Bændablaðið - 21.10.2010, Page 9
Við óskum Bústólpa til hamingju
með nýrri og fullkomnari fóðurverksmiðju
Mikil endurnýjun á framleiðslubúnaði fóðurverksmiðju Bústólpa á Akureyri hefur tvöfaldað afkastagetu verksmiðjunnar.
Ný tækni til hitameðhöndlunar og vinnslu, ásamt nýjum vélbúnaði til kögglunar og kælingar gerir fyrirtækinu kleift að
framleiða orkuríkara og efnameira fóður miðað við rúmmál og fóðurgildi þess eykst.
Tæknin byggist á því að fóðurblandan er háhituð í skamman tíma við mikinn þrýsting. Með þessu næst betri
nýting sterkju og próteina og þannig aukið fóðurgildi. Meðhöndlunin tryggir einnig minnsta mögulega tap
vítamína við vinnsluna og eykur öryggi gagnvart örverusmiti.
Allur stýribúnaður var jafnframt endurnýjaður. Auk þess að drífa verksmiðjuna áfram vaktar hann allar aðgerðir
með skjámyndum svo að enn betur er fylgst með gæðum framleiðslunnar og virkni vélbúnaðar.
Starfsmenn Bústólpa vinna náið eftir nýrri fóður- og matvælalöggjöf, með öflugu gæðakerfi, og geta því stoltir
haldið áfram að bæta þjónustu við bændur og auka gæði íslensks landbúnaðar með enn meiri „krafta í kögglum“.
Orkuríkara fóður, meiri arðsemi og aukin afköst!