blaðið - 05.09.2007, Síða 22
34
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
blaðió
SAMbio.is , m
SAM&l öM
C575 8900
Ertu afl fara að gifta þig?
Þá viltu alls ekki
lendafhonum!!!
JOHN
KRASINSKI
rSiMF$ JV ÁLFABAKKA /
DISTURBIA 1(1.5:30-8-10:20 14
DISTURBIA VIP kl. 5:30-8-10:20
LICENSE T0 WED kl. 6-8-10:10 7
ASTRÓPÍÁ kl. 6-8-10:10
RATAT0UILLE kl. 8:10-10:20
RATATOUILLE M/-ÍSL TAl kl. 5:30
TRANSF0RMERS kl. 5:30-8-10:40
Si'l: KRINGLUNNI
ASTRÓPÍÁ kl. 6:30 - 8:30 -10:30
LICENSETO WED ld. 6 -8-10:10 DIGflW 7
B0URNE ULTIMATUM kl. 5:40-8-1020
uud Pk AKUREYRI
LICENSE T0 WED kl. 8
RATAT0UILLE w- fSL tal kl.6
ASTRÓPÍÁ W.6-8
Siítiitl ÁkKEFIAVÍK
B0URNE ULTIMATUM kl. 8-10:30
ASTRÓPÍA W.8-10
Á^tMMHSÍtHISSI S. 481 3007
ASTRÓPlÁ 1 kl. 8 -10
RUSH H0UR 3 a: CD o 12
REcnBocmn
EVENING W. 5.30,80010.30 L
BRETTIN UP W.6 L
C0CAIN COWBOYS ld.8 14
DIE FALSCHER W.530
SICKO W. 8 00 10.30 7
SHORTBUS M.1030 18
THE BRIDGE W. 1020 16
AWAY FROM HER kl. 5.30 00 8 7
smáRR^ BÍÓ
SURF'S UP W.4.6.8O010 L
BRETTIN UPP Islenskt tal kl.4og6 L
THE BOURNE ULHMATUM W.8og10.30 14
7HE BOURNE U. LÚXUS W. 5.30,8 og 10.30 14
RUSH HOUR 3 kl. 6 og 10.10
SIMPSON enskt tai kl. 4.8 og 11 L
SIMPSON Islenskl tal W. 4 og 6 L
KNOCKEDUPMASTERC. kl.8-2fyrir1 14
DISTURBIA M.SogmSCTPCWBT 14 1
BRETTIN UPPIsl.tal W.6 L r:
TTE BOURNE UL71MATUM kl. 5.40,8 og 10.20 14 5
RUSHH0UR3 W. 10.20
RATATOUILLEísltal kl. 5.30 L I
KN0CKED UP MASTERC. kl. 8 - 2 lyrir 1 14 £
HÁSKÓLABÍÓ
BRETTIN UPP íslenskt tal W.6 L
ASTR0PIA M. 6.8 oq 10.10 L |
THE BOURNE ULnMATUM M. 530,8og 1020 14 l
RUSH H0UR 3 kl. 6,8 oq 10
BECOMING JANE M.8OQ1030 L I
DISTURBIA kl.8oa10.20 14
BRETTIN UPP felenskt tal W.6 L
THEBOURNEULnMARJM W. 6og10.10 14
KNOCKED UP MASTERC. W. 8 - 2 fyrir 1 14
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Þáfengum viðyfir okkur
flórsykur og rækjumjöl
- sem var eiginlega það
ógeðslegasta við þetta.
Tvífarar vikunnar
Pete Doherty
lét sig hverfa
Eiturlyfjaneytandinn og
fyrrverandi elskhugi Kate Moss,
Pete Doherty, var staddur á
heimili söngkonunnar Amy
Winehouse kvöldið sem hún var
nærri látin af of stórum skammti
eiturlyfja samkvæmt The Sunday
Mirror. Winehouse var flutt á
sjúkrahús þar sem hún var vakin
til lífsins en fyrr um kvöldið
höfðu þau Doherty snætt saman
og neytt blöndu af heróíni og
kókaíni. Stuttu seinna féll söng-
konan í dá og lét Doherty sig þá
hverfa af svæðinu án þess að rétta
fram hjálparhönd þar sem hann
vildi ekki vekja athygli á því að
hann hefði verið á svæðinu.
