blaðið - 05.09.2007, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
blaöiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Þetta er snilldarherbragð, sérstaklega
þar sem búið er að gera þetta að frétta-
efni og þeir þurfa ekki lengur að borga
fyrir umræðuna.
Fjármálaráðuneytið
Lánasýsla ríkisins
lögð niður
Fjármálaráðherra hefur ákveðið
að fela Seðlabanka fslands útgáfu
innlendra markaðsverðbréfa ríkis-
sjóðs sem Lánasýsla ríkisins annast
nú, en bankinn annast nú þegar
umsýslu erlendra lána ríkissjóðs.
Lánasýslan verður því formlega
lögð niður með lögum eftir að samn-
ingur þessa efnis tekur gildi.
I tilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu segir að í ljósi þeirra breyt-
inga, sem orðið hafa á íslensku fjár-
málaumhverfi og á stöðu ríkisins á
lánamarkaði, sé nú talið mögulegt
að framkvæma lánaumsýslu rík-
issjóðs með hagkvæmari hætti en
verið hefur með því að flytja verk-
efni Lánasýslunnar til Seðlabanka
fslands. atlii@bladid.net
Stýrivextir ákvarðaðir í vikunni
Seðlabanki f slands mun til-
kynna stýrivaxtaákvörðun sína
á morgun. Síðast var ákveðið að
halda stýrivöxtum óbreyttum í
13,30 prósentum, þann 5. júlí. í
Morgunkorni Glitnis segir að bú-
ist sé við óbreyttum stýrivöxtum
víðast hvar, en bankastjórnir
seðlabanka Evrópu, Englands,
Ástralíu, Kanada og Svíþjóðar
munu jafnframt tilkynna stýri-
vaxtaákvarðanir sínar í vikunni.
Haraldur Johannessen
á Viðskiptablaðið
Haraldur Johannessen hefur
verið ráðinn ritstjóri Viðskipta-
blaðsins við hlið Jónasar Haralds-
sonar ritstjóra. Haraldur er hag-
fræðingur frá Háskóla fslands og
hefur starfað sem sérfræðingur
í greiningardeild Landsbanka
fslands frá árinu 2006.
Haraldur var aðstoðarmaður
umhverfisráðherra á árunum
2004 til 2006. Haraldur var blaða-
maður á viðskiptablaði Morgun-
blaðsins á árunum 2000 til 2004.
mbl.is
BORGARBYGGÐ
Skipulagsauglýsing
um deiliskipulag frístundalóða i landi Guðnabakka,
Borgarbyggð.
( samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingariaga nr. 73/1997
hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt að auglýsa
eftirfarandi deiiiskipuiag:
Um er að ræða deiliskipulag fjögurra lóða fyrir frístundahús i landi
Guðnabakka, Borgarbyggð. Lóðirnar eru á bökkum Þverár með
aðkomu frá Guðnabakkavegi og er hver þerra um 2ha að stærð.
Tillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14
Borgarnesi frá 5. september til 3. október og frestur til að skila inn
athugasemdum rennur út 17. október.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og bygginganefn-
dar í Ráðhús Borgarbyggðar.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast henni samþykkir.
Borgarnesi 5. september 2007
Forstöðumaður framkvæmdasviðs
Borgarbyggðar.
Auglýsingin Auglýsing Símans
er umdeild, en nær vafalaust því
markmiði að vekja athygli.
Símaauglýsingin
„snilldarbragð"
■ Smekkleysa eða vel heppnuð markaðssetning? H Með umfjöllun
fréttamiðla fær Síminn ókeypis auglýsingu, segir prófessor við LHÍ
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
og Atla fsleifsson
Mjög skiptar skoðanir eru á
nýrri auglýsingu Símans, þar sem
spaugað er með síðustu kvöldmál-
tíðina. Biskup íslands sagði í gær að
auglýsingin væri smekklaus. Guð-
mundur Oddur Magnússon, pró-
fessor við Listaháskóla fslands og
dómnefndarmaður í auglýsingasam-
keppni ÍMARK mörg undanfarin ár,
segir hins vegar auglýsingaherferð
Símans greinilega vera að takast.
„Þetta er snilldarherbragð, sérstak-
lega þar sem búið er að gera þetta að
fréttaefni og þeir þurfa ekki lengur
að borga fyrir umræðuna.“
Guðmundur Oddur segir auglýs-
inguna góða og vel gerða. „Þarna er
verið að beita klassísku myndmáli
og að mínum dómi er ekkert við
þetta að athuga. Það er spurning
hvort ekki sé hægt að gera meiri
athugasemdir við notkun kirkj-
unnar á kristsmyndinni. Hún hefur
ekki verið söm í gegnum tíðina og
þannig má í raun segja að kirkjan sé
að kasta steinum úr glerhúsi með at-
hugasemdum sínum.“
Karl Sigurbjörnsson biskup sagði
í viðtali við fréttavefinn mbl.is í gær
MARKAÐURINNÍGÆR
„Auglýsingaherferð Símans er hönn-
uð af atvinnumönnum sem væntan-
lega fylgjast vel með hvaða viðbrögð
auglýsingar vekja og hafa vakið
hérlendis og erlendis. Auglýsing
sem nær að skapa umtal og fangar
athygli almennings svo mikið að það
sé talaö um hana hittir í mark.“
Salvör Gissurardóttir á blog.is
„Það er alltaf verið að ögra fólki, fara
meira og meira yfir velsæmismörkin.
Við horfum upp á að ekkert er heil-
agt. Hvar endar það?“
Karl Sigurbjörnsson
biskup í viðtali við mbl.is
að auglýsingin væri smekklaus. Á
Biskupsstofu fengust þær upplýs-
ingar að auglýsandinn yrði þó ekki
kærður fyrir guðlast. Linda Waage,
upplýsingafulltrúi Símans, segir Sí-
mann halda ótrauðan áfram og aug-
lýsa nýju tæknina enda hefði engin
kæra borist.
