Bændablaðið - 02.12.2010, Síða 19

Bændablaðið - 02.12.2010, Síða 19
19 Bændablaðið | fimmtudagur 2. desember 2010 Á vegum Fornleifaverndar rík- isins eru starfandi minjaverðir á sjö skipulögðum minjasvæð- um á Íslandi. Þeir eru fulltrúar Fornleifaverndar á landsbyggð- inni en hlutverk þeirra er m.a. að hafa umsjón með menningar- minjum á minjasvæðum og vinna að verndun þeirra, skráningu og kynningu og hafa með þeim eftirlit. Minjavörðum er uppá- lagt að kynna almenningi, sveit- arstjórnum, skipulagsaðilum og öðrum þeim, er málið kann að varða, þjóðminjalög, reglugerðir og réttar stjórnsýsluleiðir varð- andi umhverfismat og skipulags- mál. Eðli málsins samkvæmt eru minjaverðir í miklum samskiptum við íbúa á sínum svæðum og oft á tíðum bændur og aðra landeig- endur. Einn af minjavörðum Fornleifaverndar er Uggi Ævarsson en hann starfar sem minjavörður Suðurlands. Hann hefur aðsetur í gamla héraðsskólanum í Skógum undir Eyjafjöllum og er þar í góðu nábýli við byggðasafnið. Bændablaðið ræddi við Ugga um starfsemi minjavarðar Suðurlands en rúmlega eitt og hálft ár er síðan hann tók við starfinu. Umdæmi minjavarð- ar Suðurlands nær frá Selvogi í vestri, norður í Langjökul og austur á milli jökla að Skeiðarársandi í austri. Hagnýtum menningararfinn Starf minjavarðar snýst fyrst og fremst um velferð fornleifa í land- inu, um það að vinna úr og hag- nýta menningararfinn á sem fjöl- breytilegastan máta, að sögn Ugga. „Minjavernd getur tekið á sig ýmsar myndir og þrátt fyrir að ákveðið verklag sé haft að leiðarljósi eru mál, sem upp koma, ávallt háð túlkun og kringumstæðum. Að vernda fornleif- ar getur til að mynda ýmist falið í sér að grafa upp tóft eða að sjá til þess að hún verði ekki grafin upp, allt eftir atvikum. Minjaverðir beita sér fyrir því að vekja áhuga fólks á fortíðinni. Þeir reyna að byggja brýr á milli hagsmunahópa í því augnamiði að samvinna og samstarf um rannsóknir og nýtingu minja verði mögulegt og að upplýsingagáttin milli rannsak- enda og almennings haldist galop- in,“ segir Uggi. Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að minjaverðir séu til staðar út um land og þjóni sem nokkurskonar vettvangur eða brú á milli fólks í héraði og rannsakenda, t.d. fornleifafræðinga. „Fólk skyldi ekki veigra sér við að hafa samband við minjaverði á sínu svæði, hvort heldur sem er vegna jarðfundinna gripa, húsa, tófta eða örnefna sem eru að týnast. Það er okkar hlutverk að stuðla að auknum rannsóknum á menningararfinum, hvort heldur sem um er að ræða heimildavinnu, forn- leifaskráningu eða uppgröft.“ Uggi segir að gróflega megi segja að vinna minjavarðar Suðurlands felist í skipulagi og umhverfismati, skráningu og kortlagningu fornleifa, viðhaldi þeirra eða björgun og eftir- liti með fornleifarannsóknum. Þá reki ýmislegt annað á fjörur minja- varðarins sem þurfi að sinna í dag- legum störfum. Skipulag og umhverfismat Vettvangsferðir og umsagnaskrif vegna skipulagsmála er viðvar- andi vinna yfir árið, segir Uggi. „Minjavörður fær senda umsagn- arbeiðni vegna t.d. deiliskipulags frá viðkomandi byggingarfulltrúa, kynnir sér ritheimildir ef við á, fer á vettvang til að taka út tiltekinn byggingarreit eða lóð með tilliti til fornleifa og skrifar svo umsögn. Oft er engar fornleifar að sjá og eru þá ekki gerðar athugasemdir við fram- kvæmdina en stundum þarf að hnika til byggingarreitum vegna fornleifa. Ef um stærri svæði er að ræða er