Fréttablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 16
6. september 2012 FIMMTUDAGUR16 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir v a u ar a um p re nt vi llu r. H ei m s ð i fe rð ir ás k r ilj a sé r ré tt t ele il le ið ré t iðið tin g a sl á s lík u. ík A th . a ð v e að að e g e rð g et ur b t ey st re ys re ys n f á n fy rir v y ararar a.a. E N N E M M / S IA M 5 • N M 54 12 2 4 Síðustu sætin í haust – ótrúlegt verð frá kr. 106.900 11 nætur með allt innifalið Heimsferðir bjóða síðustu sætin í haust. Núna erum við með einstök tilboð á nokkrum hótelum. Frá 108.900 – með allt innifalið í 11 nætur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi á hótel Shark. Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 129.900 á mann. Sértilboð 14. september í 11 nætur. Frá 106.900 – með allt innifalið í 11 nætur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2 -11 ára, í fjölskyldu- herbergi á Bitez Garden. Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 127.800 á mann. Sértilboð 5. október í 11 nætur. Tyrkland 14. sept. – 11 nætur 25. sept. – 10 nætur 5. okt. – 11 nætur Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 Þráinn á tökkunum og Gissur með fréttirnar NOREGUR Hundruð manna mættu í gær til minningarathafnar um Sigrid Giskegjerde Schjetne, sex- tán ára stúlku sem fannst látin á mánudagskvöld, mánuði eftir að hún hvarf. „Þetta er ótrúlegt. Fólk hefur komið langar leiðir. Þetta er engu líkt,“ sagði Geir Strand, talsmað- ur fjölskyldu stúlkunnar, í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. Bæði fjölskylda hennar og norska lögreglan þökkuðu þúsund- um sjálfboðaliða sem tóku þátt í leitinni að henni, sem stóð yfir í fjórar vikur. Hún fannst vafin inn í plast í um það bil fimmtán mínútna göngufjarlægð frá staðnum þar sem hún hvarf að kvöldi 4. ágúst. Hún hafði lagt af stað fótgangandi heim til sín frá vinkonu sinni. Lögreglan telur að tilviljun ein hafi ráðið því að Sigrid varð fyrir barðinu á morðingjunum. Árásin hafi ekki verið skipulögð fyrir- fram. Lögreglan hefur samt enn ekki gefið upplýsingar um dánarorsök stúlkunnar en biður um ábend- ingar frá almenningi, sem gætu gagnast við rannsókn málsins. „Við getum ekki sagt neitt meira um það sem gerðist og vinnum í dag út frá nokkrum kenningum,” segir Hanne Krist- in Rohde hjá norsku rannsóknar- lögreglunni. Tveir menn hafa verið hand- teknir, grunaðir um að hafa myrt stúlkuna. Annar þeirra er 37 ára en hinn 64 ára. Þeir þekkjast vel, eru sagðir hafa kynnst í gegnum sameiginlegan áhuga á bílum. Yngri maðurinn hefur langa sögu um geðtruflanir og ofbeld- ishegðun. Í vor hugðust læknar leggja hann inn á geðdeild, gegn vilja hans, en hann andmælti og var ekki lagður inn. Samkvæmt norskum fjölmiðl- um var það ábending um and- legt ástand hans, sem barst lög- reglu frá ættingja hans, sem varð til þess að grunur féll á þessa tvo menn og leiddi til handtöku þeirra. Báðir neita þeir sök og báðir segjast reyndar hafa fjarvistar- sönnun, sem útiloki þá frá því að hafa átt hlut að morðinu á Sigr- id. Sá eldri kom til vinnu í prent- smiðju nokkru eftir miðnætti nóttina sem hún hvarf og ók síðan með blöð snemma morguns. Þá hefur norska ríkisútvarpið rætt við kunningja eldri manns- ins. Kunninginn segir að sá hafi síðastliðinn föstudag trúað honum fyrir því, að sig grunaði að vinur hans hafi átt hlut að hvarfi stúlk- unnar. Þess vegna telur kunning- inn litlar líkur á að eldri maður- inn hafi átt hlut að morðinu. Mennirnir tveir verða leiddir fyrir dómara í dag og farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim báðum. gudsteinn@frettabladid.is Sjálfboðalið- um þakkað Hundruð manna tóku þátt í minningarathöfn um Sigrid Schjetne í Noregi í gær. Lögreglan hefur enn ekki gefið upplýsingar um dánarorsök hennar. SIGRID GISKEGJERDE SCHJETNE Fannst látin á mánudagskvöld, mánuði eftir að hún týndist. MYND/NORSKA LÖGREGLAN SAMFÉLAGSMÁL Grasrótarsamtökin Stóra systir sendu út beiðni til almennings í vikunni og köll- uðu eftir aðstoð við að uppræta vændi í samfé- laginu. Samtökin svöruðu nokkrum spurningum fyrir Fréttablaðið í gegn um tölvupóst. Hafið þið fengið mikil viðbrögð? „Já. Það er ástæðan fyrir því að við sendum út þessa fréttatilkynningu. Fólk hefur haft sam- band og vill vita hvernig það geti hjálpað og verið með í baráttunni gegn vændi. Síðastliðna mánuði höfum við fengið margar ábendingar sem hafa hjálpað okkur mikið í rannsóknarstarfi okkar,“ segir í svarinu. Stóra systir segir fjöl- marga, bæði karla og konur, hafa sett sig í sam- band til að þakka okkur fyrir að halda áfram í baráttunni. Þar á meðal konur sem þekkja vændi af eigin raun sem eru þakklátar fyrir okkar starf. Það þykir okkur mjög vænt um. Það eru ekki síst þessi bréf sem halda okkur við efnið.“ Hafa ykkur borist hótanir? „Já, okkur hefur verið hótað kæru en við bíðum enn þá eftir henni. En við höfum við ekki gert neitt ólöglegt þannig að við erum sallarólegar.“ Þær segja meðvitund fólks um alvarleika og afleiðingar vændis hafa vaxið að undanförnu og þó að lögregla hafi ekki nýtt sér upplýsingar frá samtökunum liggi árang- urinn ekki síst í aukinni umræðu. Stóra systir vill ekki svara því hvort von sé á frekari uppljóstrunum frá þeim í takti við nafna- listann yfir kaupendur sem var afhentur til lög- reglunnar. „Það mun koma í ljós,“ segja þær. - sv Fjölmargir hafa sett sig í samband við Stóru systur og þakkað henni fyrir baráttustarfið gegn vændi: Stóra systir sallaróleg yfir kæruhótun VIÐ ERUM RÉTT AÐ BYRJA Stóra systir vill ekki upplýsa Fréttablaðið um hvort von sé á fleiri nafnalistum yfir vændiskaupendur frá þeim í bráð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÍLAGUÐINN BORINN UM STRÆTI Í Múmbaí á Indlandi fylgdust íbúar með þegar stórt líkneski af fílaguð- inum Ganusha lávarði var borið um göturnar, en hátíð helguð honum hefst síðar í mánuðinum. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.