þessu
landi keyptum við líka af bændum
í Ölfusi. Ef það land verður end-
anlega úrskurðað þjóðlenda fyrir
dómstólum þá hafa landeigend-
urnir selt okkur land sem þeir hugs-
anlega ekki áttu.“
Júlíus Vífill Ingvarsson
Ekki betri leið
til að úthluta
fúlíus Vífill
Ingvarsson,
formaður
menntaráðs
Reykjavíkur-
borgar, segist
ekki hafa
heyrt tillögu
sem komið
gæti í stað núverandi fyrir-
komulags við úthlutun þeirra
fjármuna sem borgin veitir til
tónlistarskóla.
„Óskandi væri auðvitað að allir
sem vilja stunda tónlistarnám
gætu gengið inn í tónlistarskóla
fyrirvaralaust. En einhvers
staðar þarf að draga mörkin
hvað varðar fjármagn í þennan
lið og við hjá menntasviði
reynum að nota þá fjármuni sem
við höfum sem allra best.“ hos
Borgin sögð mismuna tónlistarskólum og -nemum í fjárstuðningi
„Gerræðislegar ákvarðanir"
•Kir
Ur Tónskóla Hörpunnar Skólinn A
kennir 300 nemum, en fær bara styrk I
frá borginni fyrir 60 nema.
iiiiuiMiiii ——h i Æm
Reykjavíkurborg mismunar bæði
nemendum sem stunda vilja tónlist-
arnám og starfandi tónlistarskólum
í Reykavík, segir Kjartan Eggertsson,
skólastjóri Tónskóla Hörpunnar í
Grafarvogi.
„Borgarstjórn ákveður eftir eigin
geðþótta og án þess að styðjast við
neinar reglur eða forsendur, hversu
mikla fjármuni hver tónlistarskóli
fær.“ Kjartan segir þetta skipulag
mismuna tónlistarskólum. Gerður
sé þjónustusamningur við hvern
skóla þar sem skilgreint er til
kennslu hversu margra barna fjár-
munirnir séu ætlaðir. Sú áætlun
komi þó ekki alltaf heim og saman
við veruleikann. „Við kennum
t.d. 300 nemendum, þrátt fyrir að
borgingreiðieinungis með 68“
Biðiistar í tónlistarskóla
Hjá menntasviði Reykjavíkur-
borgar fengust þær upplýsingar að
um 1000 manns hafi verið á biðlista
eftir tónlistarnámi í Reykjavík und-
anfarin ár. „Mér finnst mjög hart að
búa í samfélagi þar sem ég get lent
í því að geta ekki sent börnin mín
í tónlistarskóla, meðan nágranni
minn getur það,“ segir Kjartan.
Um helgina tilkynnti Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra að hún hygðist leggja fram
frumvarp til laga sem hefur í för
með sér að ríkið greiði fyrir kostnað
vegna tónlistarnáms á framhalds-
stigi. Samkvæmt heimildum Blaðs-
ins standa vonir til þess innan borg-
arinnar að með því náist að stytta
biðlistana eftir tónlistarnámi.
hlynur@bladid.net