framkvæmdaraðila gert að kaupa þjónustu sjálfstætt starfandi forn- leifafræðinga til að skrá viðkomandi framkvæmdasvæði. Einnig kemur fyrir að ráðast þarf í uppgröft áður en byggingarframkvæmdir fara af stað eða ef fornleifar koma óvænt í ljós við framkvæmdir. “ Hverjir greiða fyrir rannsóknir? Í ljósi þess að fornleifauppgröft- ur og rannsóknir eru tímafrekar er eðlilegt að spyrja hvort kostnaðar- þátturinn vefjist ekki oft fyrir mönn- um. „Samkvæmt Þjóðminjalögum eru framkvæmdaaðilar flokkaðir í tvennt, minni og stærri. Bændur sem t.d. ætla að byggja sér sumar- eða útihús á jörðum sínum heyra undir „minni framkvæmdaaðila“, sem þýðir að ríkissjóður stendur straum af fornleifauppgreftri sem verður í kjölfar þess að fornleifar koma óvænt í ljós við framkvæmd- ir. Ef ábúandi á hinn bóginn ákveður að byggja ofan í rústir sem vitað er um, þá snýr málið öðruvísi við og hann gæti þurft að borga fornleifa- rannsóknina sjálfur. Það verður að segjast að lögin eru ekki skýr þegar kemur að því að skilgreina á hvers fjárhagslegu ábyrgð neyðarrann- sóknir eru og eins er skilgreining á „litlum“ og „stórum“ framkvæmda- ðilum býsna handahófskennd. En hugmyndin með slíku verkferli er að bjarga þeim menningarverðmætum sem ella væri rústað fyrir klaufaskap eða hugsunarleysi.“ Ólöglegt að moka mannvistarleifum í burtu Uggi segir hlutverk minjavörslunnar ekki síst að skapa aðstæður til að hagnýta þá þekkingu sem verður til við fornleifaskráningu eða hverskyns uppgröft. Hins vegar verði sá vettvangur ekki til nema rannsóknir og skráning fari fram. „Það er ótækt — hreint og beint ólöglegt — ef framkvæmdaaðilar líta svo á að betra sé að moka mannvistarleifum í burtu heldur en að hafa samband við minjavörð og fá úr því skorið hverslags minjar er um að ræða og hvað þær geta sagt okkur um lifnaðarhætti genginna kynslóða. Þrátt fyrir töluverðan uppgröft og fornleifaskráningu á síðustu áratugum er staðreyndin sú að gríðarlegt verk er óunnið við að koma fortíðinni í hús, ef svo má segja. Eins má mikið bæta þegar kemur að viðhaldi og kynningu á þekktum fornleifum, t.d. friðlýstum minjum.“ Skráning er meginforsenda minjavörslu Fornleifaskráning er ein meginforsenda minjavörslunnar, því erfitt er að vernda minjar sem engin vitneskja er um. „Minjavörður sinnir ekki fornleifaskráningu á samkeppnismarkaði en hins vegar þarf hann að sinna fornleifaskráningu af því tagi sem aðrir sjá sér ekki hag í að vinna eða sem ekki er í tísku í fræðunum. Undir þá gerð má setja skráningu, mat og kortlagningu fornleifa sem eru í hættu vegna náttúrulegra orsaka, s.s. vegna vindrofs, landbrots af völdum sjávar eða ágangi áa eða jökla. Slík skráning er gríðarlega mikilvæg en fyrst þarf að finna staðina — kortleggja þá — og þvínæst að meta ástand þeirra og ákvarða hvort beita þurfi mótvægisaðgerðum. Það getur verið nóg að skrá viðkomandi fornleifar en stundum þarf að notast við önnur meðul. Í sumum tilvikum er eina úrræðið að grafa upp fornleifarnar til að bjarga þeim upplýsingum sem annars færu í súginn. Sem dæmi má nefna að hluti kumlateigs er að fara í Hólmsá í Hrífunesi, Heiðarrétt á Síðu er að fara í Skaftá og Fell í Mýrdal þar sem Sr. Jón Steingrímsson bjó er á hraðri leið í ána Klifanda. Svona mætti lengi telja,“ segir Uggi og biðlar til Sunnlendinga að láta sig vita af fornleifum sem eru í hættu af náttúrulegum orsökum. Mikilvægt að „tappa af“ vitneskju um eyðibýli Kortlagning eyðibýla er annað afar aðkallandi verkefni sem þarf að vinna á vegum Fornleifaverndar, segir Uggi. „Nú sem aldrei fyrr ligg- ur fyrir kapphlaup við tímann, þar eð sú kynslóð sem síðust gekk um landið ríður skætinginn að móðunni miklu. Gjarnan er það svo að fólk fer að rifja upp og leggja sig eftir því sem foreldrar eða afar og ömmur sögðu því um gömul eyðibýli þegar það tekur að reskjast. Mikilvægt er því að tappa vitneskjunni af og fá leiðsögn um staðsetningu býlanna og aðrar upplýsingar sem fólk kann að lúra á.