Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 10

Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 10
6. september 2012 FIMMTUDAGUR10 HVERNIG ER VEÐRIÐ Í DAG? FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag 590 0100 | www.expressferdir.is Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting í 19 nætur. Verð á mann í tvíbýli í 19 nætur 125.000 KR. LOS SALMONES ** ÍBÚÐAHÓTEL KOALA GARDEN SUITES HOTEL *** Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting í 19 nætur. Verð á mann í tvíbýli í 19 nætur 157.300 KR. Kanarí á kynningarverði! Í vetur bjóðum við upp á ferðir til Kanaríeyja á frábæru verði. Skelltu þér með okkur í sólina og slappaðu af á ströndinni, þú hefur gott af því! BÓKAÐUNÚNA! 27. okt.–15. nóv. FLUG ÁN HÓTELS 27. OKT.–15. NÓV . 69.900 KR. Flug með sköttum og öðrum greiðslu m. DÓMSMÁL Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeft- irlitsins (FME), neitaði í gærmorg- un sök þegar sakamál, sem höfðað hefur verið gegn honum fyrir brot á þagnarskyldu, var þingfest. Þór- arinn Már Þorbjörnsson, starfs- maður Landsbankans, er einnig ákærður fyrir þagnarskyldubrot í málinu. Hann neitaði einnig sök. Í ákærunni á hendur Gunn- ari og Þórarni, sem Fréttablað- ið hefur undir höndum, segir að þeir séu ákærðir fyrir „brot gegn þagnarskyldu, framin í Reykjavík 23. febrúar 2012, er ákærði Gunn- ar Þorvaldur, sem þá var forstjóri Fjármálaeftirlitsins fékk með- ákærða Þórarin Má, sem þá var starfsmaður Landsbanka Íslands hf., til að afla gagna úr bókhaldi bankans um viðskipti Bogmanns- ins ehf. sem hann afhenti Ársæli Valfells, að beiðni meðákærða, en um var að ræða skjal sem sýndi að Landsbanki Íslands hf. greiddi kr. 32.700.000 inn á bankareikning Bogmannsins ehf. 13. júní 2003. Umræddum upplýsingum, sem bundnar voru þagnarskyldu, kom Ársæll síðan, að beiðni ákærða Gunnars Þorvaldar, til fréttastjóra DV sem nýtti upplýsingarnar við ritun fréttar um viðskiptin sem birtust í DV 29. febrúar 2012“. Bogmaðurinn ehf. er í eigu Ágústu Johnson, eiginkonu Guð- laugs Þórs Þórðarsonar alþingis- manns. Félagið var áður í jafnri eigu hjónanna. Í fréttinni sem DV skrifaði, og byggði á skjalinu, kom fram að greiðslan hefði verið vegna sölu Guðlaugs Þórs á umboði fyrir tryggingamiðlun svissneska tryggingafélagsins Swiss Life, sem hann seldi til Landsbankans á þessum tíma. Umboðið hafði hann eignast skömmu áður með því að kaupa það af Búnaðarbankanum á ótilgreindu verði. Í ákæru ríkissaksóknara segir að Gunnar hafi framkvæmt það sem að ofan er lýst „í því skyni að skapa umræðu um viðskipti félags- ins og eiganda þess, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, við Landsbanka Íslands hf., sem hann taldi óeðlileg, og vegna þess að hann taldi Guð- laug Þór hafa í opinberri umræðu reynt að gera hann sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins tortryggileg- an, sem og stofnunina“. Í samtali við Fréttablaðið þann 5. mars síðastliðinn sagði Gunnar að það hefði verið „fullyrt í mín eyru, af mönnum sem ég treysti og trúi, að Guðlaugur Þór hafi komið gögnum til Kastljóss sem umfjöllun þáttarins um mig byggði á.