Fréttablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag SKIPULAGSMÁL Eigendur meirihluta Geysissvæðisins í Haukadal ætla að ráðast í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á svæðinu. Á næstunni stendur til að efna til samkeppni um framtíðarskipu- lag svæðisins. Þeir hafa auk þess látið gera þjónustukannanir á svæðinu í sumar þar sem fram hefur komið að ferðamenn hafa verið undrandi á því að ekki skuli vera gjaldtaka þar. Starfsemin á að skapa sex til tíu heilsársstörf. Stofnfundur Landeigendafélags Geysis ehf. var haldinn í gær. Að félaginu standa eigendur 65 pró- senta hverasvæðisins í Haukadal sem ákváðu í fyrra að hefja undir- búning að því. Formaður stjórnar er Bjarni Karlsson, barnabarn Bjarna Sigurðssonar frá Geysi. Íslenska ríkið, sem á 35 prósent af landinu, er ekki á meðal eigenda félagsins. Í minnisblaði sem landeigend- urnir, að undanskildu íslenska ríkinu, sendu Drífu Kristjáns- dóttur, oddvita Bláskógabyggð- ar, í lok maí, segir að ljóst sé að hverasvæðið við Geysi í Haukadal hafi látið á sjá í áranna rás. Meg- intilgangurinn verði að vernda og skipuleggja svæðið með til- liti til „þeirrar miklu aukningar ferðamanna sem koma til lands- ins allt árið. Nýlegar rannsóknir sýna að 75 prósent erlendra ferða- manna sem koma til Íslands heim- sækja svæðið. Skipuleg uppbygg- ing getur því ekki beðið lengur.“ Því hafi þeir ákveðið að stofna félag um hverasvæðið sem sjái um verndun, uppbyggingu, fram- kvæmdir og rekstur á svæðinu. Ljóst sé „að um mikla fjárfestingu er að ræða auk viðhalds á komandi áratugum“. Garðar Eiríksson, talsmað- ur landeigendafélagsins, segir að formanni og varaformanni stjórnar þess hafi verið falið að stíga fyrstu skref í þessa átt fyrir næsta stjórnarfund. „Næsta skref verður síðan að fara í viðræður við ríkið um samstarfssamning vegna þess að þarna þarf uppbygg- ingu sökum fjölgunar ferðamanna. Ágangurinn er orðinn það mikill, enda heimsækir um hálf milljón manns svæðið árlega.“ Spurður hvort til standi að hefja gjaldtöku inn á Geysissvæðið til að standa undir kostnaði við fyr- irhugaðar framkvæmdir segir Garðar það verkefni stjórnar félagsins að taka ákvörðun um það þegar fram í sækir. „Við höfum gert þjónustukannanir á svæðinu í sumar. Það má orða það þannig að margur ferðamaðurinn er undr- andi yfir því að það skuli ekki vera gjaldtaka á ferðamannasvæðum á Íslandi yfirhöfuð.“ - þsj / sjá síðu 10 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 24 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Bólstrun veðrið í dag 6. september 2012 209. tölublað 12. árgangur Erlendra ferðamanna sem koma til Íslands heimsækja Geysis- svæðið, samkvæmt nýlegri rannsókn. 75% VINNA MEÐ SKÓLANUM „Flestir hafa unnið í sumar og vinna jafnvel með skól- anum og safna sér þannig fyrir fatakaupum yfir vetrarmánuðina “ RÍK AF FÖTUMBjörk á mikið af nýtísku-fötum, enda hefur hún vakið athygli fyrir fal-legan fatasmekk.MYND/VILHELM B jörk Magnúsdóttir, 18 ára, nem-andi í Fjölbrautaskólanum í Garða-bæ segir að mikill áhugi sé á tísku meðal stúlkna í skólanum. Þær séu yfir-leitt vel klæddar og velti mikið fyrir sér tísku og förðun. Björk er sjálf þekkt fyrir að eiga safn af fallegum fötum og segist eiga stóran fataskáp. Það sé þó enginn metingur meðal nemendanna. „Flestir hafa unnið í sumar og vinna jafnvel með skólanum og safna sér þannig fyrir fatakaupum yfir vetrarmán-uðina,“ segir Björk sem er næstyngst fjögurra systkina. Hún segist vera með mestu fatadelluna á heimilinu. Þegar Björk er spurð um verslunar-venjur segist hún ferðast töluvert með foreldrum sínum til útlanda og fari þá gjarnan í búðir. „Við förum oft til Banda-ríkjanna en einnig til Evrópu. Ég fór fyrir stuttu til London og fannst sérstaklegaskemmtilegt að versl þ Ég skoða tískublöð og velti fyrir mér því nýjasta. Hausttískan er mjög að mínum smekk, dökkir litir og mikið um jakka en ég er veik fyrir þeim. Keypti einmitt fallegan jakka í Zöru nýlega sem ég hef notað mikið.