blaðið - 05.09.2007, Side 27
blaóiö
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
39
Hvanndalsbræður í borginni
Nýir meðlimir og léttari klæðnaður
Hvanndalsbræður spila á stórtón-
leikum ásamt Ljótu hálfvitunum á
NASA við Austurvöll næstkomandi
fimmtudagskvöld, en það verður
í fyrsta skipti sem þessar hljóm-
sveitir leiða saman hesta sína. Að
sögn Sumarliða Hvanndal, eins
hljómsveitarmeðlima, hefur lengi
staðið til að þessar hljómsveitir
spiluðu saman á tónleikum. „Við
þekkjumst vel, meðlimir beggja
hljómsveita, og sveitirnar eiga það
sameiginlegt að byggja sín pró-
grömm upp á talsverðri vitleysu og
miklu gríni og glensi á milli laga
þannig að það liggur beint við að
við spilum saman,“ segir hann.
Hvanndalsbræður eru frá Ak-
ureyri og koma gagngert til borg-
arinnar til að spila á tónleikum á
fimmtudaginn, en halda svo til
Þorlákshafnar þar sem þeir ætla að
spila á föstudagskvöldið, og á laug-
ardagskvöldinu verða þeir með tón-
leika á Sauðárkróki. „Við ætlum að
flytja lög af disknum sem við gáfum
út í sumar, „Skást of“, en á henni
eru skástu lögin af þremur diskum
sveitarinnar á einum diski, auk
þess sem við ætlum að frumflytja
nokkur ný lög. Svo ætlum við líka
að frumsýna tvo nýja hljómsveitar-
meðlimi, þá Pétur Hallgrímsson,
gítar- og mandólínleikara, og Val-
mar Valjots, sem er eistneskur fiðlu-
og harmóníkuleikari. Þá ætlum við
líka að skipta úr lopapeysunum og
yfir í léttari klæðnað enda erum við
að reyna að laga okkur að Reykjavík
þó svo að við séum ekki á leiðinni
að flytja þangað. Það þorum við alls
ekki,“ segir Sumarliði.
Fyrir utan nýja meðlimi, ný lög og
nýja búninga má jafnframt búast við
rokkaðri Hvanndalsbræðrum. „Við
erum alltaf að þróa okkur áfram og
núna verður meiri keyrsla á okkur
og harðari stíll heldur en áður. En
það verða áfram sömu skemmtilegu
íslensku textarnir,“ segir hann að
lokum.
BLOGGARINN...
Varasamir
kuklarar
Ég mæli með nýjustu sjónvarpsþáttum fíi-
chard Dawkins, „The Enemies of fíeason".
Þetta eru tveir þættir þar sem Dawkins
fjallar um nýaldartrúna sem viröist tröilríða
öllu um þessar mundir. Seinni þátturínn
er sérstaklega áhugaverður en í honum
skoðar Dawkins siaukin áhrif svokallaðra
óhefðbundinna (=les ósannaðra) lækninga
á Vesturiöndum. Hann bendir réttilega á
hversu varasamt það er þegar skattgreið-
endur eru látnir greiða fyrir kukl i nafni
heilbrigöis.
Sigurður Hólm Gunnarsson
www.skodun.is
Vinalegir
kuklarar
Vandinn við fíichard Dawkins erað hann
er síst minni ofstækismaður en margt af
því fólki sem hann er að fjaiia um. Nýskeð
var ég i Gtastonbury sem telst vera
miðstöð nýaldarfólks og alls kyns kukls.
Mér fannst þetta bara frekar vinalegt. Ég
get hugsað mér svo ótalmargt verra sem
fólk getur fundið sér til að gera. Það geta
ekki allir verið skynsamir. (þessu felst lika
ákveðin þversögn. Dawkins og hans fólki
(sem mérliggur við að kalla sértrúarsöfn-
uð) ermjög upþsigað við það sem má
kalla trúarþörf. En sóknin í nýaldargutlið
ber vott um mikla þörf fyrir að trúa - við
getum jafnvel kallað það trúgirni.
Egill Helgason
www.eyjan.is/silfuregils
Glansandi
perla
Það er ekkert mál að endurbyggja Hótel
Akureyri og rökin að það hafi staðið ónot-
að lengi duga ekki. Þeir sem best þekkja
segja að vel megi endurbyggja húsið
jafn glæsilega og Þarís og Hamborg
sem var ekki igóðu ásigkomulagi fyrir
nokkrum árum en glansar nú sem perla.
„Bögglageymslan" hafði staðið ónýtt og í
niðumíðslu í 30 ár en var gerð glæsilega
upp og hýsir nú fallegan veitingastað
Friðriks V.
Hlynur Hallsson
www.hlynurti.blog.is
FISKVEHKUN
KALLA SVEINS EHF
.. . . ■ .
Höfuöborgarsvæöiö: Smáralind, Kringlan, Bankastræti 5, Faxafen 12, Miöhraun 11 Garóabæ. Akureyri: Glerárgata 32. Keflavík: Leifsstöö og söluaðilar um land allt. ;; .- ’i| • ;■ ■i „ ý Ú ■ ' | oir . . y. . : i* ' - ; . . J ' •' ’ jib? ' T‘ . * : ? | r .. ; f
w ww.GGnorth .com 5. I Klæddu þig vel