blaðið - 05.09.2007, Síða 15
blaöið
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
27
Reglur um
meðferð efna
Umhverfisstofnun hefur gefið
út leiðbeinandi reglur um með-
ferð efna í efnafræði- og smíða-
stofum. Ákveðið var að gera
það í kjölfar skýrslu sem kom út
síðastliðið vor um efnanotkun
í grunnskólum. Niðurstöður
könnunarinnar benda til þess
að brýnt sé að fræða og upplýsa
skólastjórnendur og kennara um
efnanotkun almcnnt. Reglurnar
skiptast í leiðbeiningar vegna
efnavöru og leiðbeiningar vegna
aðstöðu og búnaðar. Reglurnar
eru miðaðar við grunnskóla en
geta nýst til hliðsjónar alls staðar
þar sem geymd eru og unnið er
með hættuleg efni.
Jafnréttisviður-
kenning 2007
Jafnréttisráð Iýsir eftir tilnefn-
ingum til jafnréttisviðurkenn-
ingar fyrir árið 2007. Þeir sem
geta hlotið viðurkenninguna
eru einstaklingar, hópar, fyrir-
tæki eða félagasamtök sem hafa
skarað fram úr eða markað spor
á sviði jafnréttismála. Tilgang-
urinn er að verðlauna fyrir vel
unnin störf í þágu jafnréttis
kvenna og karla og hvetja um leið
til frekari dáða.
Tilnefningum skal skilað eigi
síðar en 24. september til Jafnrétt-
isráðs, Borgum, 600 Akureyri.
Heilbrigði í
atvinnulífinu
Aukið heilbrigði - ábyrgð
atvinnulífsins er yfirskrift
morgunverðarfundar Samtaka
verslunar og þjónustu sem hald-
inn verður á Nordica Hóteli þann
13. september kl. 8:30-10. Aðal-
fyrirlesari er Magnús Scheving,
framkvæmdastjóri Latabæjar,
sem fjallar um leiðir sem hægt
er að fara til að stuðla að hollari
lífsháttum.
Einnig fjallar Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri samtakanna,
um leiðir sem verslanir í ná-
grannalöndunum hafa farið til að
stuðla að hollari lífsháttum neyt-
enda og Jónína Þ. Stefánsdóttir,
sérfræðingur hjá Umhverfis-
stofnun, fjallar um hollustumerk-
ingar á vörum.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. og er
morgunverður innifalinn. Hægt
er að skrá sig á nctfangið svth@
svth.is eða í síma 5113000.
Sparað í matarinnkaupum
Þó að matvælaverð á íslandi sé
með því hæsta sem þekkist í Evr-
ópu og jafnvel í heiminum öllum er
engin ástæða til að eyða meira fé í
mat en nauðsynlegt er. Með smá-
vegis útsjónarsemi og hagkvæmni
er hægt að draga úr mánaðarlegum
útgjöldum til matarinnkaupa og
eyða peningunum í eitthvað annað.
• Verslaðuþar sem verðið erlágt. Mat-
vörur eru að jafnaði ódýrastar í svo-
kölluðum lágvöruverðsverslunum
en dýrari í klukkuverslununum.
• Fylgstu með tilboðum og nýttu
þér þau. Betra er samt að fullvissa
sig um að um raunverulegt tilboð
sé að ræða en ekki auglýsingabrellu
áður en veskið er dregið upp.
• Ekki kaupa meira af ferskum mat-
vælum en þú þarft á að halda. Á
Vesturlöndum fer stór hluti þeirra
matvæla sem fólk kaupir inn óét-
inn í ruslið. Þá er alveg eins hægt
að henda peningunum beint í
tunnuna.
• Ef fjölskyldan er stór getur verið
hagkvæmt að kaupa mat í stórum
pakkningum eða með magnaf-
slætti. Það á ekki sist við um
þurrmat svo sem pasta, baunir og
hrísgrjón.
• Bakaðu þitt eigið brauð. Það
smakkast ekki aðeins betur heldur
margborgar það sig. Það sama má
segja um önnur matvæli sem fólk
getur búið til í eldhúsinu.
• Það getur margborgað sig að eiga
frystikistu. I henni má til dæmis
geyma mat sem maður torgar ekki
sem hefði að öðrum kosti skemmst.
í henni er einnig upplagt að geyma
heimalagaðan mat til síðari tima.
• Nýttu gjafir jarðar og tíndu ber og
annað ætilegt úti í náttúrunni. Þar
leynist meira ætilegt en margir gera
sér grein fyrir. Upplagt er að rækta
eigið grænmeti og krydd á sumrin
ef maður hefur aðstöðu til þess.
Kanadískirgæðapottar
RYMINGARSALA
Munum á næstu vikum opna stærstu pottaverslun
í Evrópu í nýju 800m2 húsnæði í Faxafeni 9
SpaBMÍKongen
Lækjargötu 34 • Hafnarfjörður • S. 554 7755
www.spakongen.is heitirpottar.is