“ Björk segist fylgjast með fyrirsætum á erlendum vettvangi í gegnum tísku-blöð og á netinu. „Ég hef gaman af því að fylgjast með flestu sem varðar tísku og förðun. Mér sýnist að stelpur á mín- um aldri séu vel að sér um tískustrauma og fylgist yfirleitt vel með. Ég er alltaf að pæla eitthvað og er líklegast fatafíkill,“ segir Björk og hlær en hún er ákveðin í að fara í nám til útlanda í viðskiptum eftir stúdentspróf þótt fatahönnun heilli hana líka. Björk segist vera hrifin af hönnun Karls Lagerfeld hjá Chanel Hh MIKILL TÍSKUÁHUGI TÍSKAN OG UNGA FÓLKIÐ Framhaldsskólarnir eru nýbyrjaðir og unga fólkið mætir vel klætt til kennslustunda. Tískuáhugi er þó misjafnlega mikill eftir skólum. Í Fjölbraut í Garðabæ er töluverður áhugi á fallegum fötum. GLERAUGU VICTORIUVictoria Beckham hefur skapað sér nafn sem fatahönn- uður á heimsvísu. Nú er hún að setja á markað gler- augna-umgjarðir. Victoria segist þurfa að nota gleraugu en hún finni sjaldnast umgjörð sem henni líki. Þess vegna bjó hún hana til sjálf. Línan á að koma í búðir í október. Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is Nuddrúlla-mýkir upp stífa vöðvaVerð: 5.470 kr. teg Adelphi - í D,DD,E,F,FF,G,GG skálum á kr. 9.550,- 3 tegundir á buxum fást í stíl. GLÆSILEGUR BAÐFATNAÐUR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga BÓLSTRUNFIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2012 KynningarblaðHönnunFramleiðslaBólstrunHeimilisprýðiHreinsun Með víðáttubrjálæði Brynja Sóley Plaggenborg sat í fjóra sólarhringa fyrir utan ferðaskrifstofu og hreppti heimsreisu. fólk 62 Hver á að skora mörkin? Margrét Lára verður ekki með í lokaleikjunum í undankeppni EM. sport 58 KÓLNAR Í VEÐRI Í dag má víða búast við norðvestan 5-13 m/s en vindur verður hægari allra vestast. Léttir til sunnan- og austantil en fremur skýjað og stöku skúrir norðan- lands. Kólnandi, einkum NV-til. VEÐUR 4 9 5 6 7 9 TÓNLIST „Við komum eiginlega ekki fleirum að. Það voru menn sem komust ekki að núna sem geta fyllt annað kvöld,“ segir hjartalæknir- inn og tónlistar- maðurinn Helgi Júlíus Óskars- son um fyrsta hluta nýju tón- leikaraðarinn- ar Tónelskir læknar taka lagið. Eins og nafnið bendir til er um að ræða vaskan hóp lækna sem tekur sér frí frá sínum krefjandi læknastörfum til að stíga á svið á Café Rosenberg á mánudags- kvöldið. Auk Helga koma meðal annarra fram þeir doktor Haukur Heiðar Hauksson úr Diktu, sem leikur eigin lög, og hjartalæknir- inn Ragnar Danielsen, uppruna- legur meðlimur Stuðmanna. - fb / sjá síðu 62 Ólæknandi áhugi á músík: Tónelskir læknar stíga á svið HELGI JÚLÍUS ÓSKARSSON LAGAÐ Í LAUGARDAL Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, var við störf í gær ásamt starfsmanni, við að búa völlinn undir landsleik Íslands og Noregs annað kvöld. Kristinn sagði völlinn vera í góðu ástandi, en nokkuð blautan. Veðurspá lofaði þó góðu þar sem stytta á upp fyrir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Geysisbændur í fjárfestingar Landeigendur í Haukadal stofnuðu í gær félag um uppbyggingu Geysissvæðisins. Miklar framkvæmdir fyrir- hugaðar. Gæti skapað sex til tíu heilsársstörf. Kannanir sýna að ferðamenn eru ekki fráhverfir gjaldtöku. VERSLUN Sala á smjöri jókst um 20 prósent í ágúst miðað við sama tíma í fyrra. Þá varð almenn aukning á sölu íslenskra mjólkurafurða í nýliðn- um mánuði. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda. Sala á rjóma jókst einnig, en í fyrrnefndri frétt segir að vafa- laust megi rekja það að hluta til góðrar bláberjasprettu í sumar. Þá var aukning í sölu á drykkjar- mjólk sem er að hluta til rakin til þess að farið var að selja fernur með skrúfutappa. Sigurður Loftsson stjórnarformað- ur Landssambands kúabænda, er að vonum ánægður með aukninguna í sumar. „Sumarmánuðirnir hafa geng- ið vel og fjölgun ferðamanna hér á landi virðist vera að skila sér í aukinni sölu á mjólkurafurðum,“ segir Sigurður í samtali við Fréttablaðið. - þj Aukin sala mjólkurafurða í ágúst meðal annars rakin til fjölgunar ferðamanna: Rjóminn rennur út á bláberin Gríðarlegur ójöfnuður Anna Elísabet Ólafsdóttir býr og starfar í Tansaníu. tímamót 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.