“ Kreppan hefur áhrif Skyldi kreppan hafa sett strik í reikninginn við fjármögnun fornleifastarfa? „Nú á krepputímum er við ramman reip að draga því ætíð hefur verið erfitt að fá fjármagn til uppgraftar eða til að standa sómasamlega að viðhaldi og kynningu menningarminja en nú er allt í járnum. Það breytir því ekki að minjavörður reynir að þoka málum áleiðis,“ segir Uggi og tekur dæmi um friðlýstar minjar í Þjórsárdal þar sem minjavörður sé í samstarfi við áhugahópa í héraði, sveitarstjórn og menningarfulltrúa uppsveitanna. „Annað dæmi eru manngerðir hellar á Suðurlandi, sem skipta tugum. Áætlað er að velja nokkra hella og gera þá aðgengilega, endurhlaða fordyri og halda þeim við. Þetta verður vitanlega ekki gert nema í samstarfi við ábúendur og sveitarfélög. Hinir manngerðu hellar eru sérstaklega einkennandi fyrir Rangárþingin og því virkar það svo gráupplagt fyrir landeigendur — og minjaverndina — að hagnýta hellana, gera þá aðgengilega ferðamönnum“. Af nógu að taka á Suðurlandi Á allra síðustu misserum hafa ekki farið fram stórir fornleifauppgreft- ir á Suðurlandi að undanskildum Þjótanda við Þjórsá. „Þegar landið fer að rísa þyrfti að róa að því öllum árum að slá í umfangsmiklar forn- leifarannsóknir á Suðurlandi, því af nógu er að taka,“ segir Uggi sem vill jafnframt beina því til lesenda Bændablaðsins á Suðurlandi að hafa samband við sig ef þeir hafi áhuga- verðar hugmyndir sem tengjast forn- leifavernd. „Víða hafa heimamenn haft frumkvæði að varðveislu og viðhaldi fornminja en við viljum gjarnan kanna hvort hægt væri að virkja áhugasama í héraði til þess að halda við minjum, t.d. að útbúa upplýsingaskilti, hlaða upp vörður, snyrta og merkja tóftir og hreinsa hella undir leiðsögn minjavarðar. Einnig mætti hugsa sér námskeiða- hald af einhverju tagi í samstarfi við sveitarfélög eða áhugahópa, fá sér- fræðinga til að halda fyrirlestra eða kenna gamalt handbragð eða eitt- hvað þar fram eftir götunum,“ segir Uggi Ævarsson að lokum en áhuga- samir geta sent honum tölvupóst á netfangið uggi@fornleifavernd.is eða leitað upplýsinga á vefsíðunni www.fornleifavernd.is. Minjasvæði á Íslandi eru: • Vesturland • Vestfirðir • Norðurland vestra • Norðurland eystra • Austurland • Suðurland • Reykjanes • Reykjavík Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands: Minjaverðir beita sér fyrir því að vekja áhuga fólks á fortíðinni — Kortlagning eyðibýla aðkallandi verkefni mynd | Eddi Í Hrífunesi í Skaftártungu gróf Kristján Eldjárn ásamt fleirum fram 4-5 kuml sem komu í ljós eftir því sem Hólmsáin braut úr bakkanum. Nú blasir að líkindum enn eitt kuml við, því grjótið sem er að hrynja úr stálinu er ekki komið þangað af náttúrunnar hendi. Mynd | Uggi Heiðarrétt á Síðu var lögrétt Síðubænda fram á 8. áratug 20. aldar. Skaftá étur úr bakkanum og er nú farin að sleikja syðstu dilkana. Mynd | Uggi

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.