Fréttablaðið - 06.09.2012, Page 4
6. september 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 05.09.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,9717
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,78 123,36
194,97 195,91
153,93 154,79
20,659 20,779
21,05 21,174
18,197 18,303
1,5647 1,5739
186,64 187,76
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Rétt söfnunarnúmer í neyðarsöfnun
UNICEF á Íslandi fyrir sýrlensk börn
á flótta er 1900. Með því að senda
sms með skilaboðunum „unicef“ í
númerið styrkir fólk hjálparstarfið um
1.500 krónur.
ÁRÉTTING
SKIPULAGSMÁL Íbúasamtök 3. hverf-
is, sem nær til Hlíða, Holta og
Norðurmýri, segja umhverfismat
á deiliskipulagstillögu um nýjan
Landspítala við Hringbraut vera
meingallað. Reynt sé að breiða yfir
neikvæð áhrif aukinnar umferðar.
Samtökin sendu inn athuga-
semdir vegna tillögunnar, en frest-
ur til þess rann út í gær. Þau benda
á að í umhverfismatinu sé talið að
áhrif svifryksmengunar vegna
aukinnar umferðar séu óveruleg.
Sú niðurstaða fáist með því að
láta útreikninga vegna svifryks-
mengunar eingöngu ná til útblást-
urs bifreiða en ekki vegslits, sem
þó sé um 85 til 90% af uppsprettu
svifryksmengunar. Þetta sé tekið
fram í matinu.
Samtökin segja skipulagsyfir-
völd ekki geta samþykkt tillöguna
„þar sem skipulega er litið fram
hjá uppsprettu mengunar vegna
hennar og reynt er að breiða yfir
neikvæð áhrif aukinnar umferð-
ar,“ eins og segir í athugasemd-
unum.
Þá segja þau að staðallinn sem
stuðst sé við í hljóðvistargrein-
ingu vegna umhverfishávaða geri
hvorki ráð fyrir að hluti bifreiða
aki um á nagladekkjum né þeirri
staðreynd að blautt geti verið í
veðri. Vitað sé að þetta auki á
hávaða. Þau segja ekki hægt að
samþykkja tillögu sem notist við
gögn sem byggi ekki á raunveru-
legum aðstæðum.
Íbúasamtökin hafa áhyggjur af
því að byggingin muni stórauka
umferð um nærliggjandi íbúa-
hverfi, enda sé ljóst að núverandi
stofnbrautir valdi ekki aukinni
umferð. Endurskoða þurfi stað-
setningu spítalans, eða ráðast í
gerð stokks austur fyrir Lönguhlíð
og Öskjuhlíðarganga.
Bent er á að byggingarmagn
hafi aukist gríðarlega frá því að
staðsetningin var samþykkt, úr
120 þúsund fermetrum í 290 þús-
und fermetra. Þá hafi ekkert tillit
verið tekið til breyttra áherslna í
nýju aðalskipulagi.
Íbúasamtökin telja að forsendur
staðsetningarinnar „hafi miðað við
skipulag með hringakstur í borg-
inni, með Holtsgöngum, Hlíðar-
fæti og göngum undir Öskjuhlíð
og Kringlumýrarbraut.“
Af þessu standi aðeins spítalinn
eftir. kolbeinn@frettabladid.is
Íbúar telja breitt yfir
neikvæð áhrif spítala
Íbúasamtök segja að reynt sé að breiða yfir neikvæð áhrif aukinnar umferðar
við nýjan Landspítala í umhverfismati. Skipulagsyfirvöld geti ekki samþykkt til-
löguna. Þá sé ekki gert ráð fyrir notkun nagladekkja eða bleytu á götum.
LANDSPÍTALI íbúasamtökin segja að umferð um Miklubraut, austan Bústaðavegar/
Snorrabrautar, muni aukast um tæplega 50% eftir 1. áfanga spítalans.
FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
Steinunn Valdís Óskarsdóttir var
áhrifamaður í borgarstjórn Reykja-
víkur þegar staðsetningu sjúkra-
hússins var fagnað, meðal annars
með vísan í nálægð við Háskóla
Íslands og eflingu miðborgarinnar.
Hún hefur nú upplýst að hún telji
forsendur breyttar.
„Mér er hins vegar ljúft og skylt
að upplýsa að ég hef skipt um
skoðun enda forsendur breyttar
og fólk á að geta viðurkennt að
það hafi á einhverjum tíma haft
rangt fyrir sér. Ég skora hér með á
þá sem ráða málum nú að hætta
við þetta, það er aldrei of seint!“
Skipti um skoðun
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
29°
17°
16°
20°
21°
17°
17°
26°
20°
25°
30°
30°
15°
23°
20°
15°Á MORGUN
10-15 m/s NV-til,
annars hægari.
LAUGARDAGUR
6-15 m/s,
hvassast SA-til.
9 2
38
5 4
75
6
7
8
77
13
9
9
12
11
7
8
3 5
9
4
6
10
10 7 7
4 4
6
KÓLNANDI Í dag
ríkja NV-áttir víðast
hvar en vindátt
verður breytileg
allra vestast. Það
léttir heldur til
sunnan- og austan-
lands en N- og
NV-til má búast
við skúrum á stöku
stað. Á morgun og
laugardaginn lítur
út fyrir bjart og fínt
veður víða S- og
SA-lands.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
SÝRLAND, AP „Það er of seint að tala
um umbætur, nú er tími kominn
á breytingar,“ sagði Mohammed
Morsi, forseti Egyptalands, um
ástandið í Sýrlandi, þar sem Bas-
har al Assad forseti reynir enn að
berja niður uppreisn. Morsi segir
að Assad ætti að draga lærdóm
af nýlegri sögu, og vísaði þar til
byltinga víða í arabaheiminum.
