blaðið - 05.09.2007, Síða 9
blaðiö
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
FRETTIR
Svíþjóð
Fullur í stjórn-
klefanum
Ölvaður flugmaður var
handtekinn á Arlanda-flug-
velli norður af Stokkhólmi í
Svíþjóð, rétt áður en hann átti
að fljúga vél með 157 manns
innanborðs til Kanaríeyja í
gær. Flugstöðvarstarfsmenn
höfðu samband við lögreglu
eftir að hafa fundið áfengislykt
af flugmanni flugvélar Ukra-
inian International Airlines,
þegar hann var á leið upp í vél
á ný eftir að hafa millilent í
Svíþjóð.
Á vef Aftonbladet segir að
farþegarnir um borð hafi verið
starfsmenn snyrtivörufyrir-
tækisins Oriflame. aí
Sviss
Dæmdir fyrir
vanrækslu
Líbanon
222 vígamenn
drepnir
Svissneskur dómstóll hefur
dæmt fjóra starfsmenn flugum-
ferðarstjórnunarfyrirtækisins
Skyguide seka um manndráp
af gáleysi, þegar tvær flugvélar
skullu saman í lofti yfir Þýska-
landi árið 2002.71 maður lést
í slysinu, aðallega rússnesk
börn, og var slysið rakið til van-
rækslu mannanna í starfi.
Þrír flugumferðarstjóranna
fengu skilorðsbundna fangels-
isdóma, en sá fjórði sekt. Atta
menn voru ákærðir í málinu
og neituðu þeir allir sök. aí
Stjórnvöld í Líbanon segja
að stjórnarher landsins hafi
drepið að minnsta kosti 222
íslamska vígamenn úr röðum
Fatah al-Islam-samtakanna
og handtekið 202 í fimmtán
vikna umsátri um Nahr
al-Bared, flóttamannabúðir
Palestínumanna í norðurhluta
Líbanons.
Stjórnarher Líbanons náði
loks búðunum á sitt vald um
helgina eftir margra vikna
átök. Yarnarmálaráðherra
Líbana segir að Fatah al-Islam
hafi haft það að markmiði að
einangra norðurhluta Líban-
ons til að mynda þar yfirráða-
svæði hryðjuverkamanna. aí
Sænsk ádeilubók á hefðbundna sjávarútvegsstefnu vekur mikla athygli og umræður
Stjórnmálamenn hafa eyðilagt hafið
Hefðbundin sjávarútvegspólitík
sænskra stjórnvalda og Evrópusam-
bandsins hefur valdið gríðarlegu
umhverfisslysi sem enn sér ekki
fyrir endann á. Þetta segir sænski
rannsóknarblaðamaðurinn Isa-
bella Lövin í nýrri bók sinni sem
ber heitið Þögult haf og hefur vakið
mikla athygli og umræður í Svíþjóð.
Lövin segir nauðsynlegt að líta
hafið öðrum augum, þar sem ekki
sé einungis litið á þorskinn sem fros-
inn mat heldur eina mikilvægustu
tegund sjávar.
Sjávarútvegurinn á ekki iífríkið
„Að líta á lífríki hafsins sem eitt-
hvað sem sjávarútvegurinn „eigi“
og að hann geti sjálfkrafa heimtað
bætur ef gripið er inn í því til verndar,
er úrelt og hreinlega hættulegt sjón-
armið,“ segir Lövin í blaðagrein sem
hún byggir á bókinni.
Hún segir Kanadamenn á sínum
tíma ekki hafa hlustað á ráðlegg-
ingar vísindamanna, heldur haldið
áfram að dæla styrkjum í alltof
stóran fiskveiðiflota. Auk þess hafi
sjávarútvegurinn kvartað undan
minnkandi afla, á sama tíma og full-
yrt var að ótakmarkaður þorskur
væri í sjónum. „Það var fyrst árið
^992, þegar þorskaflinn hafði á
nokkrum árum minnkað úr 250
þúsund tonnum niður í tvö þúsund
tonn, að kanadísk yfirvöld gerðu sér
grein fyrir að nú væri nauðsyn að
vernda þorskinn í stað sjávarútvegs-
fyrirtækjanna. Veiðin stöðvaðist, en
það var of seint.“
Lövin spyr hvort ekki sé kominn
tími til að láta stjórnmálamenn
svara fyrir þá stórslysapólitík sem
þeir hafi rekið. Að þrátt fyrir margra
milljarða króna fjárfestingar, rann-
sóknir og stjórnun hafi hún ein-
ungis leitt til útrýmingar á stórum
hluta af villtri náttúru Svíþjóðar.
atlii@bladid.net
80% verðmunur
Sportbúðin oq Veiðihornið - sérverslanir skotveiðimannsins
Lítil verðkönnun hefur leitt í Ijós að sambærilegar gervigæsir kosta ríflega 80% meira annars staðar en hjá okkur.
í einum kassa hjá okkur eru 12 gæsaskeljar; 8 á beit, 2 á verði og 2 í hvíld. Öll festijárn fylgja með.
Vel samansettur hópur sem þú færð í Veiðihorninu, Veiðimanninum og Sportbúðinni á aðeins 8.995.
Ef þú kaupir 2 kassa færðu 5% afslátt og ef þú kaupir 3 eða fleiri færðu 10% afslátt frá þessu frábæra verði.
Gerðu verðsamanburð og sparaðu. Einnig álftir, flotgæsir, gerviendur, gallar, skot og fleira og fleira.
hálfsjálfvirk, bakslagsskift byssa með snúningsboltanum frá Benelli og skiptibúnaði frá Hálfsjálfvirk, bakslagsskift byssa með snúningsboltanum frá Benelli og skiptibúnaði frá Franchi.
Franchi. 26“ hlaup, 5 þrengingar, ólarfestingar og byssupoki. Stoeger er í eigu Beretta. 26" hlaup, 5 þrengingar, ólarfestingar og byssupoki. Stoeger er i eigu Beretta.
Aðeins 54.900.- stgr. eða vaxtalausar raðgreiðslur til 12 mánaða. Aðeins 56.900.- stgr eða vaxtalausar raðgreiðslur til 12 mánaða.
Hálfsjálfvirk, bakslagsskift byssa með snúningsboltanum frá Benelli og skiptibúnaði frá Pumpa með snúningsboltanum frá Benelli. 26" hlaup, B þrengingar og byssupoki.
Franchi. 26" hlaup, 5 þrengingar, ólarfestingar og byssupoki. Stoeger er í eigu Beretta. Stoeger er í eigu Beretta.
Aðeins 62.900.- stgr. eða vaxtalausar raðgreiðslur til 12 mánaða. Aðeins 39.900 stgr. eða vaxtalausar raðgreiðslur til 12 mánaða.
Hálfsjálfvirk, bakslagsskift byssa frá Beretta. 26" hlaup, 3 þrengingar, byssupoki. Hálfsjálfvirk, bakslagsskift byssa frá Beretta. 26" hlaup, 3 þrengingar, byssupoki.
Aðeins 94.900 stgr. eða vaxtalausar raðgreiðslur til 12 mánaða. Aðeins 96 900 st9r- eða vaxtalausar raðgreiðslur til 12 mánaða.
Muniö vinsælu
gjafabréfin okkar
Krókháls 5 - Simi 517 8050
Sportbudin.is
Sídumúli 8 - Sími 568 8410
Veidihornid.is