Orðlaus - 01.02.2006, Blaðsíða 2

Orðlaus - 01.02.2006, Blaðsíða 2
29. tbl. febrúar 2006 RITSTJÓRN Steinunn Helga Jakobsdóttir Hrefna Björk Sverrisdóttir Hilda Cortez UPPLÝSINGAR VARÐANDI EFNI ordlaus@ordlaus.is S: 5103700 AUGLÝSINGAR OG FJÁRMÁL Hrefna Björk Sverrisdóttir hrefna@ordlaus.is S: 822 2986 HÖNNUN & UMBROT Birna Geirfinns / www.birnageirfinns.com ÚTGEFANDI Ár og dagur ehf. Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur S: 510-3700 www.ordlaus.is FORSÍÐUMYND OG STÍLISERING Suzy & Elvis www.internet.is/suzy FORSÍÐUANDLIT Ragga HÁR, FÖRÐUN Sóley Ástudóttir / Emm FATNAÐUR Nakti apinn MYNDIR Steinar Hugi Friðrik Tryggvason Arnar Fells PRENTSMIÐJA Prentsmiðja Morgunblaðsins Upplag: 25.000 PENNAR Björn Þór Björnsson Fríða Thoroddsen Haukur S. Magnússon Hilda Cortez Hrefna Björk Sverrisdóttir Kristín Soffía Jónsdóttir Margrét Hugrún Gústavsdóttir Steinunn Jakobsdóttir Sunna Dís Másdóttir ... og fleiri nafnlausir. DÖIUSUM LÍIVIUDAIUS Ég hef átt í ófáum samræðum í gegnum árin við vini og kunningja sem kveinka sér yfir því að ná ekki að skara fram úr á öllum sviðum lífsins í einu. Skilja ekki af hverju þeir ná ekki að vera duglegasti starfsmaðurinn, skemmtilegasti félagsskapurinn, umhyggjusamasti fjölskyldumeðlimur- inn og heilsuhraustasta og best klædda manneskja borgarinnar, allt helst fyrir kvöldmat. Skilja ekki af hverju þeir geta ekki verið súpermenn eða súperkonur sem vinna kapphlaupið við tímann dag eftir dag og fara án undantekninga að sofa með bros á vör, enda búin að eiga framúrskar- andi frábæran dag. Ég hef oft pirrað mig á þessu líka og sagt þá við sjálfa mig að ég hljóti bara að vera svona afspyrnu löt fyrst ég nái ekki að vera með allt á hreinu. En þá er ég að dæma mig, vini mína og kunn- ingja heldur of hart. Það er ekki hægt að vera súper í öllu. Það er erfitt, ef ekki vísindalega ómögulegt, að gera allt á sama tíma. Á meðan við leggjum allt okkar kapp í einn hlut er alltaf eitthvað annað sem situr á hakanum á meðan. Ég, vinir mínir og kunningjar og að ég held flestir aðrir verðum því að bíta í það súra epli að klukku- stundirnar eru takmarkaðar og því eins gott að gera sem best úr þeim sem við höfum með því að vinna að því sem við ráðum við hverju sinni. Stundum eigum við afkastamikinn dag, stundum ekki. Þannig er það bara. Það besta er því að reyna að finna eitthvert gott jafnvægi sem við getum dansað línudans við. Reyna að húka ekki of lengi í sömu sporunum án þess að koma nokkrij í verk og held- ur ekki spretta allt of hratt af stað og hlaupa og hlaupa endalaust áfram án þess að taka nokkrar pásur á leiðinni. Við ættum að varast að vera iðjulaus og safna setningum á borð við: Hvað ef ég hefði nú ... eins og hrukkum eða bankalánum en heldLr ekki vera sífellt það upptekin að við sjáum ekki skóginn fyrir trjánum. Ég þarf stundum að minna mig á það að öfgarnar (í hvora áttina sem þær eru) bitna á öllu öðru sem ég geri og ef ég veðja öllu annað hvort á hangsið eða hörkuna þá dett ég niður hinum megin, líkt og jafnvægisvogin sem lyftir skálum sínum upp og niður eftir því hvar mestu þyngslin eru hverju sinni. Svona líður lífið líka áfram, upp og niður á víxl með skinum og skúrum en blanda af báðu er að mínu mati fyrirtaks kokteill. Stundum verðum við að taka af skarið og hella okkur af fullum krafti út í eitt málefni en um leið verðum við að muna að stoppa við og við og njóta hlutanna, því hvers virði er það að eiga hluti eða þekkja gott fólk ef við kunnum ekki að meta þá og þau eða gefum okkur ekki tíma til að skoða þá eða kynnast þeim. Á meðan við gleymum okkur ekki of lengi án þess að sinna öðrum hliðum lífsins en þeirri sem við kunnum að halda að sé mikilvægust í súpermanns- draumnum okkar og reynum að halda smá jafnvægi þá held ég að menn ættu að geta verið aðeins sáttari og minna stressaðir, enda er stöðug sól þreytandi til lengdar. Annars er þetta síðasta Orðlaus blaðið sem ég mun vinna að og er tími til kominn að ég reyni mig á öðrum sviðum. Þetta hafa verið litrík ár, full af beygjum, sveigjum og miklum breytingum en að mestu leyti alveg frábærri skemmtun og get ég því kvatt lesendur og samstarfsfólk sátt við mitt. Steinunn Jakobsdóttir

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.