blaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 6
22
FERÐALÖG
FÖSTUDAGUR 21, SEPTEMBER 2007
blaöið
&íumw
Kpi&ún $310
míNmmv.m
KATftH 5.510 2T2T
KATAmmv.m
Hægt er að kaupa sér
leiðsögn og hlusta á
djass meðan liðið er um
síki Kaupmannahafnar
Góður haustdagur í Kaupmannahöfn
Islendingar eru heima-
vanir í Kaupmannahöfn
Mjög vinsælt er að
bregða sér til Kaup-
mannahafnar á haustin
enda borgin ákaflega
vinaleg.
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@bladid.net
Margt er hægt að gera sér til af-
þreyingar í Kaupmannahöfn án
þess að kosta miklu til. Þeir sem
hafa áhuga á að feta slóðir Islend-
inga í Kaupmannahöfn geta farið
og fengið sér stúdentasnafs og bjór
á Hviids Vinstue sem var vinsælt
öldurhús fslendinga á r9. öld. Þá má
lesa íslensk blöð og fá sér kaffisopa
í Jónshúsi Sigurðssonar. Skella sér
á Bakken og príla upp í turnana í
Kaupmannahöfn.
Minna má á að vetrardagskrá Tí-
volísins í Kaupmannahöfn hefst 15.
nóvember.
Veitingastaðir og kaffihús
Laundromat Café er að sjálfsögðu
vinsæll áfangastaður íslendinga í
Kaupmannahöfn, enda rekinn af ís-
lendingum. Kaffihúsið hefur slegið
í gegn í borginni. Heimsækið heima-
síðu kaffihússins og kynnið ykkur
stemninguna sem er lifandi og frum-
leg, www.thelaundromatcafe.com.
Þá má ekki gleyma „Den lille fede“
sem er niðri í bæ en það er góður
staður með góðum vínum á viðráð-
anlegu verði. Máltíð með góðu víni
GÓÐIRTENGLAR
►
►
►
►
Allt um Kaupmannahöfn:
www.aok.dk
Kastrup-flugvöllurinn:
www.cph.dk
Á íslendingaslóðum:
www.islandscenter.dk
Wonderful Copenhagen:
www.woco.dk
ætti ekki að kosta mikið meira en
3000 íslenskar krónur.
Auðvitað verður svo að bragða
á alvöru dönskum heimilismat að
gömlum sið og þá má mæla með
Kobenhavner Caféen.
Á döfinni í september
f septembermánuði ber hæst að
nefna blúshátíð í Kaupmannahöfn
er hefst 26. september. Seiðandi
blús er leikinn víðast hvar um borg-
ina í 5 daga. Örugglega er ágætt að
stara melankólískt ofan í danskan
gæðabjór. Þá er enn hægt að skoða
síki Kaupmannahafnar undir leik-
andi djasstónum til 20. september.
Antíkmarkaður er á Gammel
strand til 30. september og þá má
alltaf líta á hinn margbrotna flóa-
markað á Norðurbrú, sýningu á
ljósmyndum Richard Avedon á
Louisiana Museum for Moderne
Kunst, myndlistarsýningu ungra
samtímalistamanna, Mad Love,
í Museum for Moderne Kunst
- Arken og svo hefst alþjóðleg kvik-
FERÐASKRIFSTOFUR
►
Kilroy Travels: Sérhæfir sig
í þjónustu við þá sem vilja
ferðast á eigin vegum.
►
►
Apollo: Sólarlandaferðaskrif-
stofa.
MyTravel: Vefsíða með tilboð-
um og uppboðum á ferðum.
Bókað er með afar litlum
fyrirvara.
►
Tyrkiet eksperten: Tyrklands-
ferðir.
myndahátíð Kaupmannahafnar
20. september, smekkfull af áhuga-
verðum kvikmyndum.
Ferðast áfram til annarra landa
Danmörk liggur mjög miðsvæðis
og frá landinu er bæði ódýrt og auð-
velt að ferðast áfram til landa eins
og Noregs og Svíþjóðar, Þýskalands,
Hollands og Póllands. Ferðamögu-
leikarnir eru ýmsir: ferjur, rútur
eða bílaleigubílar. Þá er mikið af
lágfargjaldaflugfélögum sem fljúga
til fjaríægari landa. Þá má einnig
kynna sér ódýrar pakkaferðir með
dönskum ferðaskrifstofum til ým-
issa áhugaverðra áfangastaða eins
og t.d. Afríku, Tyrklands, Indlands
og Ástralíu. Hér að neðan er að
finna tengla yfir á nokkrar af helstu
ferðaskrifstofum Danmerkur.
•'s
Draumur grúskarans
Flóamarkaöir í París
París er margbreytileg. í henni
rúmast hátíska og söfn, Louvre og
hundaskítur, elskendur og marg-
litar marenskökur, og síðast en ekki
síst, fjöldinn allur af mörkuðum. í
Parísarborg eru 84 markaðir en af
þeim eru þrír þekktir af orðspori.
Einn af uppáhaldsmörkuðum
þeirra sem sækja heimsborgina
París er Porte de Vanves. Þetta er
einn af minni mörkuðunum en
sérstaða hans er skemmtileg fyrir
draumórasafnara því hann er ávallt
hlaðinn af fallegum og einstökum
hlutum svo sem vatnslitamyndum
frá þriðja áratugnum, mynd-
skreyttum bréfum, ljósmyndum og
hattaboxum.
Stærstur þessara þriggja er svo
markaðurinn við Clignancourt,
betur þekktur undir nafninu,
Puces de St. Oueen. 1 raun er þetta
ekki einn markaður heldur heill
bær fullur af smámörkuðum sem
200 þúsund manns heimsækja
um hverja helgi. Þarna má finna
myndarlegar kristalsljósakrónur,
uppstoppuð bjarnarhöfuð, græn-
meti, frímerki, fatnað og blóm.
Nánast allt það sem hugurinn
girnist, en töluverðan tíma þarf
til að skipuleggja förina á þennan
markað og jafnvel ætti að gera ráð
fyrir góðum parti úr degi í ról og
rölt um markaðina.
dista@bladid.net