blaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 4
20
FERÐALÖG
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007
blaðiö
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
Ferðavernd býður upp á bólusetningar
og ráðgjöf til ferðamanna.Þjónustan er í
umsjón Helga Guðbergssonar,læknis.
Vinnuna annast læknar og hjúkrunarfræðingar.
Mikilvægt er að panta bólusetningu og leita
ráðgjafar tímanlega áður en haldið er utan.
Tímapantanir í síma: 535 77 00
vernd
www.ferdavernd.is
LAUGARDAGAR
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðið=
Ódýrt og þægilegt
Bókaðu núna og skráðu þig í
EuroBonus-klúbbinn sem opnar þér
heilan heim fríðinda.
www.flysas.is
<-> Tokyo
“Kr.81.880
báðar leiðir
O Peking
MKr. 69.690
báðar leiðir
<-> Dubai
'Kr. 82.000
báðar leiðir
1
: i L íb'fJ&' » 1 >'■ j
L . J
SAS
Scandinavian Aírlines
Skattar og flugvallargjöld Innifaliö
A STAR ALLIANCE MEMBER t£>-
Fullkomið ferðalag fyrir öll skynfærin
Tókýó, hér kem ég
Tókýó sprengir öll vit.
Hljóðin, lyktin, bragðið,
mannfjöldinn. Tókýó er
engri borg lík. Og varla
hægt að lýsa stemning-
unni segja ferðalangar.
Hér eru nokkur ferðaráð
fyrir þá sem hyggjast
ferðast til milijónaborgar-
innarTókýó.
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@bladid.net
Margir halda að Tókýó sé ein kös
af skýjakljúfum en svo er ekki og í
borginni eru þeir fremur fáir.
Áður en haldið er út má heim-
sækja nokkrar vefsíður, lesa ferða-
handbækur og jafnvel horfa á
kvikmyndir því margir kvikmynda-
leikstjórar hafa notað Tókýó sem
sögusvið. Þær helstu eru: Tokyo
Joe, My Geisha, James Bond-kvik-
myndin You Only Live Twice, Kill
Bill, The Fast and the Furious: To-
kyo Drift og Lost in Translation.
Ekki festast í túristagildru
Varla er hægt að skipuleggja
ferðalag til Tókýóborgar þar sem
allir merkustu sögustaðir eru heim-
sóttir, helstu söfn og byggingar. Að
minnsta kosti segjast flestir viðmæl-
endur sem hafa ferðast til borgar-
innar hafa gefið öll slík plön upp
á bátinn við komu til borgarinnar.
Það er einfaldlega svo mikið að sjá
að flestum nægir að ganga um borg-
ina og líta inn á þá staði sem vekja
forvitni. Hins vegar má vel mæla
með því að fara í nestisferð í Sak-
ura-garð meðan kirsuberjatré eru í
blóma sem og þeirri reynslu að fara
í japanskt almenningsbað. Þá hafa
flestir gaman af því að heimsækja
Disneyland í Tókýó og að ganga um
keisaragarðana.
Sendu töskurnar á undan þér
Ekki einu sinni reyna að taka
farangurinn með þér inn í borgina.
Sendu hann beint á hótelið. Mann-
þröngin er það mikil að áreynslan
er einfaldlega ekki þess virði. Á
flugvöllum og helstu lestarstöðvum
skaltu leita að skilti sem segir „bagg-
age delivery“. Stærsta fyrirtækið
sem sér um farangursflutninga
kallast Kuroneko-Yamato og merki
þeirra er auðþekkjanlegt, en það er
gult og á því köttur sem ber kettling
í kjafti sér.
Sushiunnendur detta í krásir
BORGARRÖLTIÐ
►
►
>
►
Shue Uemura Beauty Bou-
tique 5-1-3 Omotesando
Tsumorii Chisato 4-21-25
Minami Ayoma
Yohji Yamamoto 5-3-6 Min-
ami Ayoma
Comme des Garcons 5-12-3
Minami Ayoma
Lovenet Karaoke Hotel Ibis
3-4F,7-14-4
Neðanjarðarlestir fyrir konur
Neðanjarðarlestarkerfi Tókýó
er vel þekkt fyrir ys og þys og á
sumum stöðvum þurfa menn með
hvíta hanska að ýta fólki í lestirnar.
Frægt er að sérstakir vagnar eru
fyrir konur á kvöldin og á háanna-
tímum þar sem þær verða annars
fyrir stöðugu kynferðislegu áreiti.
Einnig er hægt að taka strætisvagna
út frá neðanjarðarlestarkerfinu og
leigubíla í mörgum hverfum.
Hótel
Mandarin Orientai Hotel
Hótelið er vel staðsett innan
um vinsælar verslanir og
veitingastaði. Gestir sem
heimsækja hótelið halda ekki
vatni yfir inngangnum sem er
risavaxið glerhýsi.
Park Hyatt Tokyo Hotel
Hótelið sem Charlotte og Bob
létu sér leiðast á í Tókýó í kvik-
myndinni Lost in Translation,
er í miðju Shinjuku, viðskipta-
hverfi Japana.
Capsule Hotei
Fyrst þú ert að fara til Tókýó á
annað borð, hvers vegna ekki
að gista í einu frægasta hóteli
þeirra? Nafnið segir allt en
gistirýmin eru í raun hylki
sem rétt rúma eina manneskju.
Þrátt fyrir að rýmið dugi
aðeins til þess að leggjast til
svefns eru herbergin útbúin
litlu sjónvarpi og leikjatölvum.
Tókýo fyrir
byrjendur
Allt er gott sem endar vel
Konur í Tókýó eru feimnar við
að nota almenningsklósett.
Því eru almenningsklósett
hönnuð með vellíðan þeirra í
huga. Klósettsetan er upp-
hituð og hægt er að ýta á takka
sem spilar tónlist sem yfir-
gnæfir búkhljóð þau er fylgja
klósettferðum.
Berðu á þér litlar gjafir
Ætlir þú þér í heimsóknir á
japönsk heimili skaltu pakka
inn nokkrum litlum gjöfum.
En til siðs er að gefa húsráð-
endum gjafir. Þær mega ekki
vera of dýrar því einnig er
til siðs að húsráðendur gefi
gestum gjafir til baka og séu
þínar gjafir íburðarmeiri en
þær sem þú þiggur hefurðu
móðgað gestgjafa þinn.
Leigðu gæludýr
Nýjasta æðið meðal japanskra
framakvenna er að leigja sér
gæludýr. Hægt er að leigja
hund eða kött, páfagauk,
skjaldböku og mörg önnur
dýr í nokkrar klukkustundir
sér til ánægjuauka. Vinsælast
er að Ieigja smáhunda sem
konur bera þá í fanginu eftir
verslunargötunum.
Japanar tala ensku
Margir Japanar hafa sérstæðan
framburð og það getur tekið
tíma að venjast sérstæðum
framburði þeirra. Eftir að þú
hefur náð tökum á því að bera
fram McDonalds sem Ma-ku-
don-ado ertu orðin rólfær
meðal almcnnings.