Vildi gera þetta af virðingu
Jón Gnarr, grínisti með meiru,
réði sig til auglýsingaskrifstofunnar
EnnEmm fyrir mánuði. Símaaug-
lýsingin var hans fyrsta verk þar á
bæ. Þemað í auglýsingunni er síð-
asta kvöldmáltíðin, þar sem Jesús
hringir í Júdas úr 3G-síma og spyr
hvort hann ætli ekki að mæta í mat,
en þá er Júdas staddur úti í bæ þar
sem hann var að taka við fullum
poka af silfurpeningum.
„Ég vildi gera þetta fallega og af
virðingu. Því fór ég á fund biskups
til þess að greina frá ætlan minni.
Og þó svo hann legði ekki blessun
sína yfir þetta, þá fordæmdi hann
heldur ekki hugmyndina. Hann tal-
aði svona einsog biskupar tala, sagði
að þetta væri viðkvæmt mál og að
það bæri að sýna þessu virðingu,
sem ég tel mig hafa gert enda krist-
inn maður sjálfur,“ segir Jón Gnarr
og bætir við:
„Ég hef nú verið að básúna það
svolítið undanfarið og hef oft farið
óhefðbundnar leiðir til þess að
kynna trúmál og skapa umræðu
um slík málefni. Eg fór af stað með
þetta sem nokkurs konar nútíma-
legt trúboð, að taka þennan vinkil
inn í auglýsingar. Því kom sú yfir-
lýsing biskups mér mjög á óvart að
auglýsingin væri smekklaus.“
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 4. sept. 2007 • Mest viðskipti í Kauphöll OMX í gær voru með bréf Icelandair Group, fyrir um 9,8 milljarða króna. Næstmest viðskipti voru með bréf Glitnis, fyrir 3,2 milljarða. • Mesta hækkunin var á bréfum Century Aluminum, eða 3,88%.
Viðskipti í krónum ATH. = Athugunariisti Fólög f úrvalsvfsitölu a Atorka Group hf. ▼ Bakkavör Group hf. ♦ Exista hf. ▲ FL Group hf. ▲ Glitnir banki hf. ▼ Hf. Eimskipafélag Islands Viðskipta- verð 9,70 66,40 33,95 26,20 28,45 Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi breyting viðsk.verðs viðskipta 2,97% 4.9.2007 15 -0,15% 4.9.2007 6 0,00% 4.9.2007 33 0,77% 4.9.2007 24 0,53% 4.9.2007 46 Heildar- viöskipti dagsins 112.218.001 5.179.819 214.534.903 59.848.544 3.203.725.094 Tilboð 1 lok dags: Kaup Sala 9,70 9,71 66.20 66,40 33,80 33,95 26.20 26,35 28,40 28,45
41,00 -0,24% 4.9.2007 10 4.754.908 41,00 41,30 Bréf Atorku hækkuðu um 2,97% og bréf Alfesca um 2,56%.
▲ lcelandair Group hf. ▼ Kaupþing banki hf. a Landsbanki íslands hf. 27,70 1152,00 41,90 0,73% -0,09% 0£4% 4.9.2007 4.9.2007 4.9.2007 17 69 47 9.801.778.351 1.427.088.564 468.559.427 27,70 1151,00 41,80 27.90 1153,00 41.90
Mosalc Fashions hf. 17,50 - 4.9.2007 - - - - • Mesta lækkunin var á bréfum Össurar, eða 2,34%. Bréf 365 lækk-
▼ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 20,35 -0,73% 4.9.2007 58 306.352.660 20,35 20,40
▼ Teymihf. 6,15 -0,16% 4.9.2007 15 42.555.000 6,11 6,19
▼ össur hf. 104,50 -2,34% 4.9.2007 10 23.442.200 104,50 106,00 uðu um 1,85% og bréf Foroya Banka
Önnur bréf á Aðallista
y 365 hf. 2,65 -1,85% 4.9.2007 3 2.660.000 2,64 2,66 um 1,32%.
▲ Alfesca hf. Atlantic Petroleum P/F 6,01 1070,00 2,56% 4.9.2007 4.9.2007 23 8 43.675.078 2.667.844 5,99 1070,00 6,02 1089,00
4 Eik Banki 693,00 0,00% 4.9.2007 6 5.592.845 692,00 697,00 • Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,08% í gær og stóð í 8.283 stigum
Flaga Group hf. 1,55 - 4.9.2007 1 147.250 1,53 1,55
▼ Foroya Bank 225,00 -1,32% 4.9.2007 9 3.282.964 224,00 228,00
lcelandic Group hf. 5,95 - 22.8.2007 - - 5,90 5,98 í lok dags.
▲ Marel hf. 96,80 2,54% 4.9.2007 12 62.001.238 96,00 96,80
Nýherji hf. 21,50 - 30.8.2007 - - 21,50 21,90 • íslenska krónan veiktist um
a Tryggingamiðstöðin hf. 40,50 0,62% 4.9.2007 4 11.936.000 40,40 40,60
Vinnslustööin hf. 8,50 - 22.8.2007 - - - 9,00 0,50% í gær.
First North á Islandi a Century Aluminium Co. 3210,00 3,88% 4.9.2007 8 76.101.000 3225,00 3230,00
HB Grandi hf. 12,00 - 4.9.2007 11 13.579.402 - 12,00 • Samnorræna OMX40-vísitalan
Hampiöjan hf. 6,50 - 20.6.2007 - - - 6,50
hækkaði um 0,76% í gær.