Tvífarar vikunnar eru að
þessu sinni sjónvarps-
konan Inga Lind Karls-
dóttir og breska leik-
konan Keira Knightley.
Ekki nóg með að þær séu
báðar dökkhærðar og
brúneygðar heldur eru
þær að flestra mati bráð-
myndarlegar og gætu í
það minnsta verið systur
ef ekki tvífarar.
Inga Lind Myndi sóma sér vel í hlutverk-
unum sem Knightley hefur tekið að sér.
Brot af því besta á menningarhátíð
ísland fyrir Tékka
í byrjun október verður
haldin íslensk menningar-
hátíð í Prag. Tilgangurinn
er að kynna Tékkum ís-
lenska menningu með því
að bjóða upp á þverskurð
af íslensku menningarlífi.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Dagana 3. til 8. október næstkom-
andi verður haldin íslensk menn-
ingarhátíð í Prag en skipuleggjandi
hátíðarinnar er Sunna Guðnadóttir
sem búsett er í borginni. Á hátíð-
inni gefst gestum tækifæri til að
njóta þverskurðar af íslensku menn-
ingarlífi, en sýndar verða íslenskar
kvikmyndir og vídeóverk ásamt
því sem íslenskir tónlistarmenn
koma fram. Einnig verður opnuð
ljósmyndasýning með verkum
íslenskra ljósmyndara af vefnum
flickr.com en sú sýning er haldin
í samstarfi við Ljósmyndasafn
Reykjavíkur.
Icelandic Fanatics í Prag
„Ég ákvað að gera þetta vegna
þess að ég hef fundið fyrir gríð-
arlegum áhuga á íslandi af hálfu
Tékka,“ segir Sunna. „Það er meira
að segja starfræktur klúbbur hér í
Prag sem kallast Icelandic Fanatics
en í þessum klúbbi er fólk sem
hefur mikinn áhuga á Islandi og
öllu sem því viðkemur en meðlimir
eru um 400 talsins.“
Þetta er í fyrsta skipti sem há-
tíðin sem kallast Islandsky pruvan
eða íslenskur dragsúgur er haldin,
en Sunna vonar að vel takist til og
útilokar ekki að endurtaka leikinn
á næsta ári.
ISLANDSKY PRUVAN
► Á hátíðinni munu koma fram
tónlistarmenninir Daníel
Ágúst og Ben Frost sem og
hljómsveitirnar Sometime
og Worm is Green.
► Kvikmyndirnar Djöflaeyjan,
Englar alheimsins, Börn
náttúrunnar og Á köldum
klaka eftir Friðrik Þór verða
sýndar ásamt heimildar-
myndinni Screaming Mast-
erpiece eftir Ara Alexander,
stuttmyndinni Síðasti
bærinn í dalnum eftir Rúnar
Rúnarsson og myndinni
Salt eftir Bradley Grey.
►
Nánari upplýsingar um
hátíðina er að finna á www.
islandskypruvan.cz.
„Við höfum verið að vinna saman
að þessu þrjú og það sem byrjaði
sem lítil hugmynd er alltaf að verða
stærra og meira og dagskráin hefur
eiginlega undið upp á sig undan-
farið, þannig að það verður nóg í
boði fyrir áhugasama. Hugmyndin
er eiginlega fyrst og fremst sú að
bjóða Tékkum upp á að kynna sér
íslenska menningu en auðvitað er
alveg frábært ef íslendingar hafa
áhuga á að sækja þetta líka.
Á hátíðinni munum við sýna
fjórar myndir eftir Friðrik Þór,
ásamt myndum eftir Rúnar Rún-
arsson, Ára Alexander og Bradley
Grey. Svo erum við að vona að tvær
myndir eftir Baltasar Kormák
bætist í hópinn en það hefur ekki
verið staðfest ennþá. Á hátíðinni
verða líka frábærir tónlistarmenn
og sýnd verða vídeóverk eftir 16
manna hóp úr Listaháskólanum
en sú sýning kallast Language Wit-
hout Words. Við erum sem stendur
að kynna hátíðina sem tekur
töluverðan tíma og svo hefur líka
verið heilmikið verkefni að safna
styrkjum og þess háttar. En undir-
búningurinn hefur verið skemmti-
legur, enda gaman að kynna land
og þjóð á erlendri grund.“
Magnús Kjartansson kemur fram á söngvaskáldakvöldi
Júdas, óðmaður og trúbrjótur
„Við ætlum að hafa þekkt söngva-
skáld fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar, þar sem einhver þekktur
kemur fram og hitar upp fyrir
yngri spámennina," segir Jakob
Frímann Magnússon, stuðmaður
og einn af skipuleggjendum söngva-
skáldakvölda á Domo.