“ Þar vísaði Gunnar í umfjöll- un Kastljóss um aðkomu hans að aflandsfélögum í eigu Landsbank- ans þegar hann starfaði fyrir bank- ann á árum áður. Sú umfjöllun setti af stað atburðarás sem leiddi að lokum til þess að Gunnari var sagt upp störfum hjá FME. Fyrir brot af því tagi sem Gunn- ari er gefið að hafa framið ligg- ur allt að þriggja ára fangelsi. Auk þess er heimild í lögum til að þyngja refsingu vegna brota sem framin eru í opinberu starfi um helming. Háttsemi Þórarins er talin varða við lög um fjármála- fyrirtæki. Við broti hans liggur allt að tveggja ára fangelsi. Ekki náðist í Gunnar Þ. Andersen við vinnslu fréttarinnar. thordur@frettabladid.is Gunnar Andersen segist vera saklaus Sakamál á hendur Gunnari Andersen, fyrrum forstjóra FME, og ætluðum vit- orðsmanni hans var þingfest í gærmorgun. Þeir eru ákærðir fyrir brot á þagn- arskyldu. Gunnar vildi skapa umræðu um alþingismann samkvæmt ákæru. SAKBORNINGAR Þórarinn Már Þorbjörnsson tekur í hönd Gunnars Þ. Andersen við þingfestingu sakamáls á hendur þeim í gærmorgun. Mönnunum tveimur er gefið að sök að hafa brotið gegn þagnarskyldu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lögmenn hinna ákærðu lögðu fram frávísunarkröfu við þingfestingu málsins í gærmorgun. Ástæða hennar er sú að þeir telja Helga Magnús Gunnarsson vararíkis- saksóknara, sem sækir málið, vera vanhæfan til að fara með það. Spurður hvað það væri sem þeir teldu gera Helga Magnús vanhæfan vildi Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður Gunnars, ekki svara því. „Það er það sem ég ætla að ræða við dóminn.“ Helgi Magnús segist sjálfur ekki hafa hugmynd um hvað það sé sem Gunnar telji að geri sig van- hæfan. „Leiðir okkar hafa vissulega legið saman þegar ég var í efnahagsbrotadeild en það voru lítil samskipti og bar engan skugga á. Þá sótti ég um embætti forstjóra Fjármálaeftir- litsins um leið og Gunnar. Ég sé ekki hvernig nokkuð af þessu ætti að leiða til vanhæfis míns.“ Telja Helga Magnús vanhæfan SKIPULAGSMÁL Eigendur meirihluta Geysissvæðisins í Haukadal ætla að ráðast í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á svæðinu. Þeir stofn- uðu Landeigendafélag Geysis ehf. í gær utan um verkefnið. Í minnisblaði sem landeigend- urnir sendu Drífu Kristjánsdóttur, oddvita Bláskógabyggðar, segir að þeir hafi sammælst um að standa myndarlega að uppbyggingu svæð- isins þannig að það „geti á eðlilegan hátt tekið á móti þeim fjölda ferða- manna sem heimsækir svæðið á hverju ári“. Því ætla þeir að ráðast í „skipulagða verndun og uppbygg- ingu á svæðinu í þeim tilgangi að ein helsta perla Bláskógabyggðar haldi sínum sess sem vinsælasti áfangastaður ferðamanna á Íslandi. Ljóst er að um mikla framkvæmd og fjárfestingu er að ræða“. Á stofnfundinum var ákveðið að boða til samkeppni um framtíðar- skipulag svæðisins. Í minnisblaðinu stendur að til standi að útbúa það „þannig að ferðamenn geti farið inn á það allt árið, valið stuttar og langar gönguleiðir innan svæðisins, fræðst um eðli þess og gersemar. Félagið áætlar að starfsemin geti skapað um sex til tíu störf“. - þsj Meirihluti landeigenda hverasvæðisins í Haukadal stofnar félag: Samkeppni um skipulag Geysis STROKKUR Geysissvæðið er einn vinsælasti viðkomustaður erlendra ferðamanna á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.