blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 26
38
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
blaðiö
FÓLK
Ég á ekki von á
því.
folk@bladid.net
Verður Múhammeð tekinn fyrir næst?
Biskup er ekki hrifinn af nýjusfu farsimaauglýsingum Símans,
þar sem Jesús og lærisveinar hans eru í aðalhlutverkum.
Ekki er langt síðan Danir lágu í því eftir að skopmyndir af
Múhammeð spámanni birtust í Jyllands-Posten. Linda Björk
Waage er upplýsingafulltrúi Símans.
HEYRST HEFUR
Eva Ásrún Albertsdóttir er ný á Skjánum
Vefsíðan Fishupdate.com er
ítarlegur, alþjóðlegur frétta-
vefur um sjávarútvegsmál. Á
hverjum degi er síðan uppfærð
með fréttum frá öllum heims-
hornum, þar á meðal íslandi.
Ekki verður þó sagt að vefsíðan
lumi alltaf á allra nýjustu
fréttunum, enda var sagt frá því
þann 3. september síðastliðinn
að forsætisráðherra, Halldór Ás-
grímsson, hefði spáð því nýlega
að fsland yrði komið með aðild
að ESB fyrir árið
2015 og að for-
maður stærsta
stjórnarand-
stöðuflokksins,
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir,
fagnaði þeirri
yfirlýsingu
ráðherrans...
Síminn auglýsir þessa dagana
nýja þriðju kynslóðar farsíma
með stílfærðri mynd af síðustu
kvöldmáltíð Jesú Krists, en þar
heldur Jesús sjálfur á slíkum
farsíma og er titill auglýsingar-
innar Að breyta gangi sögunnar
með 3G. Þess er skemmst að
minnast að fyrir 10 árum settu
Spaugstofumenn síðustu kvöld-
máltíðina á svið í mikilli óþökk
trúmanna og var meðal annars
farið fram á opinbera rannsókn
á þættinum. Nú verður fróðlegt
að sjá hvort kirkjunnar menn
taki sig til og sniðgangi Símann
vegna auglýsingarinnar, eða
jafnvel
krefjist
opin-
berrar
rann-
sóknar...
íslenski tónlistarmaðurinn
BM V, eða Brynjar Már Valdi-
marsson, gerir það gott í
Grikklandi þessa dagana, en
lagið hans, In my place, er þessa
stundina í 2. sæti á
vinsældarlista út-
varpsstöðvarinnar
Radio 1 þar í landi.
Lagið komst
á vinsældar-
listannfyrir
nokkrum
vikum
og hefur
klifið list-
ann hratt
síðan þá.
Skemmtilegast að sjá
hvað fólk verður þakklátt
Nýtt andlit birtist lands-
mönnum á Skjá einum
í lok mánaðarins, en þá
verða hreingerningaþætt-
irnir sívinsælu Allt í drasli
teknir aftur til sýninga,
en að þessu sinni verður
Eva Ásrún Albertsdóttir
annar þáttastjórnenda.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Eva Ásrún Albertsdóttir er nýr
umsjónarmaður hreingerninga-
þáttanna Allt í drasli á Skjá einum
ásamt Margréti Sigfúsdóttur. f þátt-
unum heimsækja þær stöllur alls
kyns heimili og taka ærlega til hend-
inni. „Margrét er náttúrlega skóla-
stýra Hússtjórnarskólans þannig
að hún er með öll hreingerningar-
og húsráð á takteinum. Ég kem
hins vegar úr heilbrigðisgeiranum,
enda ljósmóðir að mennt, ásamt
því sem ég hef töluverða fjölmiðla-
reynslu. Það er alveg nauðsynlegt
að hafa með í umræðunni hvað það
getur verið vont og heilsuspillandi
fyrir fjölskyldur að búa við mikinn
óþrifnað. f einni borðtusku getur
til dæmis leynst ógrynni af bakt-
eríum og margir átta sig ekki á
því að það þarf að skipta reglulega
um borðtuskur, helst á hverjum
degi,“ segir Eva Ásrún. „Svo er líka
nauðsynlegt að muna að þrífa vel
klósett, vaska og baðkör ásamt öllu
eldhúsinu og rúmfötum svo dæmi
séu tekin. f tuskudýrum, sem eru
gjarnan á hillum eða í rúmum í
barnaherbergjum, safnast líka oft
fyrir mikið af ryki og pöddum án
þess að foreldrarnir átti sig á því.
En það eina sem þarf að gera er
bara að stinga þeim annað sfagið í
þvottavélina."
Þakklátt fólk
Aðspurð segist Eva Ásrún þó
ekki vera með neina sérstaka tusku-
maníu. „Ég held ég sé bara innan
eðlilegra marka í þeim efnum, ef
svo má segja. Þó er ég með þrjú
börn á heimilinu þannig að vissu-
Eva Ásrún Albertsdóttir
Gefur fólki ráð varðandi heilsu
og þrifnað á Skjá einum.
KONAN
Eva Ásrún Albertsdóttir var
þekkt útvarpsrödd á rás 2.
Eva Ásrún syngur með
Snörunum.
Eva Ásrún er Ijósmóðir að
mennt.
fega er nóg að gera hjá mér í tiltekt
og þrifum. Nú erum við búin að
taka upp tíu þætti af Allt í drasli
og þar höfum við Margrét auðvitað
haft nóg að gera ásamt hreingern-
ingafyrirtækinu sem sér um þrifin
í þáttunum og stundum hjálpaði
tökuliðið líka til, enda er oft gríð-
arlega mikil vinna sem fylgir því
að koma einu heimili í sæmilegt
stand,“ segir hún en bætir því við
að þrátt fyrir mikla vinnu hafi
reynslan verið afar ánægjuleg.
„Þetta var bæði skemmtilegt og fróð-
legt en það besta við þetta var að
sjá hvað fólk var þakklátt og ánægt
þegar heimili þess var komið í gott
lag. Það getur verið mjög erfitt að
taka til þar sem mikið er af drasli
en svo þegar heimilið er orðið
hreint er mun auðveldara að halda
því þannig til frambúðar.“
Ýmisólík verkefni
Tökur á þáttunum hafa staðið yfir
frá því í sumar en fer senn að ljúka.
„Ég er svo heppin að ég get tekið að
mér hin ólíklegustu og ólíkustu
verkefni. Ég rek mitt eigið fyrirtæki
en meðfram því var ég til að mynda
kosningastjóri Framsóknar í Norð-
austurkjördæmi fyrir alþingiskosn-
ingarnar í vor og svo erum við í
Snörunum að syngja annað slagið
þó svo að lítill tími hafi reyndar
gefist til að sinna söngnum undan-
farið,“ segir Eva Ásrún. „En fyrsti
þátturinn af Allt í drasli fer í loftið
þann 25. september næstkomandi
og það verður líka fyrst þá sem ég sé
hvernig þetta kemur út. Á tökustað
erum við Margrét að sinna okkar
verki, en það er svo ekki fyrr en í
eftirvinnslunni sem sögumaðurinn
kemur inn og segir frá því sem er að
gerast. Það verður spennandi að sjá
útkomuna."
LAUGARDAGAR
ORÐLAUSTISKA
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðid.
Su doku
9 6 5 8
7 1 9
4 8 7 2 3
3 6 2
2 4 1 7 5
8
8 2 6 7 3
4 3 2
7 9 4 8
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERMAN eftir Jim Unger
verða aparnir uppgefnir.