„Þeir sem eru búnir að heita
okkur atfylgi sínu í vetur eru Ragn-
heiður Gröndal, Bubbi Morthens,
Magnús Þór Sigmundsson, Dr.
Gunni og sá sem ríður á vaðið er nú
mikill höfuðpaur Suðurnesjabítla
og texta- og tónhöfunda, Magnús
Kjartansson, Júdas, óðmaður og
trúbrjótur. Það gefst nú ekki oft
tækifæri til að heyra hann og sjá
í þessu samhengi. Hann var eggj-
aður til dáða.“
Jakob segir djammsession fara í
gang eftir að söngvaskáldin ljúka
sér af. „Þar mæta menn með gígj-
urnar og lúðrana, blanda saman
og rugla reytum,“ segir hann. „Svo
þróast það yfir í klukkan io, en þá
tekur djassklúbbur Múlans við.“
Aðgangur er ókeypis á söngva-
skáldakvöldið og hefjast leikar
klukkan 20. atli@bladid.net
Söngvaskáld Magnús
Kjartansson kemur
fram á Domo i kvöld. T
Norah var
ekki trufluð
Eldar Ástþórsson
segir málið á mis-
skilningi byggt
„Ég held að þetta sé að stórum
hluta á misskilningi byggt,“ segir
EldarÁstþórsson, einn afskipuleggj-
endum tónleika Noruh Jones í Laug-
ardalshöll á sunnudag. Vísir.is veltir
upp spurningunni hvort Jones hafi
verið sýnd óvirðing, þar sem stórt
skarð var fremst í salnum á svæði
boðsgesta og Ágúst Bogason, gagn-
rýnandi Morgunblaðsins, segir stöð-
ugt ráp hafa verið á gestum á meðan
á upphitunaratriði M. Ward stóð.
„M. Ward er mjög óþekkt stærð á
íslandi og allir þeir sem mættu á tón-
leikana voru að fara á tónleika með
Noruh Jones,“ segir Eldar. „Eins
og oft vill verða fá þessi upphitun-
aratriði minni athygli þrátt fyrir
að vera mjög góð. Mikið af fólkinu
sem var í FL Group-partíinu kaus
að koma eftir upphitunina. Það sem
við ákváðum sem tónleikahaldarar
og lögðum mikla áherslu á var að
það yrði engin truflun tónleikum
Noruh Jones. Það tókst mjög vel,
það var engin truflun.“
Flutti þrjú lög með M. Ward
„Það var hópur fólks, sem kom
inn í salinn eftir að upphitunin
var búin,“ segir Eldar. „Eg held að
fólk hefði alveg áttað sig á þessum
skilum á milli upphitunar og aðal-
atriðis - hefðu þetta ekki verið síð-
ustu tónleikarnir í túrnum hennar
Noruh Jones. Því þá ákvað hún,
öllum að óvörum - þar á meðal
okkur, að taka lagið með M. Ward.“
Eldar segir því skiljanlegt að
fólk hafi talið tónleika Noruh Jo-
nes vera byrjaða. „Tónleikagestir
mættu, margir með það eitt í huga
að sjá Noruh Jones, og hver birtist
á sviðinu? Norah Jones,“ segir Eldar.
„Hún tekur þá tvö lög með M. Ward,
svo tekur hann tvö sjálfur og svo
tekur hún eitt í viðbót. Svo kemur
bará hlé og þegar klukkuna vantar
tíu mínútur í níu hefur Norah Jones
leikinn og það er engin truflun. Ég
hef fengið símtöl þar sem fólk spyr
af hverju gert hafi verið hlé sérstak-
lega fyrir einhvern hóp fólks inni í
miðju settinu hjá Noruh Jones. Ein-
hver hluti gesta gerði sér ekki grein
fyrir því að þetta væru tvö aðskilin
sett.“ atli@bladid.net