Recep Tayyip Erdogan, for-
sætisráðherra Tyrklands, tók
enn dýpra í árinni og sagði Sýr-
landsstjórn vera orðna að hryðju-
verkastjórn: „Sýrland er að ganga
í gegnum mikla mannúðarharm-
sögu. Eins og venjulega gerir
alþjóðasamfélagið því miður ekk-
ert annað en að horfa upp á slátr-
unina, fjöldamorðin og útrým-
ingu múslima.“
Tyrkneska stjórnin hefur verið
meðal hörðustu gagnrýnenda
Sýrlandsstjórnar allar götur
síðan mótmæli og uppreisn hófust
í landinu snemma á síðasta ári.
Pattstaða virðist ríkja í borg-
arastríðinu í Sýrlandi. Hvorki
uppreisnarherinn né stjórnar-
herinn hafa náð yfirhöndinni, en
berjast af hörku í helstu borgum
landsins með þeim afleiðingum
að átökin hafa kostað vel á þriðja
tug þúsunda lífið.
- gb
Leiðtogar Tyrklands og Egyptalands gagnrýna Assad Sýrlandsforseta:
Of seint að tala um umbætur
STJÓRNARHERMENN Bíða átekta í
borginni Aleppo þar sem átök hafa
geisað vikum saman. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Mæðgur af víetnömsk-
um uppruna hafa verið ákærðar
fyrir að stela fatnaði, skóm og
snyrtivörum úr verslunum fyrir
um fjórtán milljónir króna á síð-
asta ári.
Málið er eitt stærsta þjófnað-
armál sem komið hefur upp á
Íslandi, að því er sagði í fréttum
Stöðvar 2 í gær. Konurnar voru
staðnar að verki í Smáralind
í október í fyrra og í kjölfarið
fannst gríðarlegt magn af þýfi á
heimili þeirra.
Ákæran á hendur þeim er 32
blaðsíður og mestmegnis upptaln-
ing á þýfinu. Við þingfestinguna í
gær tóku þær sér frest til að taka
afstöðu til ákærunnar. - sh
Mæðgur dregnar fyrir dóm:
Hnuplákæra á
32 blaðsíðum
HJÁLPARSTARF Átta verkefni frá
sex félagasamtökum hafa fengið
úthlutað ríkisstyrkjum vegna
þróunarsamvinnu. Fram kemur
á vef utanríkisráðuneytisins að
framlög í þessari úthlutun nemi
um 80 milljónum króna.
Rauði krossinn fær styrk vegna
tveggja verkefna, rúmlega átján
milljónir, og SOS Barnaþorp fá
sömuleiðis styrki vegna tveggja
verkefna í Afríku, samtals tæp-
lega tuttugu milljónir.
Þá fær Barnaheill 12,3 millj-
ónir, samtökin ENZA fá 4,7 millj-
ónir, Íslandsdeild BIZER tæpar
þrjár milljónir og Hjálparstarf
kirkjunnar fær 22 milljónir til
þróunarvinnu í Eþíópíu. - þj
Styrkir til þróunarvinnu:
80 milljónir í
átta verkefni
ÞRÓUNARAÐSTOÐ Utanríkisráðuneytið
úthlutaði áttatíu milljónum til félaga-
samtaka í þróunarvinnu.
PALESTÍNA, AP Hópur franskra rétt-
armeinafræðinga heldur á næstu
dögum til Ramallah á Vestur-
bakkanum í því
skyni að grafa
upp lík Jassers
Arafats, sem
lengi var helsti
leiðtogi Palest-
ínumanna.
Þetta fullyrð-
ir ekkja Arafats
og segist vonast
til þess að þar
með fáist skýring á dauða hans.
Banamein Arafats var heila-
blóðfall, en aldrei fékkst skýring á
veikindum þeim sem hrjáðu hann
síðustu vikurnar áður en hann dó
í nóvember 2004.
Í síðasta mánuði sögðu sviss-
neskir vísindamenn að leifar af
pólon 210, geislavirku efni, hefði
fundist á fötum hans. - gb
Frakkar á leið til Ramallah:
Arafat verður
grafinn upp
JASSER ARAFAT
TÉKKLAND, AP Dýragarðsvörður í
Tékklandi var fluttur á sjúkra-
hús með þyrlu í gær eftir að hafa
orðið fyrir árás dvergflóðhests.
Hin slasaða, Jana Myslivec-
kova, var afar reynd í starfi en
meiddist illa á fæti eftir viðskipti
sín við dýrið. Hún hafði misst
mikið blóð og var til aðhlynning-
ar á gjörgæslu þar sem reynt var
að bjarga fæti hennar.
Dvergflóðhestar geta vegið allt
að 275 kílóum og eru náttúruleg
heimkynni tegundarinnar í vest-
urhluta Afríku. - þj
Dýragarðsvörður í Tékklandi:
Slasaður eftir
dvergflóðhest
Sími: 580 5600 - plastprent.is
Til afgreiðslu strax
Sérfræðingar í umbúðalausnum
Lyftigeta: 2500 kg.
VANDAÐIR
STERKAR - EINFALDAR - ÞÆGILEGAR
Bretta-
strekkivélar
Pallettutjakkar